Viðskipti innlent
96 97 98 99 100 101 102 103 104 … 334 ›
Arion banki hækkar vexti Arion banki hefur hækkað vexti óverðtryggðra og verðtryggðra íbúðalána frá og með deginum í dag. Bankinn fylgir því fordæmi Landsbankans sem hækkaði vexti fyrr í vikunni. Viðskipti innlent 14.10.2022 10:20
Gangi ekki að lykilstarfsmanni sé meinaður aðgangur að tilteknum lykilupplýsingum Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, segir að það gangi ekki að framkvæmdastjóri fjármála fyrirtækisins sé meinaður aðgangur að tilteknum fjárhagslegum og rekstrarlegum upplýsingum fyrirtækisins, líkt og raunin er vegna fjölskyldutengsla framkvæmdastjórans við stjórnarformann Sýnar. Viðskipti innlent 13.10.2022 21:07
Hættir við framboð í stjórn Sýnar vegna afarkosta OR Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Sýnar, hefur dregið framboð sitt til stjórnar félagsins til baka. Hún segir ástæðuna vera afarkosti sem OR setti eiginmanni hennar vegna meintra hagsmunaárekstra í tengslum við stjórnarsetu hennar. Viðskipti innlent 13.10.2022 20:26
Stefán segir upp hjá Storytel Stefán Hjörleifsson hefur sagt upp starfi sínu sem landsstjóri Storytel á Íslandi eftir fimm ára starf. Næstu skref eru óráðin fyrir utan að lækka forgjöfina í golfi á suðrænum slóðum. Viðskipti innlent 13.10.2022 16:10
Páll tekur við af Júlíusi hjá HS Veitum Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku, mun taka við stöðu forstjóra HS Veitna í upphafi næsta árs. Hann tekur við stöðunni af Júlíusi Jóni Jónssyni sem lætur senn af störfum sem forstjóri eftir fjörutíu ára starf hjá félaginu. Viðskipti innlent 13.10.2022 14:41
Íslandsbankaskýrslan loks komin í umsagnarferli Ríkisendurskoðun hefur nú sent fjármála- og efnahagsráðuneyti, Bankasýslu ríkisins og stjórn hennar drög að skýrslu embættisins um sölu ríkisins á hlut sínum í Íslandsbanka til umsagnar. Ríkisendurskoðun hefur veitt aðilum frest til miðvikudagsins 19. október til að skila umsögnum. Viðskipti innlent 13.10.2022 13:22
Ráðinn markaðsstjóri Men&Mice Elvar Páll Sigurðsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Men&Mice og mun sem slíkur leiða markaðssetningu fyrirtækisins á alþjóðlegum mörkuðum. Viðskipti innlent 13.10.2022 11:13
Veittu 76 viðurkenningu og reistu jafn mörg tré í Heiðmörk Alls hlutu 59 fyrirtæki, sex sveitarfélög og ellefu opinberir aðilar viðurkenningu á ráðstefnunni Jafnrétti er ákvörðun á vegum Jafnvægisvogarinnar, hreyfiafls Félags kvenna í atvinnulífinu, í gær. Konur eru 24 prósent framkvæmdastjóra hér á landi og hefur fjölgað lítið undanfarin ár. Viðskipti innlent 13.10.2022 10:16
Koma ný inn í eigendahóp Brandenburgar Sigríður Theódóra Pétursdóttir og Arnar Halldórsson hafa bæst í eigendahóp auglýsingastofunnar Brandenburg. Þau hafa bæði starfað sem stjórnendur á stofunni undanfarin ár. Viðskipti innlent 13.10.2022 09:41
Íslenskt fyrirtæki hluti af herferð Meta Íslenska tæknifyrirtækið Arkio er eitt þeirra fyrirtækja sem móðurfyrirtæki Facebook, Meta, sýnir frá í nýjustu auglýsingu sinni fyrir sýndarveruleikagleraugun Meta Quest Pro. Arkio býður upp á forrit þar sem hægt er að hanna arkitektúr í sýndarveruleika. Viðskipti innlent 13.10.2022 09:35
Sameining fyrirtækja á innheimtumarkaði Hluthafar Inkasso ehf. og Momentum ehf. hafa náð samkomulagi um sameiningu félaganna og kemur hún til framkvæmda síðar í þessum mánuði. Viðskipti innlent 13.10.2022 08:44
Bein útsending: Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland Morgunfundur Icelandair, Isavia, Landsvirkjunar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland hefst í dag klukkan 8:30. Búist er við því að fundinum ljúki klukkan 10. Viðskipti innlent 13.10.2022 08:01
Spáir 2-3 prósenta atvinnuleysi á næsta ári Sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun segir útlit fyrir að atvinnuleysi hér á landi muni nema um 2-3 prósentum á næsta ári að meðaltali. Atvinnuleysi í septembermánuði nam 2,8 prósentum og hafði minnkað úr 3,1 prósenti í ágúst. Viðskipti innlent 13.10.2022 06:33
Segist heyra margar kjaftasögur um Play en blæs á þær allar Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist heyra margar kjaftasögur um starfsemi félagsins. Hann blæs á þær allar og minnir á að félagið sé skráð á markað. Viðskipti innlent 12.10.2022 19:41
Alvotech ræður Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóra gæðaeftirlits Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur ráðið Söruh Tanksley sem framkvæmdastjóri gæðaeftirlits hjá Alvotech en hún tekur við af Reem Malki, sem beðist hefur lausnar af persónulegum ástæðum. Sarah Tanksley mun hefja störf þann 14. október næstkomandi. Viðskipti innlent 12.10.2022 13:57
Þorbjörg og Þórður til Fossa Þórður Ágúst Hlynsson hefur verið ráðinn til starfa sem verkefnastjóri í fyrirtækjaráðgjöf Fossa fjárfestingabanka og Þorbjörg M. Einarsdóttir sem sérfræðingur á nýju fjármálasviði bankans. Viðskipti innlent 12.10.2022 12:37
Síminn braut ekki samkeppnislög með sölu enska boltans Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi ekki brotið gegn ákvæða sáttar við Samkeppniseftirlitið með því að tvinna saman fjarskiptaþjónustu og línulega sjónvarpsþjónustu, enska boltann á Símanum Sport, í svonefndum Heimilispakka. Viðskipti innlent 12.10.2022 10:53
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,25 prósentustig. Sama hækkun er herð á breytilegum vöxtum verðtryggðra íbúðalána. Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána verða óbreyttir en fastir vextir verðtryggðra íbúðalána hækka um 0,30 prósentustig. Viðskipti innlent 11.10.2022 16:52
Hættur að versla við KS vegna stríðsins Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segist vera hættur að versla við veitingastaði og afþreyingastaði sem eru í eigu Kaupfélags Skagfirðinga (KS). Ástæðan er sú að starfsmaður kaupfélagsins er heiðurskonsúll Rússlands á Íslandi. Konsúllinn segist ekki sinna þeim störfum fyrir hönd KS. Viðskipti innlent 11.10.2022 13:52
Ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri Vísindagarða Þórey Einarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands. Viðskipti innlent 11.10.2022 13:35
Nanna Elísa tekur við málefnum nýsköpunar hjá SI Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, hefur tekið við málefnum nýsköpunar hjá Samtökum iðnaðarins. Viðskipti innlent 11.10.2022 13:08
Markmiðið að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika matvælaframleiðslu Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2022 hefst í Laugardalshöll í Reykjavík á föstudaginn og stendur fram á sunnudag. Viðskipti innlent 11.10.2022 10:08
Einungis þrjú fyrirtæki hækkuðu í virði í september Virði nítján fyrirtækja á aðallista Kauphallarinnar lækkaði í september. Vísitala Kauphallarinnar í heild sinni lækkaði um 8,3 prósent sem er það næst mesta yfir heilan mánuð á árinu. Mesta lækkunin var hjá Eimskip. Viðskipti innlent 11.10.2022 09:57
Ráðinn nýr fjármálastjóri Play Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember. Viðskipti innlent 11.10.2022 09:07
Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi Haustráðstefna Stjórnvísi fer fram í beinni útsendingu frá Grand hótel í dag. Þema ráðstefnunnar er Gróska - Vöxtur, þroski, árangur. Viðskipti innlent 11.10.2022 09:00
Smørrebrød í boði í Borgarleikhúsinu Gestir Borgarleikhússins geta héðan í frá gætt sér á dönsku smørrebrød þegar leiksýningar eru sóttar. Leikhúsið mun bjóða upp á hinn sívinsæla rétt með aðstoð Jómfrúarinnar og vonast framkvæmdastjórinn eftir því að fólk geti fengið enn meira út úr leikhúsferðum sínum. Viðskipti innlent 11.10.2022 08:58
Hleðslustöðvamálinu lokið eftir nei frá Hæstarétti Ísorka fær ekki að áfrýja dómi Landsréttar í hleðslustöðvarmálinu svokallaða til Hæstiréttar. Málskotsbeiðni Ísorku var hafnað af Hæstarétti fyrir helgi. Viðskipti innlent 10.10.2022 21:01
Kristín Vala til Coca-Cola Kristín Vala Matthíasdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola á Íslandi. Kristín kemur til Coca-Cola frá Bluebird Nordic þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Viðskipti innlent 10.10.2022 16:52
Harpa og Ingólfur til ON Harpa Pétursdóttir og Ingólfur Örn Guðmundsson hafa verið ráðin til Orku náttúrunnar. Ingólfur hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns sölu- og viðskiptaþróunar og Harpa í starf aðstoðarkonu framkvæmdastýru. Viðskipti innlent 10.10.2022 14:56
Tuttugu hádegisverðir, rándýr kvöldmatur og ýmsar jólagjafir Á tæpu ári sátu fulltrúar Bankasýslu ríkisins tuttugu hádegisverðarfundi með fulltrúum ýmissa fjármálafyrirtækja. Tvisvar fögnuðu starfsmenn Bankasýslunnar frumútboði á hlutum í Íslandsbanka með kvöldverði. Kvöldverðirnir kostuðu 34 þúsund og 48 þúsund krónur á mann. Viðskipti innlent 10.10.2022 13:06