Menning

Kaupmaðurinn á horninu í útrás

Kaupmaðurinn á horninu er orðinn að hálfgerðri goðsögn á Íslandi. Þó er einn og einn í fullu fjöri og þar á meðal er Þórður Björnsson í Hlíðakjöri við Eskihlíð. Þórður er nýlega byrjaður í bransanum og er svo bjartsýnn að hann er búinn að kaupa Sunnubúðina við Lönguhlíð líka, hvorutveggja rótgrónar hverfisverslanir.

Menning

Ashton og Demi ákveða daginn

Leikaraparið Ashton Kutcher og Demi Moore ætla að giftast að Kabbalah stíl um Þakkargjörðarhátíðina. 15 ár eru á milli þeirra en samband þeirra, sem flestir héldu í upphafi að væri eitthvað grín, virðist nú vera fúlasta alvara. 

Menning

Lán bankanna verði skoðuð

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, vill að Samkeppnisstofnun og Fjármálaeftirlitið skoði íbúðalán bankanna. Formlegt erindi verður sent þessum stofnunum á næstu dögum. Gylfi segir algerlega ljóst að bönkunum sé óheimilt að taka sérstakt gjald vegna uppgreiðslu lána.

Menning

Íslenskir réttir öðlast nýtt líf

Þótt matreiðslubækurnar Cool Cuisine og Cool Dishes heiti framandi nöfnum innihalda þær bæði þjóðlegar og nútímalegri uppskriftir að rammíslenskum mat. Þar öðlast hefðbundnir réttir nýtt líf svo sem kjötsúpa, plokkfiskur, hangikjöt og steikt slátur og lýst er hvernig matreiða á lunda, hreindýr, lambakjöt, krækling og ferskan fisk svo nokkuð sé nefnt.

Menning

Vísitalan hækkar um 0,43%

Vísitala neysluverðs í september hækkar um 0,43% frá síðasta mánuði og er nú 235,6 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 228,2 stig eða 0,40% hærri en í ágúst. Frá þessu greinir á vef Hagstofu Íslands.

Menning

Ekki sama laukur og laukur

"Áhugi á ræktun matjurta hefur aukist gríðarlega og ef til vill hefur það sitt að segja að mataræði okkar hefur breyst og hafa kryddjurtir og salöt aukist mikið í fæðunni," segir Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur og umsjónarmaður nytjajurtagarðs Grasagarðsins í Laugardal.

Menning

Besta breska bandið í ár

Skoska rokksveitin Franz Ferdinand hlaut Mercury-tónlistarverðlaunin á miðvikudagskvöldið fyrir fyrstu plötu sína, samnefnda hljómsveitinni. Rokkkvartettinn, sem kemur frá Glasgow, þóttu sigurstranglegir af þeim 12 listamönnum sem voru tilnefndir og hrepptu að lokum hnossið.

Menning

Mikill áhugi á tónlistarnámi

Rúmlega helmingur allra grunnskólanemenda í Súðavík er í tónlistarnámi. Tónlistarskólinn á Ísafirði er þar með útibú og eru nemendurnir 21.

Menning

Avril óvinsæl í heimabænum

Kjafturinn á Avril Lavigne heldur áfram að koma henni í vandræði. Íbúar heimabæ hennar eru brjálaðir eftir að söngkonan sagði Napanee ömurlegan stað.

Menning

Ester Sól, sex ára á Ólafsfirði

Ég er rosalega spennt yfir því að byrja í skólanum," segir Ester Sól Arnþórsdóttir. Hún kvíðir því samt svolítið að vakna snemma og að Sigurjón Máni, bróðir hennar, sé ekki með henni í skólanum lengur

Menning

Spornað við yfirskuldsetningu

Hver eru eðlileg útgjöld fjögurra manna fjölskyldu á mánuði? Hvaða vörutegundir þarf að kaupa til heimilisins og í hvaða magni? Hvað kostar síminn, æfingatímarnir og allt hitt?

Menning

Hestamennska er uppeldisleg íþrótt

Nú eru haustnámskeið að hefjast í reiðskólanum Faxabóli í Víðidal þar sem hestamaðurinn Tómas Ragnarsson heldur um taumana ásamt konu sinn Þóru Þrastardóttur. Þar er boðið upp á byrjendanámskeið, framhaldsnámskeið og einnig eru útreiðahópar fyrir vönustu þátttakendurna

Menning

Fyrirlestraröð Umhverfisstofnunar

Hér starfa sérfræðingar á öllum sviðum og okkur langaði til þess að miðla þekkingu þeirra til almennings," segir Hrefna Guðmundsdóttir, fræðslu- og upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar

Menning

Freysgoði á fjalirnar

Sex íslensk leikrit verða á dagskrá Stoppleikhússins í vetur, þar af tvö glæný verk. Annað þeirra hefur Valgeir Skagfjörð samið upp úr Hrafnkels sögu Freysgoða. Hitt er nýtt íslenskt jólaleikrit sem nefnist Síðasta stríð og verður á dagskrá þegar nær dregur jólum.

Menning

Lærði af þeim bestu

Það vita margir hver Ari Magg ljósmyndari er enda er hann löngu búinn að skipa sér sess ofarlega meðal fremstu ljósmyndara landsins. Færri vita hver litla systir hans, Silja Magnúsdóttir ljósmyndari er enda er hún sex árum yngri og ekki langt síðan hún útskrifaðist út framhaldsskóla.

Menning

Pilatesæfingakerfið

"Pilates þéttir og lengir vöðva líkamans, en æfingarnar felast í að styrkja og teygja líkamann undir algjörri stjórnun, þannig að hugur fylgi hverri æfingu og fólk hvíli líkamann meðan það æfir," segir Jóhann Björgvinsson, löggiltur pilateskennari. "Ég er að kenna þessa hreinu pilates-tækni, en ég lærði hjá konu í New York sem er eini eftirlifandi kennarinn sem lærði hjá Joseph Hubertus Pilates sjálfum. </font /></font /></b />

Menning

Kaðlajóga fyrir alla

Elín Sigurðardóttir, íþróttafræðingur og fyrrverandi sundkona, er í fínu formi enda stundar hún og kennir kaðlajóga eða rope yoga, sem eru æfingar gerðar með böndum á sérstökum bekkjum. "Þetta eru öflugustu kviðæfingar sem ég hef komist í þó ég hafi æft mikið í gegnum árin," segir Elín

Menning

Lét æskudrauminn rætast

Ólafur Gunnarsson rithöfundur á rennilegan gæðing, Cadillac árgerð 1964. Þrjú ár eru síðan hann eignaðist gripinn en hvað kom til?

Menning

Lipur borgarbíll

Kia Cerato er fjölskyldubíll af minni gerðinni eða smábíll af stærri gerðinni eftir því hvernig er á málin litið, bíll í svipuðum stærðarflokki og til dæmis Toyota Corolla og Volkswagen Golf. Bíllinn fæst í tveimur útfærslum, fimm dyra og fjögurra dyra með skotti. Báðir bílar fást bæði beinskiptir og sjálfskiptir og á næsta ári er væntanlegur dísilbíll.

Menning

Golf 4MOTION

Fjórhjóladrif er nú komið í Volkswagen Golf og er hann fáanlegur með tveimur gerðum dísilvéla búinn 4MOTION fjórhjóladrifi og rafeindastýrðu Haldex-gengi. Einnig er hann fáanlegur sídrifinn með 105 hestafla og 140 hestafla TDI-dísilvélum með öflugu togi

Menning

Tryllitæki vikunnar er 2004 árgerðin af Aprilia Tuonon Racing eða Kappakstursþruman. Þessi hjól voru smíðuð í þeim tilgangi að gera þau lögleg í keppni og því er þetta hjól með mun meiri búnaði en hefðbundin hjól.

Menning

Öruggasti smábíllinn

Nýi smábíllinn Renault Modus hefur hlotið fimm stjörnur af fimm mögulegum í árekstrarprófunum Euro NCAP en enginn bíll hefur áður náð þeim árangri í flokki smábíla. Hlaut hann fjórar stjörnur af fimm mögulegum fyrir öryggi barna sem er einn besti árangur í flokki smábíla til þessa.

Menning

Á sveppaveiðum

"Uppáhaldssveppurinn minn vex ekki á Íslandi," segir Ágúst Pétursson, kennari, sveppaáhugamaður og matargúru að auki. "Sá sveppur heitir myrkill og er afskaplega sérkennilegur í laginu, svona eins og hann sé á röngunni, og bragðið er sterkt og sérstakt. Þessi sveppur vex í sendnum jarðvegi í frekar heitum löndum. En hann er sjaldgæfur og kílóið af honum þurrkuðum er á um 30.000 krónur. Flestir falla fyrir honum um leið og þeir bragða hann."

Menning

Hjartað slær í Kína

Guðrún Ólafsdóttir landfræðingur og mannfræðingur hlýtur að teljast með víðförlari Íslendingum því nánast má segja að hún hafi verið á faraldsfæti frá því í frumbernsku. Hún er nú á 74. aldursári og alls ekki sest í helgan stein.

Menning

Sveppatínsla í Heiðmörk

Í dag verður farin sveppatínsluferð í Heiðmörk á vegum Skógræktarfélags Reykjavíkur. Leiðbeinandi í göngunni er Bjarni Diðrik Sigurðsson, skógarvistfræðingur hjá Rannsóknarstöðinni á Mógilsá.

Menning

Algjör matarfíkill

María Björk Sverrisdóttir er mikið fyrir góðan mat. "Ég er matarfíkill og matur er helsta nautnin í mínu lífi. Mér finnst rosagaman að fara út að borða og finnst þá gaman að borða öðruvís mat."

Menning

Leikhópurinn stal skrúðgöngunni

"Ég kom fyrst til Edinborgar árið 1995 á leið til Inverness í Skotlandi. Ég kom við og kíkti á kastalann og fannst borgin falleg en hún hreyfði samt ekkert sérstaklega við mér. Þremur árum síðar fór ég svo til Edinborgar aftur með leikhópinn minn, Regínu, en við fórum með sýninguna Northern Lights og tókum þatt í jaðarleiklistarhátíðinni (Fringe Festival),"segir Gunnar Sigurðsson, leikstjóri.

Menning

Daníel Erik Hjatlason í Fellaskóla

"Ég var í sveit í sumar þannig að ég þurfti alltaf að vakna eldsnemma í fjósið. Ég á því ekkert í erfiðleikum með að vakna í skólann," segir Daníel Erik. Hann segist hafa verið svolítið spenntur að byrja í skólanum en líka svolítið kvíðinn

Menning