Menning

Litlir, sætir og sexí aukahlutir

Aukahlutir í bíla er alltaf eitthvað sem tengt hefur verið við bílaáhugamenn, og þá yfirleitt stráka. Eitthvað eins og spoilerar, brjálaðar græjur og jafnvel glasahaldarar. Allt á þetta það sameiginlegt að vera voðalega flott og gerir bílinn að sannkölluðu tryllitæki en það vantar samt fínu litina og pjattið sem gera bílinn heimilislegan. Sumir eyða líka meiri tíma í bílnum en heima hjá sér og því er um að gera að gera hann svolítið huggulegan. Það vilja allir hafa fínt í bílnum sínum - líka strákarnir þó þeir neiti því alfarið. Það er gaman að gæða bílinn lífi, litum og ilmi og leyfa sér að slaka aðeins á inni í blikkdollunni á meðan umferðarteppan eykst og allir eru vitlausir á flautunni í kringum mann.
Venjulegir teningar fyrir hefðbundna fólkið.Mynd/E.Ól
Fallegur lyktarmáni sem veitir ökumanni afskaplega mikla innri ró á ferð um bæinn.Mynd/E.Ól
Nammið má ekki vanta í daglega akstursamstrinu. Flest er best í hófi!Mynd/E.Ól
Stýrið má ekki vera út undan og þessi loðfeldur heldur stýrinu heitu ásamt fingrunum á þér.Mynd/E.Ól
Teningar eru alltaf vinsælt bílaskraut en þessir hafa það umfram aðra að þeir eru með innbyggt ljós sem gerir þá svolítið sexí.Mynd/E.Ól
Þessi sæti bangsi gefur frá sér góðan ilm og hægt er að knúsa hann í löngum ferðalögum.Mynd/E.Ól
Bílpúðar fyrir börnin þurfa að vera skemmtilegir og hérna halda Bangsímon og Tígri barninu upp á snakki.Mynd/E.Ól
Þessi litríka gúmmíhlíf fer utan um stýrið og veitir ökumanni betra grip.Mynd/E.Ól





Fleiri fréttir

Sjá meira


×