Menning

Ljóstrað upp um Banksy?

Breska dagblaðið The Mail on Sunday fullyrðir að hinn dularfulli graffítilistamaður Banksy heiti í raun Robin Cunningham og sé 34 ára gamall.

Menning

Táknmyndir í bókasafni

Sýningin Táknmyndir úr tilverunni stendur nú yfir í Aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Á sýningunni má sjá verk eftir myndlistarmanninn Stefán-Þór

Menning

Þetta verður að vera erfitt, annars er ekkert gaman

Leikhópurinn Vér morðingjar setur upp Macbeth eftir Shakespeare í haust. Fram til þessa hefur hópurinn einbeitt sér að nýjum leikverkum. Tveir leikarar úr hópnum hafa notað sumarið til að kynna sér leiklistarlífið í Evrópu.

Menning

Víóla og gítar fyrir norðan

Önnur sumartónleikahelgin við Mývatn fer nú í hönd og býður tónlistaráhugafólki upp á ljúfa tóna gítars og lágfiðlu. Þau Kristinn H. Árnason gítarleikari og Helga Þórarinsdóttir lágfiðluleikari koma fram á tónleikum í Reykjahlíðarkirkju í kvöld kl. 21 og í Skútustaðakirkju annað kvöld kl. 21 og leika þar létta og skemmtilega efnisskrá sem inniheldur meðal annars sónötu eftir Vivaldi, spænska tónlist og nokkrar ómissandi perlur úr íslenskri sönghefð.

Menning

Gönguferðir á ensku

Borgarbókasafnið í Reykjavík hefur um nokkurra ára bil boðið borgarbúum og nærsveitamönnum upp á kvöldgöngur með bókmenntalegu ívafi. Þá hefur safnið bætt við og leggur í gönguferðir fyrir enskumælandi og enskuskiljandi gesti síðan 2003 í júlí og ágústmánuði.

Menning

Geta ekki hætt að teikna

Um helgina verður slegið upp heljarinnar veislu í tilefni þriggja ára afmælis verslunarinnar Nakta apans í Bankastræti. Gamanið hefst í dag klukkan 14 og verða ýmsar uppákomur í boði. Sara María Eyþórsdóttir, hönnuður og eigandi verslunarinnar, segir að það verði stíf dagskrá í gangi alla helgina.

Menning

Æft fyrir Edinborgarhátíð

Fyrsta uppistand Snorra Hergils Kristjáns­sonar á Organ undir nafninu Happy Mondays, var á mánudag. Uppistandið er undirbúningur fyrir hina risastóru og virtu Edenborgarhátíð, sem honum var boðið á. Snorri Hergill hefur löngum búið í London og staðið fyrir uppistandi þar, en hann var kosinn næstfyndnasti maður Íslands 2002. Þá er Snorri lærður leikari úr LAMDA-skólanum.

Menning

Riðið á vaðið um helgina

Myndlistartvíeykið Sally og Mo, eða þær Þóra Gunnarsdóttir og Elín Anna Þórisdóttir, opna sýningu í Gallerí Auga fyrir auga, Hverfisgötu 35, á laugardag kl. 15.

Menning

Flauta á Þingvöllum

Tónleikaröðin Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju heldur áfram í kvöld, en í þetta skipti flytur Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari fjölbreytta dagskrá fyrir einleiksflautu. Hafdís er búsett í París um þessar mundir þar sem hún leggur stund á framhaldsnám í flautuleik en kemur víða fram með flautuna sína hér á landi nú í sumar.

Menning

Ilmandi gjörningur Andreu

Ilmvatnssýning Andreu Maack í Gallerí Ágúst hefur vart farið fram hjá myndlistaráhugafólki í höfuðborginni, enda velilmandi myndlist með eindæmum. Sýningin, sem er fyrsta einkasýning Andreu, ber hið smellna nafna Smart og hefur vakið mikla athygli hérlendis sem erlendis, en sýningin var hluti af dagskrá hinnar nýafstöðnu Listahátíðar í Reykjavík.

Menning

Tilraunir eða myndlist utandyra

Listasafn Reykjavíkur stendur að vanda fyrir skemmtilegum uppákomum nú um helgina. Tilraunastofa fyrir börn og fullorðna verður starfrækt í Hafnarhúsinu á morgun á milli kl. 14 og 16, en boðið var upp á slíka tilraunastofu um síðustu helgi með fádæma góðri aðsókn þar sem um sextíu börn komu saman og fengu útrás fyrir vísindamanninn í sér.

Menning

Ómælanleg náttúrufegurð

Myndlistarkonan Rúrí er höfundur sýningarinnar Sökkvun sem nú stendur yfir í StartArt-listamannahúsi á Laugavegi. Rúrí er þjóðinni vel kunn fyrir verk sín sem oft má finna á óvæntum stöðum í umhverfinu, en á Sökkvun er viðfangsefni hennar náttúran og nýting okkar á henni.

Menning

Ljósmyndir skáldsins

„Síðbúin sýn - ljósmyndir úr fórum Nóbelsverðlaunahafans og heimsborgarans Halldórs Laxness" er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Þjóðmenningarhúsinu á þjóðhátíðardaginn næstkomandi þriðjudag kl. 13.

Menning

Ást fær frábæra dóma

Söngleikurinn Ást, eða Love - The musical, sem Vesturport setur upp í Lyric Hammersmith-leikhúsinu í London hefur hlotið frábæra dóma í hinum ýmsu fjölmiðlum ytra. Gagnrýnandi Daily Mail gekk svo langt að segja að sýningin væri sú besta sem sett hefði verið á svið frá því að nýr listrænn stjórnandi tók til starfa hjá Lyric Hammersmith-leikhúsinu.

Menning

Ljósmyndir sem spanna hundrað ár

Öld er liðin frá því að hinn huggulegi bær Hafnarfjörður fékk kaupstaðarréttindi. Af því tilefni verður opnuð í kvöld kl. 20 sýning í Hafnarborg, menningar- og listastofnun bæjarins, á 200 ljósmyndum frá Byggðasafni Hafnarfjarðar sem spanna sögu kaupstaðarins.

Menning

Glefsur úr lífi listamanna

Heimildarmyndin Steypa eftir þau Markús Andrésson og Ragnheiði Gestsdóttur verður sýnd í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í kvöld. Í myndinni er nokkrum íslenskum samtímalistamönnum fylgt eftir yfir tveggja ára tímabil.

Menning

Ferðalag um hið ókunna

Listaverkefninu Ferðalag verður ýtt úr vör í dag, en um er að ræða framtak þriggja listastofnanna á Austurlandi í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Stofnanirnar eru Skaftfell - miðstöð menningar á Austurlandi, Sláturhús - Menningarsetur og Eiðar listasetur.

Menning

Listahátíð hefst í næstu viku

Þann 15. maí hefst þriggja vikna dagskrá Listahátíðar í Reykjavík með fjölbreyttum tónlistar- og sviðlistaviðburðum og miklum fjölda myndlistarsýninga. Viðburðirnir eiga sér stað í sýningarsölum, listasöfnum, galleríum og á götum úti og teygja einnig anga sína út á land.

Menning

Enn er verið að dissa!

Frumsýning á fimmtudag í Ríkisleikhúsi íslensku þjóðarinnar. Hvernig stendur á því að Verslunarskólinn heldur ekki áfram að sjá um uppfærslur af þessum toga eins og verið hefur í vinsælum sumarsýningum sem Borgarleikhúsið hefur hýst?

Menning

Tilnefningar birtar til Þýðingarverðlaunanna

Í vikunni var tilkynnt um tilnefningar valnefndar til Íslensku þýðingarverðlaunanna sem afhent verða af forseta Íslands á Gljúfrasteini í lok apríl. Í dómnefnd sátu bókmenntafræðingar og blaðamenn, allt valinkunnir fagurkerar á íslenskar og erlendar bókmenntir, þau Silja Aðalsteinsdóttir, Árni Matthíasson og Fríða Björk Ingvarsdóttir.

Menning

Arnaldur besti rithöfundurinn

„Já, ég er auðvitað mjög ánægður með að fólk skuli taka svona vel undir það sem ég hef verið að gera,“ segir Arnaldur Indriðason rithöfundur. Þó umdeilanlegt sé hvort yfirleitt sé hægt að keppa í listum er óhætt að segja að Arnaldur beri höfuð og herðar yfir aðra rithöfunda á Íslandi og er þá ekki bara verið að vísa í sölutölur.

Menning

Örvhentir og blindir fagna breytingum

Örvhentir nemendur við Háskóla Íslands taka þeim breytingum sem hafa verið gerðar á nýjum kvikmyndasölum Háskólabíós fagnandi. Ný sæti með borðum fyrir örvhenta hefur verið komið fyrir yst vinstra megin í hverri sætaröð og eiga þeir því auðveldara með það en áður að glósa í fyrirlestrum.

Menning

Tíminn með Odd Nerdrum guðsgjöf

Fyrsta einkasýning listmálarans Þrándar Þórarinssonar verður opnuð í húsi Ó. Jónssonar og Kaaber á laugardag. Þrándur hrökklaðist á sínum tíma úr námi sínu í Listaháskóla Íslands og gerðist nemandi hjá hinum norska Odd Nerdrum.

Menning

Leggur Indland að fótum sér

Vinjettuhöfundurinn Ármann Reynisson ferðaðist um þvert Indland í um tvo mánuði til þess að viða að sér efni og fá nýtt blóð í sagnabrunninn. Vinjettur Ármanns féllu Indverjum almennt mjög vel í geð.

Menning

Aðdáendur Sigga Páls fagna

Sigurður Pálsson hlaut á fimmtudaginn Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007 í flokki fagurbókmennta fyrir Minnisbók. Fáir fögnuðu sigri Sigurðar jafn innilega og meðlimir Singapore Sling. Þeir voru staddir úti í Berlín í gær þegar þeir heyrðu fréttirnar. „Þetta voru frábær tíðindi,“ segir Henrik Björnsson söngvari. „Við opnuðum kampavínsflösku um leið og við heyrðum þetta.

Menning