Menning

Katrín á sigurbraut

Ljósmyndir Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari.
Ljósmyndir Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari.

Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari hefur verið tilnefnd til Deutsche Börse Photographic Prize fyrir sýningu sína Margsaga sem nú er uppi í Gallerí Ágúst á Baldurs­götunni í Reykjavík. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til samtímaljósmyndunar í Evrópu á síðastliðnu ári. Meðal þeirra sem hlotið hafa verðlaunin eru listamennirnir Esko Männikkö, Rineke Dijkstra og Andreas Gursky.

Tilnefning til verðlaunanna er í höndum alþjóðlegs faghóps. Dómnefnd velur fjóra úr hópi hinna tilnefndu og verður sýning með verkum þeirra sett upp í hinu virta Photographers' Gallery í London á næsta ári. Fyrstu verðlaun nema rúmlega fimm milljónum íslenskra króna en það mun vera með hæstu verðlaunaupphæðum í listheiminum.

Um þessar mundir eru tvær sýningar í Reykjavík á ljósmyndaverkum Katrínar sem er einn af eftirtektarverðustu ljósmyndurum okkar en hún sýnir líka ljósmyndir sínar af flóttamönnum á Íslandi í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í tilefni af tilnefningu Katrínar mun sýningin Margsaga verða framlengd til 14. október. Gallerí Ágúst er opið miðvikudaga til laugardaga kl. 12-17, en sýning þeirra Sigrúnar Sigurðardóttur, Heima - heiman í Ljósmyndasafninu er opin til 23. nóvember og er opin frá 12-19 virka daga, en frá 13-17 um helgar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.