Erlent
315 316 317 318 319 320 321 322 323 … 334 ›
Tókst ætlunarverkið: Yngsta kona sögunnar til að fljúga umhverfis hnöttinn Hin nítján ára gamla Zara Rutherford lenti í Belgíu, heimalandi sínu, í dag og er þar með yngsta kona sögunnar til þess að fljúga einsömul hringinn í kringum jörðina. Erlent 20.1.2022 17:29
Á þriðja tug látin eftir troðning í messu Minnst tuttugu og níu eru látin, þar á meðal ellefu börn og ein þunguð kona, eftir að mikil ringulreið og troðningur skapaðist í messu í Líberíu. Erlent 20.1.2022 17:02
Ríkisstjórnin sökuð um að hóta þingmönnum og jafnvel kúga þá Þingmenn Íhaldsflokks Englands, sem vilja velta Boris Johnson, forsætisráðherra, úr sessi sem leiðtogi flokksins, hafa orðið fyrir hótunum frá meðlimum úr ríkisstjórn Bretlands. Þetta segir einn þingmaður flokksins og ráðleggur hann flokksbræðrum sínum og systrum sem hafa orðið fyrir kúgunum að leita til lögreglunnar. Erlent 20.1.2022 16:45
Sakaður um aðgerðaleysi vegna kynferðisbrota presta Benedikt páfi er sakaður um að hafa sýnt af sér aðgerðaleysi í tengslum við misnotkun á fjögurra barna í biskupsdæmi hans í München op Freising frá 1977 til 1982. Erlent 20.1.2022 15:31
„Rússarnir eru að sameina NATO“ Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið. Erlent 20.1.2022 14:15
Allt gæti farið úr böndunum hjá Rússum Prófessor í stjórnmálaheimspeki segir afleiðingar af mögulegri innrás Rússa í Úkraínu geta verið grafalvarlegar. Þegar spenna sé orðin eins mikil og nú þurfi lítið til að allt fari úr böndunum og stríð eða jafnvel styrjöld brjótist út. Erlent 20.1.2022 13:09
Hæstiréttur brást vonum Trumps Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í gær kröfu Donalds Trump, fyrrverandi forseta, um að þingnefnd sem rannsakar árásina á þinghúsið í fyrra fengi ekki aðgang að gögnum hans. Lögmenn Trumps höfðu vonast eftir því að koma í veg fyrir afhendingu gagnanna en nú er sú von úti. Erlent 20.1.2022 12:37
Íhugar að hefja aftur tilraunir með langdrægar eldflaugar Ríkisstjórn Norður-Kóreu ætlar mögulega að hefja á nýjan leik tilraunir með langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn. Sú ákvörðun var tekin á ríkisráðsfundi í vikunni að Kim Jung-un, einræðisherra Norður-Kóreu, íhugaði að hefja tilraunirnar aftur vegna „óvinveittrar stefnu“ Bandaríkjanna í garð einræðisríkisins. Erlent 20.1.2022 11:05
Maxwell óskar eftir nýjum réttarhöldum Breska athafnakonan Ghislaine Maxwell hefur óskað eftir því að réttað verði í máli hennar að nýju. Hún var í lok desember sakfelld fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað bandaríska auðkýfingnum Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega. Erlent 20.1.2022 10:52
Tókst ekki að breyta reglum öldungadeildarinnar og samþykkja kosningalög Tilraunir Demókrata til að koma á nýjum kosningalögum í Bandaríkjunum misheppnuðust í gær þegar tveir öldungadeildarþingmenn flokksins neituðu að taka þátt í því að breyta reglum þingdeildarinnar. Umræddar breytingar eru Demókrötum nauðsynlegar til að koma frumvarpinu í gegnum þingið vegna naums meirihluta þeirra. Erlent 20.1.2022 09:48
Fyrsta flugvélin með hjálpargögnum komin til Tonga Fyrsta flutningavélin með hjálpargögn er nú lent á flugvellinum á Tonga. Vélin er með drykkjarvatn og fleiri nauðsynjar en þessi afskekkti eyjaklasi varð illa útí í eldgosi sem hófst um síðustu helgi. Erlent 20.1.2022 08:05
Biden telur Pútín hyggja á innrás og segir hann munu gjalda það dýru verði Joe Biden Bandaríkjaforseti segist telja að Vladimír Pútín kollegi hans í Rússlandi hyggi á einhvers konar innrás í Úkraínu á næstunni. Erlent 20.1.2022 07:06
Þjóðverjar beina spjótum að Telegram Þjóðverjar hyggjast taka harðar á notkun samskiptaforritsins Telegram. Forritið hefur gjarnan verið orðað við glæpastarfsemi en stjórnvöld í Þýskalandi hafa áhyggjur af pólitískum öfgahópum sem nýta sér miðilinn í annarlegum tilgangi. Erlent 19.1.2022 23:46
Nýjar myndir sýna eyðilegginguna á Tonga Stjórnvöld á eyjunni Tonga birtu myndir af eyðileggingu á eyjunni Tonga fyrr í dag eftir neðansjávareldgos sem hófst í Kyrrahafi síðustu helgi. Erlent 19.1.2022 19:05
Smitaðist viljandi af Covid og kafnaði á nokkrum mínútum Hana Horka, fræg þjóðlagasöngkona frá Tékklandi, lést á sunnudaginn eftir að hafa vísvitandi smitast af Covid-19. Fjöldi nýsmitaðra náði nýjum hæðum í Tékklandi í dag. Erlent 19.1.2022 14:36
Tveir handteknir eftir að kennari var myrtur á Írlandi Tveir karlmenn hafa verið handteknir í tengslum við morðið á Ashling Murphy, sem var myrt fyrir viku síðan þegar hún var úti að skokka í bænum Tullamor í Offaly sýslu á Írlandi. Erlent 19.1.2022 14:33
„Áhugaverður“ fundur kolefnis á Mars mögulega til marks um lífrænt ferli Við greiningu sýna af yfirborði Mars fann könnunarfarið Curiosity tegund kolefnis sem gjarnan er tengt við lífræn ferli. Það á í það minnsta við hér á jörðinni en þessi tegund kolefnis getur einnig myndast við ákveðin jarðfræðileg ferli. Erlent 19.1.2022 14:01
Höfuðpaur mansalshrings dæmdur vegna dauða 39 manna Dómstóll í Belgíu hefur dæmt víetnamskan mann, sem talinn er vera höfuðpaur mansalshrings, í fimmtán ára fangelsi vegna dauða 39 Víetnama sem létust af völdum súrefnisskorts í vöruflutningabíl sem fannst yfirgefinn í Essex í Bretlandi í október 2019. Erlent 19.1.2022 13:36
Eins og fimm hundruð kjarnorkusprengjur hafi sprungið í einu Vísindamenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) áætla að kraftur sprengigossins á Tonga hafi við til samræmis við að sprengja tíu megatonn af dínamíti. Það þýðir að sprengingin var álík því að sprengja fimm hundruð kjarnorkusprengjur eins og þeirri sem varpað var á Hiroshima við endalok seinni heimsstyrjaldarinnar. Erlent 19.1.2022 12:16
Segjast hafa umtalsverð sönnunargögn um lögbrot Starfsmenn ríkissaksóknara New York sögðust í gær hafa fundið umtalsverð sönnunargögn um að forsvarsmenn fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hefðu beitt sviksömum og villandi leiðum til að fá lán og greiða lægri skatta. Erlent 19.1.2022 09:47
Samflokksmenn Johnson sagðir leggja drög að hallarbyltingu Þingmenn breska Íhaldsflokksins eru sagðir leggja drög að því að koma forsætisráðherranum Boris Johnson frá. Framganga hans síðustu vikur og mánuði hefur grafið verulega undan trúverðugleika hans og samflokksmenn hans eru sagðir hafa fengið sig fullsadda. Erlent 19.1.2022 08:30
Reiknað með að tilkynnt verði um afléttingar í Englandi Búist er við því að Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, kynni afléttingar á sóttvarnatakmörkunum í Englandi síðar í dag. Erlent 19.1.2022 07:54
Vilja spyrja Giuliani spjörunum úr varðandi árásina á þinghúsið Bandaríska þingnefndin sem nú rannsakar árásina á þinghúsið í Washington í janúar í fyrra hefur nú stefnt Rudy Guiliani fyrir nefndina, en hann var um tíma persónulegur lögmaður Donalds Trump forseta. Erlent 19.1.2022 07:01
Bein útsending: Stórt smástirni þýtur hjá jörðinni Stórt smástirni fer tiltölulega nálægt jörðu í kvöld. Með því er átt við að það verður í tæplega tveggja milljóna kílómetra fjarlægð en það verður ekki aftur svo nærri í tvær aldir. Erlent 18.1.2022 19:31
Í skyndiferð til Úkraínu til að sýna stuðning Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun fara til Úkraínu á morgun. Þar mun hann hitta Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu, og ræða við hann um spennuna á landamærum Úkraínu annars vegar og Rússlands og Hvíta-Rússlands hins vegar. Erlent 18.1.2022 17:06
Flugfélög vara við óreiðu vegna 5G Forsvarsmenn bandarískra flugfélaga segja að ætlanir samskiptafyrirtækjanna Verizon og AT&T um að kveikja á 5G kerfi þeirra í vikunni muni valda gífurlegri óreiðu. Hætta þurfi við þúsundir flugferða og hagkerfi Bandaríkjanna muni bíða mikla hnekki. Erlent 18.1.2022 15:28
„Enginn sagði mér að þetta væri brot á reglunum“ Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir það rangt að hann hafi verið varaður við því að samkvæmi á Downingstræti væri brot á samkomutakmörkunum og sóttvarnarreglum. Ráðherrann hefur verið sakaður um að ljúga að þinginu um hvað hann vissi um samkvæmið sem haldið var í maí 2020. Erlent 18.1.2022 14:50
Skemmdirnar miklar og óttast að margir hafi dáið Tonga eyjaklasinn varð fyrir miklum skemmdum vegna stærðarinnar sprengigoss sem varð þar um helgina og flóðbylgju frá gosinu. Minnst eitt þorp gereyðilagðist og margar byggingar eru horfnar. Erindreki frá Tonga óttast að margir hafi dáið. Erlent 18.1.2022 12:17
Hyggjast lóga 2.000 hömstrum vegna Covid-smits Yfirvöld í Hong Kong hyggjast aflífa um það bil 2.000 hamstra eftir að SARS-CoV-2 fannst á ellefu dýrum í gæludýraverslun í borginni. Sýnin voru tekin af 178 dýrum verslunarinnar eftir að starfsmaður greindist með Covid-19. Erlent 18.1.2022 11:52
Töldu enga ógn stafa af gíslatökumanninum eftir rannsókn Leyniþjónusta Bretlands var með Malik Faisal Akram til rannsóknar árið 2020. Þar á bæ var komist að þeirri niðurstöðu að af honum stafaði engin ógn og því gat hann ferðast til Bandaríkjanna þar sem hann keypti sér byssu og tók fjóra gísla um síðustu helgi. Erlent 18.1.2022 11:24