Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
63 64 65 66 67 68 69 … 69 ›
Verðum að græða sárin "Við getum ekki unnið þessar kosningar," sagði John Kerry öldungadeildarþingmaður þegar hann viðurkenndi ósigur sinn í bandarísku forsetakosningunum í gær. Hann lagði áherslu á að hefjast þyrfti handa við að sætta landsmenn eftir þær deilur sem hafa klofið þá undanfarin misseri. Erlent 13.10.2005 14:54
Lýsir Bush yfir sigri? Búist er við að George Bush muni lýsa yfir sigri í forsetakosningunum í Bandaríkjunum innan stundar og ríkir sigurgleði í herbúðum hans. Samkvæmt útgönguspám hefur hann sigrað í Nevada og því hlotið 254 kjörmenn af þeim 270 sem þarf til að sigra. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush aftur framúr George W. Bush er kominn með 102 kjörmenn og John Kerry 77 samkvæmt spám flestra stóru sjónvarpsstöðvanna vestanhafs. ABC, CNN, Fox og NBC spá þessu allar. NBC telur hins vegar að Bush sé kominn með 108 kjörmenn en er sammála spánni um 77 kjörmenn Kerrys. Búast má við breytingum á næstu mínútum þegar kjörstaðir loka í fimmtán ríkjum. Erlent 13.10.2005 14:54
Munar átta kjörmönnum Litlu munar á kjörmannafjölda George W. Bush og John Kerry eftir að Kerry tryggði sér sigur í Pennsylvaníu, einu óvissuríkjanna sem barist var um, og Kaliforníu, ríkisins sem gefur af sér flesta kjörmenn og Kerry var sigurstranglegur í. Samkvæmt síðustu tölum NBC er Bush búinn að tryggja sér 207 kjörmenn en Kerry 199 kjörmenn. Erlent 13.10.2005 14:54
Breytingum hafnað í Colorado Kjósendur í Colorado höfnuðu tillögu um að breyta úthlutun kjörmanna ríkisins. Lagt var til að kjörmönnunum yrði úthlutað í samræmi við atkvæðahlutfall frambjóðenda en nú fær sigurvegarinn í ríkinu alla níu kjörmenn ríkisins, sem er sama fyrirkomulag og í öllum nema tveimur ríkjum Bandaríkjanna. Erlent 13.10.2005 14:54
Halda meirihluta á þingi Repúblikanar héldu meirihluta sínum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fimmtu kosningarnar í röð og juku reyndar við meirihlutann því þeir unnu fjögur sæti í Texas á kostnað demókrata. Þetta er í fyrsta sinn í meira en 70 ár sem repúblikanar eru í meirihluta í fulltrúadeildinni tólf ár í röð.</font /> Erlent 13.10.2005 14:54
Fox og NBC spá Bush sigri í Ohio Tvær sjónvarpsstöðvar, Fox og NBC hafa spáð George W. Bush sigri í Ohio. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki gert það sama. Mjög hefur dregið saman með Bush og Kerry í ríkinu, framan af var Bush með fimm prósentustiga forskot en það er komið niður í tvö prósent samkvæmt nýjustu tölum þegar 87 prósent atkvæða hafa verið talin. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush hugsanlega búinn að sigra Bush er hugsanlega búinn að tryggja sér sigur í forsetakosningunum. Samkvæmt samantekt AP er hann búinn að tryggja sér sigur í átján ríkjum með 170 kjördæmum og leiðir í ríkjum með 106 kjörmenn. Gangi þetta eftir er hann kominn með 276 kjörmenn en hann þarf 270 til að tryggja sér endurkjör. Erlent 13.10.2005 14:54
Meiri foringi en margur hyggur Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir sigur George W. Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum virðast mjög afgerandi. "Ég tel að þetta sé mikið afrek hjá honum og sýni að hann er meiri foringi en margur hyggur, sérstaklega í Evrópu," segir hann. Erlent 13.10.2005 14:54
Fjölmiðlar hafa varann á sér "Við viljum frekar vera síðust en að hafa rangt fyrir okkur," sagði Dan Rather hjá CBS og endurómaði þar þankagang margra sem vilja öðru fremur forðast að gera sömu mistök og fyrir fjórum árum þegar sjónvarpsstöðvarnar lýstu yfir sigri George W. Bush þegar raunin var sú að staðan var enn of jöfn til að hægt væri að spá fyrir um úrslit. Erlent 13.10.2005 14:54
Biðin gæti varað í vikur Úrslit eru ekki ráðin í forsetakosningunum í Bandaríkjunum en George Bush hefur hlotið meirihluta talinna atkvæða. Það gæti hins vegar tekið marga daga, jafnvel nokkrar vikur, að telja bráðabirgðaatkvæðin í Ohio þar sem úrslitin ráðast. Ingólfur Bjarni Sigfússon er í Washington og hefur fylgst með talningunni í alla nótt. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush 24 kjörmönnum frá endurkjöri George W. Bush er kominn með 246 kjörmenn eftir að hafa tryggt sér sigur í Colorado samvæmt spám bandarískra fjölmiðla. John Kerry er með 195 kjörmenn og þarf að bæta við sig 75 kjörmönnum meðan Bush dugar 24 í viðbót við þá sem hann virðist þegar hafa tryggt sér. Heldur hefur dregið saman með Bush og Kerry í Ohio. Erlent 13.10.2005 14:54
99 kjörmönnum frá endurkjöri George W. Bush hefur tryggt sér sigur í Louisiana og Mississippi samkvæmt þeim atkvæðum sem hafa þegar verið talin. Hann er því kominn með 171 kjörmann og þarf aðeins 99 til viðbótar til að tryggja sér endurkjör. Sigur hans í ríkjunum tveimur er í samræmi við skoðanakannanir sem birtust fyrir kosningar. Erlent 13.10.2005 14:54
Siðferðismál réðu miklu um úrslit Áhersla George W. Bush á siðferðismál og baráttu gegn hryðjuverkum virðist hafa átt stóran hlut í því að tryggja honum endurkjör sem forseti Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að fólk lýsti mikilli óánægju með stöðu efnahagsmála og að Íraksstríðið væri afar umdeilt gefa skoðanakannanir á kjördag til kynna að fólk hafi sett siðferðismál á oddinn. Erlent 13.10.2005 14:54
Hefjum tímabil vonar "Við hefjum nú tímabil vonar," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði þúsundir stuðningsmanna sinna sem fögnuðu endurkjöri hans í Ronald Reagan-byggingunni í Washington. Erlent 13.10.2005 14:54
Ræðst í Ohio Ætli John Kerry sér að verða forseti verður hann að vinna í Ohio, sagði Tim Russert, stjórnandi stjórnmálaþáttarins Meet the Press í kosningasjónvarpi NBC sjónvarpsstöðvarinnar. Hann benti á að baráttan réðist í níu ríkjum, fjórum sem George W. Bush vann síðast og fimm sem Al Gore vann. Til að vinna verði Kerry að ná einu þeirra af Bush. Erlent 13.10.2005 14:54
Getum beðið eina nótt enn "Þetta hefur verið löng nótt. En við höfum beðið fjögur ár eftir þessum sigri og getum beðið eina nótt enn," sagði John Edwards, varaforsetaefni demókrata, þegar hann lýsti því yfir að hann og John Kerry ætluðu sér að sjá til þess að hvert einasta atkvæði yrði talið. Það er því ljóst að demókratar ætla ekki að lýsa yfir ósigri. Erlent 13.10.2005 14:54
Kerry vann Pennsylvaníu John Kerry hefur tryggt sér sigur í Pennsylvaníu, einu þriggja stóru ríkjanna sem hann og George W. Bush lögðu mesta áherslu á að vinna. Þegar 59 prósent atkvæða hafa verið talin er er Kerry með 58 prósent atkvæða en Bush með 42 prósent. Erlent 13.10.2005 14:54
Nótt hinna röngu vísbendinga Nótt hinna röngu vísbendinga væri réttnefni á kosninganóttinni sem nú er að baki. Sjaldan eða aldrei hafa álitsgjafar og sérfræðingar oftúlkað og rangtúlkað þær vísbendingar sem þeir hafa haft til að vinna úr jafn mikið. Erlent 13.10.2005 14:54
Uppstokkun yfirvofandi í BNA George W. Bush fékk endurnýjað umboð hjá bandarísku þjóðinni til að gegna embætti forseta landsins. Þarlendur stjórnmálafræðingur telur að repúblikönum hafi gengið betur að fá fólk á kjörstað en demókrötum. Uppstokkun er í aðsigi í ríkisstjórn landsins. Erlent 13.10.2005 14:54
Bush spáð sigri í Flórída George W. Bush sigrar í Flórída samkvæmt spá CBS og ABC og heldur þar með kjörmönnunum 27 sem hann fékk þar fyrir fjórum árum. CNN, Fox og NBC hafa hins vegar ekki enn spáð fyrir um sigurvegara í ríkinu sem Bush verður að halda til að ná endurkjöri. Erlent 13.10.2005 14:54
Kjörsókn aldrei meiri Kjörsókn í bandarískum forsetakosningum hefur aldrei verið meiri. Miklar raðir mynduðust við kjörstaði og þurftu sumir kjósendur að bíða í um níu klukkustundir. Talið er að allt að 120 milljónir kjósenda hafi nýtt sér kosningarétt sinn, sem er jafnmikið eða meira hlutfallslega en á metárinu 1960. Erlent 13.10.2005 14:54
271 öruggur og líklegur kjörmaður George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur tryggt sér 193 kjörmenn samkvæmt samantekt AP-fréttastofunnar og leiðir í ríkjum þar sem barist er um 78 kjörmenn. Samkvæmt þessu er hann með 271 öruggan og líklegan kjörmann og því á leið með að fá einum kjörmanni fleira en þarf til að tryggja sér sigur. Erlent 13.10.2005 14:54
Víða kosið fram yfir lokunartíma Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, þeirra á meðal Flórída, Ohio og Pennsylvaníu er fólk enn að kjósa þrátt fyrir að kjörstaðir hafi átt að loka fyrir 45 og 75 mínútum síðan. Ástæðan er sú að langar biðraðir eru við kjörstaði, reglur kveða á um að þeir sem komnir eru í röð fái að kjósa og því getur verið að kjörstaðir loki nokkrum klukkutímum of seint Erlent 13.10.2005 14:54
New Hampshire skiptir um lit John Kerry virðist hafa tryggt sér sigur í New Hampshire. Þar með hefur það gerst í fyrsta skipti í þessum kosningum að ríki sem kaus George W. Bush fyrir fjórum árum hafi ekki kosið hann nú. Hins vegar hefur Bush enn sem komið er ekki tryggt sér sigur í neinu þeirra ríkja sem Al Gore sigraði í fyrir fjórum árum. Erlent 13.10.2005 14:54
Kerry spáð sigri í Wisconsin CNN-sjónvarpsstöðin spáði John Kerry sigri í Wisconsin-ríki nú fyrir stundu. Tíu kjörmenn eru þar í boði og ef rétt reynist er Kerry kominn með 252 kjörmenn en Bush 254. Hin ríkin þrjú þar sem enn er beðið niðurstöðu eru Ohio (20 kjörmenn), Iowa (7) og Nýja-Mexíkó (5). Erlent 13.10.2005 14:54
Ríkin sem Bush og Kerry unnu Þegar úrslit eru ráðin í öllum nema fjórum ríkjum er George W. Bush með 254 kjörmenn en John Kerry kominn með 242 kjörmenn. Úrslitin ráðast því af niðurstöðum í fjórum ríkjum, einkum því stærsta þeirra Ohio þar sem munurinn er minni en svo að flestir fjölmiðlar treysti sér til að spá Bush Bandaríkjaforseta sigri. Erlent 13.10.2005 14:54
Ómögulegt að spá um úrslit Einhverjar mest spennandi forsetakosningar í manna minnum fara fram í Bandaríkjunum í dag. Mikil óvissa ríkir og fréttaskýrendum hefur reynst ómögulegt að spá um útkomuna. Mikill hiti er í frambjóðendum og er talið að þeir Bush og Kerry muni rjúfa þá hefð að vera ekki með áróður á kjördag. Erlent 13.10.2005 14:54
Stefnir í metkjörsókn Það stefnir í metkjörsókn í forsetakosningunum í Bandaríkjunum og langar raðir eru við kjörstaði nú á kosningadaginn. Athygli manna beinist einkum að örlitlu broti kjósenda. Erlent 13.10.2005 14:54
Mikilvægustu kosningar sögunnar Mikilvægustu kosningar í bandarískri stjórnmálasögu eru hafnar. Búist er við að metfjöldi kjósenda nýti sér kosningarétt sinn í dag til að segja skoðun sína á því hver verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur ár. Ingólfur Bjarni Sigfússon skrifar frá Washington. Erlent 13.10.2005 14:54