Úkraína
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 79 ›
Fraktflutningavél með átta farþega hrapaði í Grikklandi Fraktflutningavél á leiðinni frá Serbíu til Jórdaníu hrapaði í Grikklandi fyrr í kvöld. Átta manns voru um borð í vélinni þegar hún brotlenti. Erlent 16.7.2022 22:56
Úkraínska þjóðin syrgir hina fjögurra ára Lísu sem Rússar myrtu í gær Hin fjögurra ára gamla Lísa hefur verið nafngreind sem ein af þeim sem féll í eldflaugaárás frá rússneskum kafbáti á borgina Vinnytsia í Úkraínu í gær. Forseti Úkraínu krefst þess að Rússland verði formlega skilgreint sem hryðjuverkaríki. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 15.7.2022 19:24
Breskur hjálparstarfsmaður lést í haldi Rússa Paul Urey, breskur hjálparstarfsmaður sem handsamaður var af sveitum rússneskra aðskilnaðarsinna í Úkraínu, er dáinn. Hann er sagður hafa látið lífið í haldi Alþýðulýðveldisins Donetsk og er hann sagður hafa dáið vegna veikinda og álags. Erlent 15.7.2022 16:38
Stjórnmálamenn og almennir borgarar handsamaðir og pyntaðir Hundruð Úkraínumanna er haldið föngum á hernumdum svæðum landsins, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Bæði er um að ræða stjórnmálamenn og almenna borgara. Einn pólitíkus sagði í samtali við BBC að hann hefði verið handsamaður af rússneska hernum og beittur vatnspyntingum. Erlent 15.7.2022 08:39
Rússar skutu eldflaug á almenna borgara Tuttugu og einn almennur borgari féll, þeirra á meðal þrjú börn, þegar Rússar skutu eldflaug á borgina Vinnytsia og um hundrað manns særðust. Yfirmaður rússneska sjónvarpsins segir eldflauginni hafa verið miðað á húsakynni nasista í borginni. Erlent 14.7.2022 19:41
Minnst tuttugu og tveir borgarar féllu í eldflaugaárás Minnst 22 létu lífið og rúmlega hundrað særðust er rússneskar eldflaugar lentu í borginni Vinnitsía, sem liggur suðvestur af Kænugarði. Ráðamenn í Úkraínu segja eldflaugunum hafa verið skotið frá kafbáti í Svartahafi og segja Rússa vísvitandi hafa gert árás á óbreytta borgara. Ekkert hernaðarlegt skotmark hafi verið á svæðinu. Erlent 14.7.2022 16:55
Everton styrkir fórnarlömb stríðsins í Úkraínu með góðgerðarleik Everton mun spila vináttuleik við úkraínska liðið Dynamo Kyiv þann 29. júlí næstkomandi í undirbúningi sínum fyrir komandi leiktímabil. Enski boltinn 14.7.2022 08:36
Samkomulag í höfn um útflutning kornvöru Stjórnvöld í Tyrklandi segja samkomulag hafa náðst við Úkraínu, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar um útflutning kornvöru frá Úkraínu. Að sögn varnarmálaráðherrans Hulusi Akar verður samkomulagið undirritað í næstu viku. Erlent 14.7.2022 07:23
Borgarfulltrúi handtekinn í Moskvu vegna andstöðu við stríðið Saksóknari í Rússlandi lagði í dag fram ákæru á hendur Ilya Yashin borgarfulltrúa í Moskvu skömmu áður en láta átti hann lausan úr 15 daga varðhaldi fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Erlent 13.7.2022 22:09
Kuleba segir Rússa spila út hungurspilinu til að knýja fram afléttingu refsiaðgerða Utanríkisráðherra Úkraínu segir engan grundvöll til friðarviðræðna við Rússa fyrr en þeir láti af hernaði sínum í landinu. Þá verði að tryggja öruggar siglingar fyrir útflutning á korni um Svartahaf en í dag spili Rússar út hungurspilinu til að þrýsta á Vesturlönd að aflétta refsiaðgerðum þeirra. Erlent 13.7.2022 12:00
Úkraínuforseti gagnrýnir að látið sé undan hryðjuverkaríki Úkraínuforseti gagnrýnir Kanadamenn harðlega fyrir að ætla að skila túrbínu úr Nord Stream eitt gasleiðslu Rússa, sem þar var í viðgerð, og segir það brot á refsiaðgerðum. Herinn í Úkraínu segist hafa eytt hergagnabirgðastöð Rússa með nýlega fengnum eldflaugum frá Bandaríkjamönnum. Erlent 12.7.2022 19:21
„Leikmenn munu fara í loftvarnarbyrgi meðan loftárásir standa yfir“ Úkraínska úrvalsdeildin í fótbolta karla mun fara af stað á nýjan leik í ágúst samkvæmt tilkynningu Vadym Gutzeit, ráðherra æsku og íþrótta í landinu. Það virðist sem Úkraínumenn ætli ekki að láta innrás Rússa stöðva sig í að sparka bolta sín á milli. Fótbolti 12.7.2022 09:01
Segir milljón manna her munu hrekja Rússa frá suðurströndinni Úkraínumenn hyggjast láta milljón manna her, vopnaðan hergögnum frá Vesturlöndum, hrekja Rússa aftur frá hernumdum svæðum landsins. Þetta segir varnarmálaráðherrann Oleksii Reznikov. Erlent 11.7.2022 10:23
Stjórnvöld í Úkraínu hvetja íbúa að flýja fyrir gagnárás í Kherson og Zaporizhzhia Stjórnvöld í Úkraínu hafa varað íbúa í Kherson og Zaporizhzhia við yfirvofandi gagnsókn á svæðinu og hvatt þá til að flýja. Svæðin eru nú á valdi Rússa en Úkraínumenn hyggjast freista þess að ná þeim aftur á næstu dögum og vikum. Erlent 11.7.2022 08:45
Hefur áhyggjur af samfylkingu Rússa og Kínverja Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist hafa áhyggjur af nánu sambandi Rússa og Kínverja. Hann átti fimm tíma fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Indónesíu í gær. Erlent 10.7.2022 21:07
Fimmtán látnir eftir sprengingu á fjölbýlishús Að minnsta kosti fimmtán létust og fleiri særðust í sprengjuárás Rússa á fjölbýlishús í borginni Khasiv Yak í austurhluta Úkraínu. Erlent 10.7.2022 12:39
Kanada skili rússneskri túrbínu til Þýskalands Volodymyr Zelenskiy, forseti Úkraínu hefur sagt upp sendiherrum landsins í Þýskalandi, Indlandi, Tékklandi, Noregi og Ungverjalandi í skugga deila við Þýskaland. Erlent 9.7.2022 23:04
Senda fleiri HIMARS og nákvæmari skot til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri vopnakerfi og nákvæm skotfæri til Úkraínu. Bæði er um að ræða eldflaugakerfi af gerðinni HIMARS, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð, og 155 mm skot í fallbyssur sem hægt er að skjóta af mun meiri nákvæmni en hefðbundnum stórskotaliðsskotum. Erlent 8.7.2022 23:15
Segir Sievieródonetsk á barmi mannúðarhörmunga Ástandið í hinni hersetnu Sievieródonetsk „er á barmi mannúðarhörmunga,“ segir Serhai Haidai, ríkisstjóri Lúhansk í Úkraínu. Hann segir ekkert miðlægt vatnsveitu-, gasveitu- eða rafveitukerfi í borginni, um 80 prósent alls húsnæðis hafi verið eyðilagt og að Rússar fari ránshendi um borgina. Erlent 8.7.2022 08:21
Segir Rússa rétt að byrja í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar séu að „rétt að byrja“ í Úkraínu. Þetta sagði hann í samtali við rússneska þingmenn í dag og manaði hann einnig Vesturlönd til að reyna að sigra Rússland á vígvellinum. Erlent 7.7.2022 21:31
Rússar halda uppi stöðugum árásum á íbúðahverfi Rússar halda uppi stöðugum árásum á borgir og bæi í Donetsk héraði í austurhluta Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir landsins sækja fram í suðurhlutanum og langþráð þungavopn frá Vesturlöndum hafi náð að valda miklu tjóni hjá rússneska innrásarliðinu. Erlent 7.7.2022 19:21
Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk. Erlent 7.7.2022 08:03
Rússar byrjaðir að innlima hluta Úkraínu í Rússland Rússar beita öllum hernaðarmætti sínum þessa dagana til að ná Donetsk héraði á sitt vald og hefur héraðsstjórinn þar skorað á íbúa að flýja til vesturs. Evrópusambandið býst við að Rússar skrúfi brátt alfarið fyrir gas til aðildarríkjanna. Erlent 6.7.2022 19:21
Rússar gerðu loftárásir um alla Úkraínu í gærkvöldi Loftvarnaflautur hljómuðu um alla Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Héraðsstjórinn í Donetsk héraði hefur skorað á alla íbúa héraðsins að flýja í vesturátt undan stórskotaliðs- og loftárásum Rússa. Erlent 6.7.2022 11:50
Enn hart barist í Lysychansk og fólk hvatt til að flýja Ríkisstjóri Donetsk-héraðs hefur hvatt um 350 þúsund íbúa héraðsins til að flýja í ljósi yfirvofandi rússneskrar sóknar. Hann segir enn hart barist í útjaðri Lysychansk. Erlent 6.7.2022 10:35
Haldlögðu rússneskt skip sem er sagt flytja stolið korn Tyrkir hafa lagt hald á skip sem siglir undir rússneskum fána vegna gruns um að sjö þúsund tonn af korni sem það flytur séu stolin af Úkraínumönnum. Erlent 5.7.2022 14:07
Fyrirskipar hernum að halda sókninni áfram Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað varnarmálaráðherra sínum að halda áfram sókn rússneska hersins í Úkraínu eftir að borgin Lysychansk féll í þeirra hendur. Erlent 5.7.2022 08:02
Lýsa aðstæðum sem „helvíti á jörðu“ Úkraínskir hermenn eru að koma sér fyrir í nýjum varnarstöðum í austurhluta landsins eftir að Rússar náðu tökum á síðustu borg Luhansk-héraðs. Lysychansk féll i hendur Rússa um helgina og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti í dag yfir sigri í Luhansk. Erlent 4.7.2022 22:01
Lysychansk fallin í hendur Rússa Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra. Erlent 4.7.2022 07:19
Sex látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á Slóvíansk Að minnsta kosti sex eru látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Árásin er sú stærsta sem borgin hefur þurft að þola til þessa segir bæjarstjóri borgarinnar. Erlent 3.7.2022 14:21