Úkraína
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 79 ›
Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna. Innlent 8.6.2023 19:31
Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8.6.2023 14:45
Utanríkisráðherra segir lítinn sóma af niðurstöðu Alþingis Utanríkisráðherra segir ekki mikinn sóma af því að Alþingi hafi ekki framlengt niðurfellingu tolla á innflutningi landbúnaðarvöru frá Úkraínu. Þetta hafi verið mikilvægur stuðningur við Úkraínu sem reki efnahagskerfi sitt núna á þrjátíu prósenta afköstum. Innlent 8.6.2023 12:18
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43
600 ferkílómetrar undir vatni og jarðsprengjur á víð og dreif Um 600 ferkílómetrar lands eru nú undir vatni eftir að Kakhova-stíflan í Dnipro-ánni í Úkraínu brast í fyrradag. Þetta segir héraðsstjórinn í Kherson en 68 prósent tjónsins er þó á austurbakkanum, landi sem Rússar hafa stjórn á. Erlent 8.6.2023 07:17
Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7.6.2023 11:30
Eyðilegging stíflunnar hefur alvarleg áhrif á líf fjölda fólks til framtíðar Alls hafa um fjörutíu þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín eftir að Kakhovka stíflan í Úkraínu brast í fyrrinótt. Erlent 7.6.2023 07:48
Árás á stífluna „umhverfislegt gjöreyðingarvopn“ Úkraínuforseti hefur sakað Rússa um að hafa sprengt stíflu í Kherson-héraði af ásettu ráði og segir þá hafa beitt „umhverfislegu gjöreyðingarvopni“ og framið stríðsglæp. Erlent 6.6.2023 23:05
Vissu af áætlun Úkraínumanna um árás á Nord Stream Yfirvöld í Bandaríkjunum fengu í júní í fyrra upplýsingar frá evrópskri leyniþjónustu um að Úkraínumenn hefðu skipulagt árás á Nord Stream gasleiðslurnar. Þremur mánuðum síðar, eða þann 22. september, sprungu sprengjur við Nord Stream 1 og 2 en skemmdarverkinu hefur verið lýst sem bíræfni árás á orkuinnviði Evrópu. Erlent 6.6.2023 16:48
Hryllilegt að sjá afleiðingarnar sem birtast strax Íbúasvæði í Kherson í Úkraínu eru á floti eftir að stór stífla brast og þúsundir þurfa að flýja heimili sín. Utanríkisráðherra segir hryllilegar afleiðingar þegar komnar í ljós og ljóst að Rússland Pútíns muni ekki stoppa fyrr en það verður stöðvað. Innlent 6.6.2023 12:16
Yfirborð uppistöðulónsins var í methæðum Raforkuverið við Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson er ónýtt eins og stíflan og er útlit fyrir að sprenging hafi valdið skemmdunum. Íbúar segjast hafa heyrt sprengingar en enn hefur ekki verið staðfest hvað olli því að stíflan brast. Yfirborð uppistöðulónsins hafði hækkað mjög að undanförnu og stóð í methæðum. Erlent 6.6.2023 10:46
Unnið að rýmingu og Selenskí boðar til neyðarfundar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur boðað til neyðarfundar vegna eyðileggingar Nova Kakhovka-stíflunnar í Kherson. Unnið er að rýmingu vegna flóðahættu. Úkraínuher segir Rússa hafa sprengt stífluna en leppstjórn þeirra á svæðinu segir um hryðjuverk að ræða. Erlent 6.6.2023 06:19
Er gagnsókn Úkraínumanna hafin? Úkraínumenn eru byrjaðir að gera árásir í suðausturhluta Úkraínu. Fregnir hafa borist af tiltölulega smáum árásum í Dónetsk- og Sapórisjía-héruðum og eru Úkraínumenn sagðir hafa náð einhverjum árangri. Erfitt er þó að sannreyna fregnirnar að svo stöddu. Erlent 5.6.2023 14:54
Málaliðar Wagner handsömuðu og börðu rússneskan ofursta Málaliðar Wagner Group lentu á dögunum í skotbardaga við rússneska hermenn nærri Bakhmut. Bardaginn endaði með því að málaliðarnir handsömuðu rússneskan undirofursta, börðu hann og þvinguðu hann til að játa að hafa skipað mönnum sínum að skjóta á málaliðana. Erlent 5.6.2023 12:45
Rússar segjast hafa fellt 250 úkraínska hermenn Rússar segjast hafa hrundið stórri gagnárás úkraínska hersins í Donetsk í nótt og fullyrða að 250 úkraínskir hermenn liggi í valnum og að fjölmörg brynvarin tæki hafi verið eyðilögð. Erlent 5.6.2023 07:37
Úkraínumenn þjarma að Wagner-lausum Rússum í Bakhmut Úkraínski herinn þjarmar að Rússum við og í kringum borgina Bakhmut. Rússar lýstu sig sigurvegara í baráttunni um Bakhmut í síðasta mánuði eftir ein blóðugust átökin frá upphafi innrásarinnar. Þrýstingur Úkraínumanna er hluti af gagnsókn sem er að taka á sig mynd. Erlent 4.6.2023 08:09
Úkraínumenn tilbúnir til að hefja gagnsóknina Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn tilbúna til gagnsóknar gegn Rússum. Hann segir að sóknin verði erfið og kostnaðarsöm en hann hafi trú á því að hún muni heppnast, þó hún gæti tekið langan tíma. Erlent 3.6.2023 09:22
Umfangsmikil eldflaugaárás á Kænugarð í morgun Íbúar um gervalla Úkraínu vöknuðu upp við loftvarnaflautur snemma í morgun vegna umfangsmikillar árásar Rússa og fólki sagt að leita skjóls. Erlent 2.6.2023 06:35
Úkraínuforseti segir stund ákvarðana runna upp Forseti Úkraínu segir Evrópuríki sem eiga landamæri að Rússlandi einungis hafa um tvennt að velja; opið stríð og hægfara hernám Rússa eða aðild að NATO og Evrópusambandinu. Nú væri stund ákvarðana varðandi aðild landsins að þessum samtökum runnin upp. Forsætisráðherra segir mikinn vilja meðal NATO ríkja að leiðtogafundur þess marki tímamót varðandi Úkraínu. Erlent 1.6.2023 19:20
Táknrænt stefnumót Evrópuleiðtoga á stríðstímum Forseti Úkraínu sagði við komuna á fund Evrópuleiðtoga í Moldóvu í dag að mikilvægt væri að Úkraína fengi aðild bæði að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fundinn mikilvægan vettvang á átakatímum. Innlent 1.6.2023 12:11
Ellefu ára stúlka í hópi látinna í eldflaugaárás á Kænugarð Ellefu ára stúlka, 34 ára móðir hennar og önnur 33 ára kona létust í eldflaugaárásum Rússa í Kænugarð snemma í morgun. Auk þess særðust tólf manns í árásunum. Erlent 1.6.2023 07:37
Hlynnt því að framlengja tollfrelsi úkraínskra vara Forsætisráðherra telur það skynsamlegt að framlengja tollfrjálsan innflutning úkraínskra vara. Efasemdir eru þó uppi um ágæti innflutningsins. Bráðabirgðaákvæði sem heimilar innflutninginn rennur út á morgun. Innlent 30.5.2023 19:01
Segir árásina á Moskvu vera hryðjuverk Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að drónaárás á Mosvku í morgun sé hryðjuverk. Árásinni hafi verið ætlað að hræða Rússa og ögra Rússum til að bregðast við með sambærilegum hætti. Erlent 30.5.2023 18:51
Vill strangara eftirlit með úkraínsku kjöti vegna sýklalyfjaónæmra baktería Bráðabirgðaákvæði sem heimilar tollfrjálsan innflutning vara frá Úkraínu rennur út í lok morgundagsins. Læknir segir að þó innflutningurinn hafi mikil áhrif á íslenskan markað megi ekki gleyma lýðheilsusjónarmiðum. Bakteríur, sem meðal annars eru ónæmar fyrir sýklalyfjum og hafa hingað til verið óþekktar hér á landi, finnist í miklu magni í úkraínsku kjöti. Innlent 30.5.2023 11:25
Drónaárásir á Kænugarð og Moskvu í nótt Drónaárásir voru gerðar á Kænugarð í Úkraínu og Moskvu í Rússlandi í nótt. Einn lést og nokkrir særðust í Kænugarði, þar sem hermálayfirvöld sögðust hafa skotið niður yfir 20 dróna. Erlent 30.5.2023 06:41
Bylgja drónaárása á Kænugarð Í nótt gerðu Rússar enn sprengjuárásir með notkun dróna á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Erlent 29.5.2023 08:36
Engin ákvörðun um úrsögn úr hnefaleikasambandi en fylgst með Hnefaleikaheimurinn logar þessa stundina. Alþjóða hnefaleikasambandið, IBA, er undir járnhæl rússnesks formanns sem styður Pútín og Bandaríkjamenn hafa stofnað eigin samband. Íslendingar fylgjast með. Sport 28.5.2023 09:00
Stór drónaárás á Kænugarð í nótt Rússar gerðu stóra drónaárás á höfuðborgina Kænugarð í nótt. Loftvarnarkerfi skaut hins vegar niður meirihlutann. Erlent 28.5.2023 07:55
Bretar viðurkenna Holodomor sem þjóðarmorð Neðri deild breska þingsins hefur samþykkt tillögu þess efnis að Holodomor verði viðurkennt sem þjóðarmorð. Allt að fimm milljónir Úkraínumanna sultu til bana á fjórða áratugnum vegna gjörða sovéska ríkisins. Erlent 26.5.2023 11:13
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: F-16 engin töfralausn fyrir Úkraínumenn Úkraínumenn hafa ekki enn byrjað hina umtöluðu vorsókn gegn Rússum í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa tekið Bakhmut en óljóst er hvort þeir hafi burði til að sækja áfram fram og útlit er fyrir að Úkraínumenn fái F-16 herþotur. Erlent 26.5.2023 08:01