Stj.mál
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 187 ›
Niðurlægði þingflokk Samfylkingarinnar Guðjón Ólafur Jónsson, þingmaður Framsóknarflokksinsk segir fá eða engin dæmi um að formaður flokks hafi niðurlægt þingmenn sína með þeim hætti sem formaður Samfylkingarinnar hafi gert í ræðu á flokkstjórnarfundi flokksins um helgina, þegar hún sagði þjóðina ekki treysta þingflokknum. Innlent 5.12.2006 12:17
Talsmaður neytenda leggst gegn því að OV og Rarik fari undir Landsvirkjun Talsmaður neytenda leggst gegn því að eignarhlutur ríkisins í Orkubúi Vestfjarða og Rafmagnsveitu ríkisins verði fluttur undir Landsvirkjun eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi sem nú er til umfjöllunar á Alþingi. Þetta kemur fram í umsögn hans til iðnaðarnefndar vegna málsins. Innlent 5.12.2006 11:34
Krefjast stefnubreytingar í umferðarmálum Neytendasamtökin krefjast stefnubreytingar í umferðarmálum af hálfu ráðamanna landsins með það að markmiði að auka umferðaröryggi og fækka hörmulegum slysum og örkumlum á vegunum. Innlent 5.12.2006 11:10
Segja vinnubrögð ekki hafa verið óeðlileg Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Árborg hafna þeim fullyrðingum tveggja bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins í bæjarfélaginu að óeðlileg vinnubrögð hafi átt sér stað við þá beiðni Eðalhúsa að fá auglýsta tillögu sína um deiliskipulag svokallaðs Sigtúnsreits. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá bæjarfulltrúunum í kjölfar fréttar á Stöð 2 í gærkvöld. Innlent 5.12.2006 10:27
Einkaframkvæmd komi til greina ef hún flýti fyrir framkvæmdum Sturla Böðvarsson samgönguráðherra sagði á Alþingi í dag að hann teldi koma til greina að fela einkaaðilum að tvöfalda Suðurlandsveg ef það yrði til að flýta framkvæmdum við hann. Þetta kom fram í svari hans til Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, sem spurðist fyrir um stefnu stjórnvalda í málefnum Suðurlandsvegar. Innlent 4.12.2006 16:25
Heppilegra hefði verið að hafa meira samráð við utanríkismálanefnd Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að betra og heppilegra hefði verið að hafa meira samráð við utanríkismálanefnd þegar ákveðið var að styðja innrásina í Írak árið 2003 en hins vegar telur hann að ákvörðunin hafi verið rétt miðað við þær upplýsingar sem lágu fyrir á þeim tíma. Innlent 4.12.2006 15:52
Segir Margréti hafa búið til ágreining um innflytjendamál Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, segir Margréti Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra flokksins, hafa búið til ágreining um málefni innflytjenda í flokknum til að búa í haginn fyrir slag um formennsku eða varaformennsku í flokknum. Innlent 4.12.2006 12:08
Um 16 þúsund erlendir ríkisborgarar starfandi á landinu Um 16 þúsund erlendir ríkisborgarar starfa hér á landi um þessar mundir samkvæmt svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. Innlent 4.12.2006 11:56
Ölgerðin varar við hugmyndum um hækkun áfengisgjalds Fyrirhugaðar breytingar á áfengisgjaldi og virðisaukaskatti á áfengi munu hafa í för með sér stórfelldar verðhækkanir á áfengi að óbreyttu að mati Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Bendir fyrirtækið á að með fyrirhuguðum lagabreytingum standi tekjur ríkissjóðs ekki í stað heldur munu aukast sem sé öfugt við það sem haft hafi verið eftir fjármálaráðherra í fjölmiðlum. Innlent 1.12.2006 12:56
Segir uppsögn Margrétar fullkomlega eðlilega Uppsögn Margrétar Sverrisdóttir, framkvæmdastjóra Frjálslynda flokksins, í gærkvöld var fullkomlega eðlileg, segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins. Hann vísar því á bug að uppsögnin tengist gagnrýni Margrétar á Jón Magnússon og innlegg hans um málefni innflytjenda. Margrét ætlar þrátt fyrir allt að taka sæti á lista flokksins ef hún nær því í forvali. Innlent 1.12.2006 12:07
Ölfus og OR sýni náttúruperlum nærgætni Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar vill að Sveitarfélagið Ölfus og Orkuveita Reykjavíkur gangi af virðingu og nærgætni um náttúruperlur Hengilssvæðisins í skipulagsmálum og framkvæmdum næstu ára. Þetta kemur fram í ályktun frá bæjarfélaginu. Innlent 1.12.2006 09:29
Frjálslyndir sækja á samkvæmt könnun Gallups Frjálslyndi flokkurinn fengi ellefu prósent atkvæða ef kosið yrði til Alþingis núna, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Fylgisaukning frjálslyndra virðist vera á kostnað Sjálfstæðisflokksins sem tapaði sex prósenta fylgi frá síðustu könnun, en aðrir flokkar standa nokkurn veginn í stað. Innlent 1.12.2006 07:53
Margréti sagt upp hjá Frjálsynda flokknum Margréti Sverrisdóttur, framkvæmdastjóra þingflokks Frjálslyndaflokksins, var í gærkvöldi sagt upp starfinu en hún er jafnframt framkvæmdastjóri flokksins sjálfs. Innlent 1.12.2006 07:02
Störfum vegna hugbúnaðargerðar hjá ríkinu fjölgar um nærri 15 prósent Stöðugildum vegna hugbúnaðargerðar innan ríkisstofnana hefur fjölgað um nærri fimmtán prósent á tveimur árum samkvæmt könnun sem ráðgjafafyrirtækið Intellecta gerði fyrir Samtök iðnaðarins og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Innlent 30.11.2006 16:05
Vinstri - grænir kæra sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun Borgarfulltrúar Vinstri - grænna hafa lagt fram kæru til félagsmálaráðuneytisins vegna sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun og farið fram á það að samþykki borgarstjórnar á sölu hlutarins verði fellt úr gildi. Innlent 30.11.2006 14:56
Matarskattsfrumvarp á dagskrá Alþingis í dag Frumvarp ríkisstjórnarinnar um matarskattinn er á dagskrá Alþingis í dag. Frumvarpið er í samræmi við tillögur ríkisstjórnarinnar frá 9. október um að lækka matarverð. Virðisaukaskattur lækkar úr fjórtán prósentum í sjö þann 1. mars og vörugjöld af öðru en sykri og sætindum falla niður. Innlent 30.11.2006 12:14
Jón tekur Íraksmálið ekki upp í ríkisstjórn Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, hyggst ekki taka upp Íraksmálið í ríkisstjórn og segir of mikið lesið úr orðum sínum á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins um síðustu helgi. Hart var deilt á ríkisstjórnina vegna málsins á þingi í dag. Innlent 30.11.2006 11:12
Lóðarmál í Norðlingaholti tekið upp á fundi borgarráðs Samfylkingin hyggst kalla eftir upplýsingum og svörum borgarstjóra á fundi borgarráðs í dag í tengslum við kaup borgarinnar á fjögurra hektara svæði í Norðlingaholti á 208 milljónir króna. Innlent 30.11.2006 10:06
Ríkið leggi sitt af mörkum vegna almenningssamgangna Ársfundur Strætós bs. og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skora á ríkisvaldið að leggja sitt af mörkum til að bæta rekstrarskilyrði almenningssamgangna og minnka þær álögur sem lagðar eru á starfsemina. Innlent 29.11.2006 16:56
Ríkið í mál við olíufélögin Dómsmálaráðuneytið hefur falið Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni að höfða skaðabótamál á hendur stóru olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs á tíunda áratug síðustu aldar. Vilhjálmur sagði í samtali við fréttastofu að krafan varðaði einkum meint samráð vegna útboða á olíuvörum fyrir Landhelgisgæsluna og lögregluembættin í landinu en sagði kröfugerð ekki hafa verið mótaða Innlent 29.11.2006 16:29
Vilja að afgreiðslu RÚV-frumvarps verði frestað Stjórn Alfreðs, félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík suður, skorar á forystumenn Framsóknarflokksins að fresta afgreiðslu frumvarps um Ríkisútvarpið um óákveðinn tíma eða á meðan málið er rætt betur innan flokksins. Innlent 29.11.2006 14:21
Íslendingar taka upp stjórnmálasamband við Líberíu Íslendingar hafa tekið upp stjórnmálasamband við Afríkuríkið Líberíu. Fastafulltrúar landanna hjá Sameinuðu þjóðunum undirrituðu yfirlýsingu þess efnis í New York í gær. Líbería er í Vestur-Afríku með strönd að Atlantshafi og þar búa um 3,5 milljónir manna. Innlent 29.11.2006 13:58
Hægt að stöðva framkvæmdir fyrirtækja ef starfsmannaleigur veita ekki upplýsingar Samkvæmt nýju frumvarpi félagsmálaráðherra verður hægt að stöðva framkvæmdir hjá fyrirtækjum ef starfsmannaleigur sem þau skipta við sinna ekki upplýsingaskyldum sínum. Innlent 29.11.2006 12:11
Framsóknarráðherra lét hlera síma sjálfstæðismanna Sjálfstæðismenn töldu að símar forystumanna Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaðsins og Vísis væru hleraðir á fjórða áratug síðustu aldar, í tíð vinstristjórnar sem þá var við völd. Maðurinn sem sagður er hafa flett ofan af þessum meintu hlerunum var Bjarni Benediktsson, sem seinna átti eftir að fyrirskipa hleranir á símum vinstrimanna þegar hann varð dómsmálaráðherra. Innlent 29.11.2006 12:18
Aukin framlög til endurreisnar og þróunar í Afganistan Íslensk stjórnvöld hyggjast auka framlög til endurreisnar- og þróunarverkefna í Afganistan auk þess sem standa á að flugflutningum í þágu þeirra bandalagsríkja sem hafa liðsafla í sunnanverðu Afganistan. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem lauk í Ríga í Lettlandi í dag. Innlent 29.11.2006 11:47
Viðræður við Dani og Kanadamenn um samstarf hefjast á næstu vikum Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra átti í morgun fund með Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs um samstarf landanna í öryggis- og varnarmálum í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ríga í Lettlandi. Innlent 29.11.2006 11:04
Sigrún Björk tekur við bæjarstjóraembætti 9. janúar Sigrún Björk Jakbobsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, tekur við embætti bæjarstjóra í sveitarfélaginu þann 9. janúar af Kristjáni Þór Júlíussyni, á fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir áramót. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Ráðhúsi Akureyrar laust fyrir klukkan ellefu. Innlent 29.11.2006 10:51
Nýr bæjarstjóri kynntur til sögunnar á Akureyri Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan korter í ellefu í ráðhúsi Akureyrar í dag þar sem kynna á breytingar á yfirstjórn bæjarins. Fastlega má búast við því að þar verði tilkynnt hver tekur við að Kristjáni Þór Júlíussyni, bæjarstjóra á Akureyri, sem er væntanlega á leið á þing í vor eftir að hann sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi um síðustu helgi. Innlent 29.11.2006 09:37
Raforkuverð til almennings hækkar um 2,4 prósent um áramót Raforkuverð til almennings á veitusvæði Orkuveitu Reykjavíkur hækkar um 2,4 prósent frá áramótum. Þetta kom fram á stjórnarfundi Orkuveitunnar í dag. Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að hækkunina megi rekja til hækkunar á gjaldskrá Landsvirkjunar um tíu prósent frá ársbyrjun 2005, en Orkuveitan kaupir um 60 prósent af rafmagni til almennings af Landsvirkjun. Innlent 28.11.2006 16:56
Björn á ráðherrafundi Pompidou-hópsins Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti í dag ræðu á ráðherrafundi Pompidou-hópsins svokallaða í Strassborg, en hópurinn starfar undir handarjaðri Evrópuráðsins og samræmir stefnu og starf þátttökuríkjanna í baráttunni gegn fíkniefnum. Innlent 28.11.2006 16:38