Ölgerðin varar við hugmyndum um hækkun áfengisgjalds 1. desember 2006 12:56 MYND/GVA
Fyrirhugaðar breytingar á áfengisgjaldi og virðisaukaskatti á áfengi munu hafa í för með sér stórfelldar verðhækkanir á áfengi að óbreyttu að mati Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Bendir fyrirtækið á að með fyrirhuguðum lagabreytingum standi tekjur ríkissjóðs ekki í stað heldur munu aukast sem sé öfugt við það sem haft hafi verið eftir fjármálaráðherra í fjölmiðlum. Vara forvarsmenn Ölgerðarinnar við hugmyndunum eins og þær liggja fyrir nú. Í tilkynningu frá Ölgerðinni kemur fram að ef breytingarnar á áfengisgjaldi verði að veruleika muni flaskan af Smirnoff-vodka t.d. hækka um rúm 27 prósent, brennivínsflaskan um fjórðung, Rosemount-rauðvín í þriggja lítra kassa um tæp 16 prósent og hálfs lítra dós af Egils Gulli um tæp fimmtán prósent. Miðast verðbreytingarnar við að virðisaukaskattur fari í 7 prósent og áfengisgjald hækki um 58 prósent eins og lagt er til í frumvarpi fjármálaráðherra. Hvetur Ölgerðin ráðamenn til að endurskoða hækkunina á áfengisgjaldi í kjölfar lækkunar á virðisaukaskatti svo gjaldheimta standi í stað í heildina litið.
Stj.mál Mest lesið Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Erlent Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Erlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Innlent Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Egill syrgir brottvísun vina sinna Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Segir Akranes verða svefnbæ Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Sjá meira