Vinstri - grænir kæra sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun 30. nóvember 2006 14:56 MYND/Vísir
Borgarfulltrúar Vinstri - grænna hafa lagt fram kæru til félagsmálaráðuneytisins vegna sölu á hlut borgarinnar í Landsvirkjun og farið fram á það að samþykki borgarstjórnar á sölu hlutarins verði fellt úr gildi. Fram kemur í kærunni að greiðslan fyrir hlut borgarinnar sé annars vegar í formi þriggja milljarða króna peningagreiðslu og hins vegar í formi 23,9 milljarða króna skuldabréfa til handa Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar til 28 ára. Bent er umsögn Lífeyrissjóðsins um að skuldabréfin hafi breytilega vexti og hafi því ekki þekkt verð. Þau séu því illseljanleg og þá aðeins með verulegum afföllum. Þá er enn fremur bent á að þau séu óskráð á skipulegan markað. Samkvæmt lögum um lífeyrissjóði sé þeim óheimilt að fjárfesta fyrir meira en tíu prósent af hreinni eign sjóðsins í óskráðum verðbréfum en samkvæmt upplýsingum Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar muni skuldabréf ríkisins vegna Landsvirkjunarhlutarins mynda 67 prósent af hreinni eign sjóðsins sem verði að teljast verulega umfram lagaheimildir. Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Vinstri - græna, segist hafa vakið athygli á þessu í umræðum um málið í borgarstjórn Reykjavíkur en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri svarað því til að heiðurmannasamkomulag hafi orðið á milli hans og fjármálaráðherra að reglugerð skyldi breytt til þess að kaupin gætu gengið í gegn. Vinstri - grænir segja hins vegar að lagabreytingu þurfi til vegna þessa en ekki reglugerðarbreytingu og því þurfi að leita til Alþingis. „Heiðursmannasamkomulag" við einstaka ráðherra sem ekki hafa löggjafarvald hafi ekkert gildi í þessu sambandi. Félagsmálaráðuneytið hefur móttekið kæruna og hefur samkvæmt 103. grein sveitarstjórnarlaga tvo mánuði til að ljúka yfirferð málsins. Kæru Vinstri - grænna má sjá í heild sinni hér að neðan.
Stj.mál Mest lesið Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Erlent Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Erlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Innlent Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent Fleiri fréttir Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Egill syrgir brottvísun vina sinna Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Segir Akranes verða svefnbæ Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Sjá meira