Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 40 ›
Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir að búið sé að gera nóg af breytingum á útlendingalögunum og að flokknum hugnist ekki lokað búsetuúrræði fyrir hælisleitendur. Útlendingalögunum var breytt bæði við þinglok í vor og í fyrra. Dómsmálaráðherra hefur boðað frekari breytingar á lögunum í þingmálaskrá ríkisstjórnar. Innlent 26.9.2024 23:09
Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra og frambjóðandi til formanns Vinstri grænna, segir að það hefði komið sér á óvart ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki verið lögð fram í aðdraganda landsfundar flokksins. Erfitt yrði fyrir forystu flokksins að hundsa slíka yfirlýsingu, ef hún hlyti brautargengi á fundinum. Innlent 26.9.2024 15:55
Þrjú vilja stýra Minjastofnun Þrír sóttu um embætti forstöðumanns Minastofnunar Íslands, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í ágúst síðastliðinn. Innlent 26.9.2024 14:40
Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra mætir í Samtalið hjá Heimi Má í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan tvö í dag. Hún býður sig fram til embættis formanns Vinstri grænna fyrir landsfund flokksins í næstu viku þar sem liggur fyrir tillaga um að slíta stjórnarsamstarfinu. Innlent 26.9.2024 10:12
Segist hafa væntingar um meira fé til samgöngumála Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segir nýja samgönguáætlun verða lagða fyrir Alþingi í næsta mánuði og segist hafa væntingar til þess að þingmenn auki framlög til samgönguinnviða við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól. Innlent 25.9.2024 21:11
Það er verið að hafa okkur að fíflum. Íslensk pólitík er eins og leikrit fáránleikans. Vinstri grænir ætla að greiða um það hvort það eigi að fara í stjórnarslit. Dómsmálaráðherra brýtur lög vísvitandi í þeirri von að halda Vinstri grænum góðum og til að halda stjórnarsamstarfinu saman. Skoðun 25.9.2024 21:02
Útiloka ekki kosningar í vor Þingflokksformenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks útiloka ekki vorkosningar þó þær hafi ekki verið ræddar innan flokkanna. Eini frambjóðandinn til formannssætis Vinstri grænna vill kosningar í vor frekar en í haust. Innlent 25.9.2024 11:58
Býst við að Bjarni bæti úr óheyrilegum meðferðartíma Umboðsmaður Alþingis telur málsmeðferðartíma Úrskurðarnefndar upplýsinga almennt lengri en góðu hófi gegnir. Nefndin hefur lofað bót og betrun og Umboðsmaður mun ekki beita sér frekar í málin. Hann gerir þó ráð fyrir því að forsætisráðherra leggi lóð sín á vogaskálarnar. Innlent 25.9.2024 11:41
Loftslag eða lífskjör: bæði betra Viðskiptaráð skilaði í síðustu viku inn umsögn til umhverfis- orku- og loftslagsráðherra um uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Þar mátum við efnahagsleg áhrif þeirra 150 loftslagsaðgerða sem þar má finna. Niðurstaðan var sú að tvær af hverjum þremur aðgerðum hefðu neikvæð efnahagsleg áhrif. Skoðun 25.9.2024 07:02
Vilja ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG „Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 4. til 6. október 2024 ályktar að tímabært sé að horfa til þess að slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.“ Innlent 24.9.2024 23:32
Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð Smíði nýrrar Ölfusárbrúar er í uppnámi vegna skilyrðis um að gjaldtaka fyrir akstur yfir brúna standi undir kostnaði. Sérfræðingar ríkisábyrgðarsjóðs efast um að dæmið gangi upp. Fjármálaráðherra og innviðaráðherra leita leiða til að koma verkefninu í gang. Innlent 24.9.2024 21:42
Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn heldur áfram að bæta við fylgi sitt og nýtur nú marktækt meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Svandís Svavarsdóttir, sem tilkynnti framboð sitt til formanns Vinstri grænna í dag, telur eðlilegt að framtíð stjórnarsamstarfsins verði rædd á landsfundi hreyfingarinnar í næstu viku. Innlent 24.9.2024 18:32
Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Dómsmálaráðherra segir að nánara eftirlit verði fljótlega tekið upp á Schengen landamærunum í samræmi við önnur ríki samstarfsins. Þá væri til athugunar að taka upp andlitsgreiningarbúnað að ósk lögreglustjórans á Suðurnesjum. Innlent 24.9.2024 16:34
Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar sótti hart að Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra í ræðustól þingsins í óundirbúnum fyrirspurnum nú fyrir stundu. Innlent 24.9.2024 15:40
Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur sem nýjan formann stjórnar Matvælasjóðs. Innlent 24.9.2024 14:31
Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata beindi spurningu til Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum; hvort hann sæi ekki eftir því að hafa ekki tryggt nægilegt fjármagn 2020 til þess að vinna að andlegri líðan. Sigurður Ingi sagði vandann meðal annars þann að skortur væri á sálfræðingum. Innlent 24.9.2024 13:58
Bjarkey ekki undir feldi Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Innlent 24.9.2024 11:29
Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í formannssæti Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Núverandi formaður hefur þegar tilkynnt að hann taki ekki slaginn við Svandísi. Innlent 24.9.2024 10:26
Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið standa saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimanir á morgun, þriðjudaginn 24. september. Í tilkynningu segir að málþinginu sé ætlað að vera samtalsvettvangur um fóstur- og nýburaskimanir og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja tækniframframförum á þessu sviði, auk þess sem áleitnum siðferðilegum álitaefnum verður velt upp. Innlent 23.9.2024 23:02
Jódís fer fram gegn Guðmundi Inga í varaformann VG Jódís Skúladóttir þingkona Vinstri grænna gefur kost á sér í embætti varaformanns Vinstri grænna sem fer fram á landsfundi flokksins þarnæstu helgi. Jódís fer þannig fram gegn sitjandi formanni, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, sem tilkynnti fyrr í dag að hann ætli sér ekki að sækja eftir embætti formanns en vilji vera varaformaður, líkt og hann var. Innlent 23.9.2024 18:24
Býður sig ekki fram til formanns og styður Svandísi Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra og starfandi formaður Vinstri grænna (VG) ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssætið á komandi landsfundi. Í stað þess vill hann sjá Svandísi Svavarsdóttur innviðaráðherra og þingmann VG leiða flokkinn en hún hefur ekki tilkynnt framboð. Innlent 23.9.2024 18:24
Guðrún skýst upp fyrir Katrínu Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra er sá ráðherra sem landsmenn telja hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra er sá sem talinn er hafa staðið sig verst. Innlent 23.9.2024 15:05
Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir fatlað fólk með NPA-samninga ekki geta beðið lengur eftir þjónustu en að það sé óásættanlegt að ríkið vísi málinu alfarið til sveitarfélaganna og á þá við ummæli félagsmálaráðherra frá í dag. Innlent 22.9.2024 20:50
Bjarni fundaði með Guterres Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hitti í dag Antonio Guterres, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, í tengslum við Leiðtogafund um framtíðina sem stendur yfir í New York. Innlent 22.9.2024 18:24
Ríkisstjórnin seilist í sjóði erfiðisvinnufólks Fjárlagaumræðan undanfarna daga hefur afhjúpað algjört skeytingarleysi ríkisstjórnarflokkanna gagnvart kjörum og hagsmunum fólks sem hefur unnið slítandi störf um langa ævi. Skoðun 22.9.2024 16:02
Eftir hækkun Moody´s er lánshæfi Íslands einum flokki neðar en Bretlands Náist samkomulag við lífeyrissjóðina um úrvinnslu skulda ÍL-sjóðs og salan á Íslandsbanka klárast ætti það að leiða til meiri lækkunar á skuldahlutfalli ríkissjóðs en núverandi áætlun Moody´s gerir ráð fyrir, en lánshæfismatsfyrirtækið hefur hækkað einkunn Íslands í A1, einum flokki neðar en hjá löndum á borð við Bretland og Írland. Vaxtabyrði íslenska ríkisins í hlutfalli af tekjum er umtalsvert meiri í samanburði við önnur ríki með sama lánshæfismat en Moody´s telur að það muni lækka nokkuð á komandi árum. Innherji 22.9.2024 14:09
Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Ríkið uppfyllir allar sínar skyldur hvað varðar fjármögnun NPA-samninga að sögn félagsmálaráðherra. Hann vonast til þess að sveitarfélögin leysi úr vandanum sem blasir við þeim hvað varðar fjármögnun samninganna. Innlent 22.9.2024 13:14
Fjárfesting í háskólum Það hefur verið á vitorði stjórnvalda í áratugi að við vanfjárfestum í háskólamenntun. Ísland veitir mun minna fjármagni í þennan málaflokk en önnur Norðurlönd og aðrar þjóðir sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Það hefur lengi verið á stefnuskrá stjórnvalda að breyta þessu, en lítið hefur þokast í þá átt. Skoðun 22.9.2024 10:32
„Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Andri Snær Magnason gagnrýnir Viðskiptaráð fyrir afstöðu þess til loftslagsaðgerða. Vilji samtökin láta taka sig alvarlega þurfi þau að koma með plan í stað þess að einblína eingöngu á afkomu fyrirtækja. Eins og stendur sé ekki samfélagslega ábyrgt af fyrirtækjum að vera í Viðskiptaráði Innlent 21.9.2024 13:29
Maður margra storma íhugar stöðu sína Bjarni Benediktsson hefur í fyrsta sinn opinberlega greint frá því að hann íhugi nú stöðu sína eftir fimmtán ár í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Hann geri sér grein fyrir að dagur ákvörðunar renni upp innan hálfs árs, eða fyrir landsfund flokksins sem fram fer um mánaðamótin febrúar-mars á næsta ári. Ef til vill væri kominn tími til að hleypa nýju blóði inn í forystu flokksins. Innlent 21.9.2024 08:00