Mannfjöldi
1 2 ›
Fjöldi á vinnualdri á hvern eftirlaunaþega mun fara ört lækkandi Hlutfallsleg aukning mannfjölda á Íslandi undanfarin ár hefur verið gríðarleg, mun meiri en þekkist í flestum öðrum Evrópulöndum, drifin áfram af aðfluttu vinnuafli umfram brottflutta samtímis eftirspurn eftir starfsfólki með uppbyggingu ferðaþjónustunnar og byggingargeirans. Í nýrri lýðfræðigreiningu Stefnis er meðal annars vakin athygli á því að með lækkandi fæðingartíðni og öldrun þjóðarinnar þá sé ljóst að fjöldi fólks á vinnualdri á hvern eftirlaunaþega muni fækka verulega í náinni framtíð. Innherji 25.9.2024 06:02
Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Erlendum ríkisborgurum á Íslandi fjölgaði fimm sinnum hraðar en Íslendingum á milli ára. Þá fjölgaði Íslendingum erlendis um á annað þúsund á milli ára. Á síðustu fimm árum hefur útlendingum á Íslandi fjölgað um þrjátíu þúsund en Íslendingum um ellefu þúsund. Ástæðuna má að mestu rekja til mikillar eftirspurnar eftir vinnuafli á Íslandi sem viðhaldið hefur hagvexti undanfarin ár. Innlent 19.9.2024 11:40
Meðalævilengd Íslendinga styttist Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,7 ár árið 2023 og meðalævilengd kvenna 83,8 ár og styttist í báðum tilfellum á milli ára. Meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Mikil fylgni er milli aukins menntunarstigs og lengra lífs. Innlent 25.7.2024 10:35
Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Frjósemi á Íslandi hefur aldrei verið minni en í fyrra frá því mælingar hófust fyrir um 170 árum síðan. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu á vef Hagstofu Íslands, en þar segir að fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi í fyrra hafi verið 4.315 sem er fækkun frá 2022 þegar fædd börn voru 4.382. Meðalaldur mæðra hefur einnig hækkað jafnt og þétt undanfarna áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Innlent 17.7.2024 10:31
Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Íbúum í Sveitarfélaginu Árborg heldur áfram að fjölga og fjölga en nú er íbúatalan komin yfir tólf þúsund. Að sögn bæjarstjóra er nýjum íbúum að fjölga um sex til sjö hundruð á ári. Innlent 7.7.2024 13:07
Fjöldi Reykvíkinga með kynhlutlausa skráningu tvöföldaðist milli ára Fjöldi Reykvíkinga með hlutlausa kynskráningu tvöfaldaðist milli áranna 2022 og 2023. Þá hækkaði hlutfall innflytjenda af íbúafjölda í Reykjavík á tímabilinu 1996 til 2023 úr 2,6 prósent í 25 prósent. Innlent 19.6.2024 13:06
Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Breytt aldurssamsetning og fjölskyldumynstur hafa aukið íbúðaþörf sem ekki hefur verið mætt. Skoðun 14.6.2024 11:30
Erlendum ríkisborgurum fjölgaði sex sinnum meira en íslenskum Alls voru 78.259 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júní síðastliðinn og þeim fjölgaði um 3.836 frá 1. desember 2023 eða um 5,2 prósent. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 659 eða um 0,2 prósent. Þannig fjölgaði erlendum ríkisborgurum um tæplega sex fyrir hvern íslenskan. Innlent 13.6.2024 11:54
12 þúsundasti íbúi Árborgar heiðraður Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar og Bragi Bjarnason, bæjarstjóri mættu á heimili 12 þúsundasta íbúa sveitarfélagsins í kvöld, sem er drengur, sem kom í heiminn 1. júní til að færa fjölskyldunni gjöf frá sveitarfélaginu. Fyrir á drengurinn systur, sem heitir Sóldís Silja og verður hún þriggja ára í haust. Lífið 7.6.2024 20:45
Tækifærin liggja á landsbyggðinni Samkvæmt nýju tölum Hagstofu Íslands var mannfjöldi á Íslandi 383.726 þann 1. janúar 2024 og hafði íbúum fjölgað um 8.508 frá 1. janúar 2023, eða um 2,3%. Skoðun 10.4.2024 07:31
Íbúar í Árborg verða orðnir 33 þúsund árið 2050 Íbúar í Sveitarfélaginu Árborg verða orðnir þrjátíu og þrjú þúsund árið 2050 samkvæmt nýjum íbúaþróunartölum en eru í dag um tólf þúsund. Mesta áskorunin er nægilegt magn af heitu vatni fyrir alla nýju íbúana, en kalda vatnið er ekkert vandamál, það kemur nóg af því frá Ingólfsfjalli. Innlent 7.4.2024 12:30
En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Hagstofunni, að skrásetja skyldi alla íbúa landsins Eftir að Hagstofan breytti aðferðafræði sinni hefur komið í ljós að íbúafjöldi á Íslandi er nokkuð minni en áður var talið. Það hefur meðal annars áhrif á mælingar á hagvöxt á mann og erum við nokkuð ríkari á þennan mælikvarða en við héldum áður. Umræðan 24.3.2024 10:43
Frjósemi nær sögulegum lægðum í Japan og Suður-Kóreu Frjósemi í Japan og Suður-Kóreu náði metlægðum í fyrra. Í Japan fækkaði fæðingum áttunda árið í röð, um 5,1 prósent frá árinu 2022. Um er að ræða minnsta fjölda fæðinga frá því að Japan hóf að safna gögnum árið 1899. Erlent 28.2.2024 08:33
Hér getur þú séð hvort einhver óboðinn sé skráður í þinni íbúð „Hver býr í eigninni minni?“ kallast átak sem Þjóðskrá Íslands hefur hleypt af stað í því skyni að leiðréttar rangar lögheimilisskráningar. Eigendur húseigna geta núna í gegnum heimasíðu Þjóðskrár flett upp á því hverjir eru skráðir þar til heimilis og tilkynnt um ranga skráningu. Innlent 20.2.2024 13:10
Yfir 400 þúsund íbúar núna skráðir á Íslandi Fjöldi skráðra einstaklinga með lögheimili á Íslandi er kominn í fjögurhundruð þúsund, samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands. Raunverulegur mannfjöldi á Íslandi er þó talinn eitthvað lægri. Innlent 19.2.2024 20:44
Fjögur hundruð þúsund íbúar á Íslandi, en samt ekki Samkvæmt skráningu Þjóðskrár eru fjögur hundruð þúsund íbúar með skráð lögheimili á Íslandi. Að mati fjármálaráðuneytisins erum við þá hvergi nærri þeirri tölu, heldur er hún ofmetin upp á sirka fjórtán þúsund manns. Innlent 15.2.2024 12:39
Íbúar á Íslandi talsvert færri en áður var talið Nýtt mat Hagstofu Íslands á íbúafjölda hér á landi hefur leitt í ljós að íbúar eru talsvert færri en opinberar hagtölur hafa bent til. Þar af leiðandi hefur hagvöxtur á mann verið meiri á síðastliðnum árum en opinberar hagtölur benda til og verðmætasköpun á mann er orðin hin sama og fyrir faraldur þvert á niðurstöður opinberra hagtalna. Innlent 10.2.2024 23:03
Tæplega fimmtungur þjóðarinnar erlendir ríkisborgarar Tæplega fimmtungur landsmanna sem búsettur er hér á landi er af erlendu bergi brotinn. Þetta sýna nýjar tölur Þjóðskrár sem miðast við 1. desember síðastliðinn. Innlent 16.1.2024 10:07
41 einstaklingur eldri en hundrað ára á landinu Fjörutíu og einn einstaklingur er hundrað ára eða eldri á landinu í dag. Elsti núlifandi einstaklingurinn, sem búsettur er á Íslandi, er 106 ára kona, fædd árið 1917, og er hún búsett á Suðurlandi. Innlent 3.1.2024 08:39
Anna og Jón algengust Algengustu nöfnin, meðalaldur þjóðarinnar, hagvöxtur og mannfjöldaþróun er meðal þess sem tekið er saman í jóla-og áramótamyndbandi Hagstofunnar. Innlent 22.12.2023 11:12
611 þúsund íbúar á Íslandi árið 2074 Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofunnar verða íbúar á Íslandi 611 þúsund árið 2074 og gætu orðið 500 þúsund innan 20 ára. Íbúum á Íslandi fjölgar úr 388 þúsund skráðum einstaklingum árið 2023 í 518 til 760 þúsund íbúa á næstu 50 árum, með 90% líkum. Innlent 7.12.2023 10:19
Íbúum í Skagafirði fjölgar og fjölgar Íbúum Skagafjarðar fjölgar og fjölgar og eru nú orðnir rúmlega fjögur þúsund og fjögur hundruð en alls hefur fjölgað um 80 íbúa á árinu. Mikið er byggt út um allt í sveitarfélaginu en það, sem skortir eru vinnandi hendur því næga atvinnu er að hafa í Skagafirði. Innlent 2.12.2023 14:31
Á íslenskum vinnumarkaði eru 55 kvár Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar eru skráð 150 kvár á Íslandi, eða fólk sem flokkast sem kynsegin/annað. Innlent 24.10.2023 12:02
Ástarlífið blómstrar í Fjallabyggð Íbúum í Fjallabyggð fjölgar og fjölgar enda segir bæjarstjórinn að ástarlífið blómstri í sveitarfélaginu. Þá er verið að byggja mikið af nýju húsnæði í Fjallabyggð eins og á Siglufirði og í Ólafsfirði. Innlent 8.10.2023 13:30
Íbúum Snæfellsbæjar fjölgar smátt og smátt Íbúum Snæfellsbæjar er smátt og smátt að fjölga en vandamálið þar eins og svo víða í öðrum sveitarfélögum úti á landi er vöntun á húsnæði fyrir nýja íbúa. Þá hefur fjöldi ferðamanna í Snæfellsbæ sjaldan eða aldrei verið eins mikill og í sumar og haust. Innlent 23.9.2023 13:30
Tíundi hver Japani áttatíu ára eða eldri Í fyrsta sinn í sögunni er tíundi hver maður í Japan áttatíu ára eða eldri. Erlent 19.9.2023 13:30
Erlendum ríkisborgurum fjölgað um tíu prósent frá desember Erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi voru 71.250 þann 1. ágúst síðastliðinn. Þeim fjölgaði um 6.665 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 10,3 prósent. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um helming á tímabilinu. Innlent 15.8.2023 09:46
Íbúum í Múlaþingi fjölgað um þrjú hundruð á síðustu tveimur árum Íbúum í Múlaþingi hefur fjölgað um þrjú hundruð á síðustu tveimur árum að sögn sveitarstjórans sem segir ungt fólk sækja í að flytja Austur á land. Þar spili möguleikar á fjarvinnu frá höfuðborginni stóran þátt. Innlent 19.7.2023 23:00
Mesta fjölgun í Evrópusambandinu í meira en hálfa öld Íbúum Evrópusambandslanda fjölgaði um 2,7 milljónir árið 2022 sem er mesta hækkun síðan árið 1965. Tvö ár þar á undan var fólksfækkun. Erlent 13.7.2023 15:47
Erlendum ríkisborgurum fjölgað um níu prósent frá í desember Alls voru 70.307 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. júlí síðastliðinn og fjölgaði þeim um 5.722 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 8,9%. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár. Erlendir ríkisborgarar eru nú um 18 prósent landsmanna og hefur hlutfallið aukist að um rúmt prósent á ári undanfarin fimm ár. Innlent 13.7.2023 10:46