Innrás Rússa í Úkraínu
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 86 ›
Vona að þögnin þýði að Rússarnir séu farnir Úkraínskir embættismenn telja að það muni taka rússneskt herlið minnst eina viku að hörfa frá vesturbakka Dnipro-ár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínski herinn hefur frelsað 41 byggð á svæðinu að sögn forseta Úkraínu. Íbúar á svæðinu fögnuðu fyrstu nótt þagnar frá því að stríðið hófst og vona að það þýði að Rússarnir séu farnir fyrir fullt og allt. Erlent 10.11.2022 23:31
„Óvinurinn færir okkur ekki gjafir eða gerir okkur greiða“ Ráðamenn í Úkraínu og í Bandaríkjunum hafa miklar efasemdir um yfirlýsingar forsvarsmanna rússneska hersins um undanhald frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg í suðurhluta landsins. Úkraínumenn óttast gildru og segja Rússa stefna á að leggja borgina í rúst. Erlent 10.11.2022 11:53
Talið að 200 þúsund hermenn hafi fallið eða særst í Úkraínu Æðsti herforingi Bandaríkjamanna, Mark Milley, áætlar að rúmlega 100 þúsund rússneskir hermenn hafi nú fallið eða særst í Úkraínu síðan Rússar hófu innrás sína í landið. Erlent 10.11.2022 07:22
Rússar segjast ætla að hörfa frá Kherson Sergei Surovkin, herforingi sem er yfir innrás Rússa í Kherson, lýsti því yfir í dag að hann ætli að flytja alla rússneska hermenn frá vesturbakka Dniproár. Rússar munu þar með yfirgefa Kherson-borg, sem er eina héraðshöfuðborgin sem þeir hafa hernumið frá því innrásin hófst í febrúar. Erlent 9.11.2022 15:19
Penn lánar Selenskí Óskarsverðlaunin Leikarinn og leikstjórinn Sean Penn er staddur í Úkraínu, þar sem hann fundaði meðal annars með Vólódímír Selenskí Úkraínuforseta og lánaði honum annan af tveimur Óskarsverðlaungripum sínum. Bað hann Selenskí að skila styttunni til Malibu þegar Úkraínumenn hefðu haft sigur af Rússum. Erlent 9.11.2022 12:25
Sagðir sækja fram úr nokkrum áttum í Kherson Hersveitir Úkraínu hafa náð árangri gegn Rússum í Kherson-héraði í dag og í gær. Rússar eru sagðir hafa verið sigraðir í nokkrum þorpum á vesturbakka Dniproár og hafa sprengt upp nokkrar brýr til að gera Úkraínumönnum erfitt um vik. Erlent 9.11.2022 11:48
Rússar hafa lagt skóla- og heilbrigðiskerfi Úkraínu í rúst Viðhorf almennings í helstu iðnríkjum heims til kvenleiðtoga hefur versnað ef eitthvað er á undanförnum árum, að sögn ráðgjafa þings kvenleiðtoga í Reykjavík. Þingkona frá Úkraínu segir Rússa hafa sprengt hundruð skóla og heilbrigðisstofnana í loft upp. Innlent 8.11.2022 19:20
Vill að heimurinn þvingi Pútín til raunverulegra viðræðna Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tók í gærkvöldi harða afstöðu varðandi mögulegar viðræður við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann sagði að viðræður myndu ekki eiga sér stað nema Rússar létu af tilkalli til landsvæðis Úkraínu og hét hann því að Úkraínumenn myndu ekki hætta að berjast gegn innrás Rússa ef bakhjarlar ríkisins létu af stuðningi þeirra. Erlent 8.11.2022 16:14
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Ein herdeild sögð hafa misst þrjú hundruð menn á fjórum dögum Rússneskir landgönguliðar neituðu nýverið að sækja fram og gagnrýndu yfirmenn sína harðlega eftir að þeir misstu þrjú hundruð menn á nokkrum dögum. Mennirnir féllu eða særðust í umfangsmikilli árás á Úkraínumenn í og við Pavlivka í suðaustanverðri Úkraínu. Erlent 7.11.2022 11:45
Íbúar Kænugarðs gætu þurft að yfirgefa borgina Vitaliy Klitschko borgarstjóri Kænugarðs höfuðborgar Úkraínu segir að borgarbúar verði að vera undirbúnir undir að þurfa að yfirgefa borgina, ef allt rafmagn fer af henni til langs tíma. Erlent 7.11.2022 07:24
Rússar þykist fara frá Kherson til að lokka hermenn í gildru Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar beiti blekkingum í Kherson með því að þykjast hörfa frá borginni. Með blekkingunni ætli þeir að lokka hermenn í gildru og sitja fyrir þeim. Erlent 6.11.2022 20:15
Svíar hafna Kúrdum til að friðþægja Tyrki Sænska ríkisstjórnin ætlar að láta af stuðningi við vopnaða sveit Kúrda í Sýrlandi og stjórnmálaflokk sem tengist henni til þess að friðþægja Tyrki. Recep Erdogan Tyrklandsforseti hefur sett sig upp á móti aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu vegna stuðnings þeirra við Kúrda. Erlent 5.11.2022 09:54
Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. Erlent 5.11.2022 09:10
Kölluðu ódæðin í Bucha „hreinsanir“: „Ég er búinn að drepa svo mikið af borgurum“ Þegar rússneskir hermenn tóku yfir bæinn Bucha, norður af Kænugarði, snemma eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar, fóru hermenn um bæinn með lista. Á þeim listum, sem voru frá leyniþjónustum Rússlands, voru nöfn fólks sem talið var geta ógnað Rússum. Erlent 4.11.2022 10:53
Á fimmtu milljón án rafmagns í Úkraínu Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að beita "orkuhryðjuverkum" í stríðsrekstri sínum í Úkraínu. Erlent 4.11.2022 07:33
Fjarlægðu rússneska fánann af ráðhúsinu í Kherson og sagðir líklegir til að hörfa Einn af leppstjórum Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu sagði í morgun að líklegt væri að rússneskir hermenn myndu hörfa frá vesturbakka Dniproár og þar með Kherson-borg, einu héraðshöfuðborginni sem Rússar hafa náð tökum á frá því innrás þeirra hófst í febrúar. Erlent 3.11.2022 14:29
Rússar hættir við að hætta við Rússar hættu í gær við að hætta við þátttöku í samningi sem náðst hafði um öruggan flutning kornvöru frá Úkraínu. Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í gær að Rússar hefðu verið fullvissaðir um að „kornhliðið“ yrði ekki notað til að gera árásir á rússneska flotann. Erlent 3.11.2022 08:16
Öryggis- og friðarmál miðpunktur umræðunnar á Norðurlandaráðsþingi Forsætisráðherra segir öryggis- og varnarmál vera miðpunkt umræðunnar á þingi Norðurlandaráðs sem nú væri haldið í skugga innrásar Rússa í Úkraínu. Ísland muni leggja áherslu á friðarmál undir formennsku hennar í ráðherraráði ríkjanna með alþjóðlegri friðarráðstefnu í Reykjavík á næsta ári. Erlent 2.11.2022 12:31
Herforingjar ræddu mögulega notkun kjarnorkuvopna Æðstu leiðtogar rússneska hersins ræddu mögulega notkun smárra kjarnorkuvopna í Úkraínu og hvort rússneski herinn gæti gagnast á því. Umræðan leiddi til aukinna áhyggja í Bandaríkjunum og víðar og þykir til marks um að Rússar séu verulega ósáttir við gang „sértæku hernaðaraðgerðarinnar“ svokölluðu. Erlent 2.11.2022 10:45
Félagslegar áherslur Norðurlanda verða að fylgja loftslagsaðgerðum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Norðurlöndin deila gildismati og framtíðarsýn og styðji öll Úkraínu eftir innrás Rússa. Innlent 1.11.2022 20:09
Biden tekur olíufélögin á beinið fyrir svívirðilegan gróða Bandaríkjaforseti segir olíufélögin græða svívirðilega á kostnað tugmilljóna manna sem þjáist vegna stríðsins í Úkraínu. Þau hafi brugðist samfélaginu á sama tíma og þau maki krókinn. Auki þau ekki framleiðsluna og lækki verð til neytenda geti þau búist við að skattahækkunum og öðrum aðgerðum. Erlent 1.11.2022 19:21
75 ára kona barin, skorin og nauðgað Leppstjórar Rússlands í suðurhluta Úkraínu hafa tilkynnt að fleiri íbúar verði fluttir frá Kherson-héraði en þegar hefur verið gert. Yfirvöld í Kænugarði segir að verið sé þvinga íbúa á brott en Rússar vinna hörðum höndum að því að byggja upp varnir á vestur-bakka Dniproár í kringum Kherson-borg, höfuðborg héraðsins. Erlent 1.11.2022 15:10
Pútín segir að frestun samnings um kornútflutning sé tímabundin Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir að Rússar hafi ákveðið að frysta samning sem gerður var um að flutningaskip fái að flytja korn frá Úkraínu um svartahaf. Erlent 1.11.2022 08:56
Úkraína vill að FIFA hendi Íran út af HM í Katar Knattspyrnusamband Úkraínu hefur sett pressu á Alþjóða knattspyrnusambandið að henda íranska landsliðinu út af heimsmeistaramótinu í Katar en mótið hefst eftir aðeins tuttugu daga. Fótbolti 1.11.2022 07:31
Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu í símtali við Selenskíj Joe Biden Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu þegar hann ræddi við Vólódímír Selenskíj forseta Úkraínu fyrr á árinu. Selenskíj á að hafa beðið Biden um frekari fjárstuðning og er Biden sagður hafa orðið pirraður. Erlent 31.10.2022 19:33
Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja. Erlent 31.10.2022 13:00
Skoða hvað gerðist ef allir sæstrengirnir til Íslands rofnuðu Áhættumat hefur verið unnið vegna mögulegs tjóns á sæstrengjunum sem liggja frá Íslandi. Að sögn Guðmundar Arnars Sigmundssonar, sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofu og forstöðumanns netöryggissveitar CERT-IS, er fjarskiptasamband Íslands við umheimin ekki í hættu eins og er. Innlent 31.10.2022 12:46
Neyðarskömmtun víða í gildi eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa Loftvarnaflautur fóru í gang og sprengingar heyrðust víða um Úkraínu í morgun. Íbúar voru hvattir til að leita skjóls, meðal annars í Kænugarði og á að minnsta kosti tíu öðrum svæðum. Erlent 31.10.2022 11:45
Stærsti hluthafi Century Aluminum styður ekki viðskiptabann á rússneskt ál Eigandi 46 prósent hlutafjár Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls við Grundartanga, leggst gegn því að vestræn stjórnvöld leggi viðskiptabann á rússneskt ál. Stórir álframleiðendur á heimsvísu hafa kallað eftir því að viðskipti með rússneska málma verði settar hömlur líkt og gert hefur verið með ýmsar aðrar hrávörur. Innherji 31.10.2022 10:22
Urðu að stoppa leikinn þegar loftvarnaflautur fóru að hljóma Shakhtar Donetsk spilar heimaleiki sína ekki í Úkraínu heldur í Póllandi vegna innrásar Rússa. Það fara samt fram fótboltaleikir fram í landinu. Fótbolti 31.10.2022 09:00