Lög og regla
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 120 ›
Greiði bætur upp á 3 milljónir Alþjóða líftryggingafélagið hf. var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða konu tæpar þrjár milljónir króna vegna sjúkratryggingar sem konan hafði keypt hjá félaginu. Konan höfðaði málið þegar henni var neitað um greiðslu út á sjúkratrygginguna. Innlent 13.10.2005 18:57
Hæstiréttur staðfesti dóminn Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Austurlands um að Fjarðabyggð og verktakafyrirtækið Arnarfell skuli greiða húseigenda í Neskaupstað eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna sprungna sem urðu í steinsteypu í húsi hans þegar verið var sð sprengja í hlíðinni fyrir ofan það vegna byggingar snjóflóðavarna. Innlent 13.10.2005 18:57
Báru ljúgvitni fyrir dómi Héraðsdómur Vesturlands komst að þeirri niðurstöðu að tvær stúlkur væru sekar um að bera mann röngum sakargiftum og dæmdi þær til samtals fimmtán mánaða fangelsisdóms. Fékk önnur þeirra níu mánaða dóm, þar af sjö mánuði skilorðsbundið, en hin sex mánaða dóm sem að öllu leyti var bundinn skilorði. Innlent 13.10.2005 18:57
Fólkið fundið heilt á húfi Seinni bílinn sem leitað hefur verið að í dag er fundinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann hann um klukkan 19.35 við Mikluöldu. Um borð voru allir þrír sem saknað var og voru allir heilir á húfi. Innlent 13.10.2005 18:56
Þrettán afbrot á einum degi Þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir tugi afbrota af ýmsum toga sem hann hefur framið upp á síðkastið. Einn daginn náði hann að fremja þrettán afbrot. Innlent 13.10.2005 18:56
Ríkið skaðabótaskylt Íslenska ríkið var í gær dæmt til greiðslu tæpra sjö milljóna króna í skaðabætur vegna læknamistaka við meðferð á karlmanni á Sjúkrahúsi Akraness árið 1997. Innlent 13.10.2005 18:57
Mildaði kynferðisbrotadóm Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir kynferðisbrotamanni vegna mótsagnakennds framburðar eins fórnarlamba hans. Maðurinn var sakfelldur í Héraðsdómi fyrir gróf og alvarleg kynferðisbrot gagnvart tveimur dætrum sínum og þriðju stúlkunni og dæmdur í þriggja ára fangelsi. Stúlkurnar voru 11-14 ára þegar brotin áttu sér stað. Innlent 13.10.2005 18:56
Refsing þyngd í Skeljungsráninu Hæstiréttur þyngdi í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem var sakfelldur fyrir að standa fyrir Skeljungsráninu svokallaða árið 1995. Maðurinn áfrýjaði dómi undirréttar og bar fyrir sig að framburður vitna í málinu hefði verið ómarktækur. Dómurinn komst að þveröfugri niðurstöðu og þyngdi refsivist mannsins um sex mánuði. Innlent 13.10.2005 18:57
Héraðsdómur óhaggaður Dómur Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot gegn tveimur ungum stúlkum skal standa óhaggaður samkvæmt dómi Hæstaréttar. Maðurinn var dæmdur til átján mánaða fangelsis auk greiðslu skaðabóta til handa báðum stúlkunum. Innlent 13.10.2005 18:57
Sex mánaða fangelsisdómur Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær mann til sex mánaða fangelsisvistar, tímabundna sviptingu ökuleyfis og greiðslu skaðabóta vegna margvíslegra brota. Voru ákærur á hendur manninum einar sextán talsins en hann á að baki umtalsverðan brotaferil og hefur fimm sinnum áður verið dæmdur til fangelsisvistar. Innlent 13.10.2005 18:56
Dómur mildaður fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur mildaði í gær um fjóra mánuði dóm Héraðsdóms Suðurlands frá júlí síðastliðnum yfir kynferðisbrotamanni sem dæmdur hafði verið til þriggja ára fangelsis. Innlent 13.10.2005 18:57
Stígamót óttast afleiðingarnar Talskona Stígamóta segist óttast að dómur yfir tveimur stúlkum, sem lugu nauðgun upp á varnarliðsmann, ýti undir ranghugmyndir um að vitni segi almennt ósatt í nauðgunarmálum. Innlent 13.10.2005 18:57
Báru ljúgvitni um nauðgun Átján ára stúlka hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa borið ljúgvitni með jafnöldru sinni og vinkonu sem kærði ungan Varnarliðsmann fyrir að hafa nauðgað sér í fyrra. Sú hlaut níu mánaða fangelsisdóm og óttast sýslumaður að málið kunni að hafa áhrif á nauðgunarmál í framtíðinni. Innlent 13.10.2005 18:56
Dómur í Skeljungsráninu þyngdur Hæstiréttur þyngdi í morgun um hálft ár dóm yfir Stefáni Aðalsteini Sigmundssyni fyrir Skeljungsránið svokallaða sem framið var fyrir áratug. Stefán fékk tveggja ára dóm í héraði en ránið framdi hann ásamt tveimur öðrum við Íslandsbanka í Lækjargötu í febrúar árið 1995. Innlent 13.10.2005 18:56
Tekinn með fíkinefni á Hellisheiði Selfosslögregla stöðvaði fólksbíl á austurleið á Hellisheiði um klukkan 8 á gærkvöld. Í ljós kom að ökumaður, karlmaður um þrítugt sem var einn á ferð, var með sex grömm af hassi og sex grömm af amfetamíni í fórum sínum. Hann var tekinn til yfirheyrslu og sleppt að henni lokinni. Innlent 13.10.2005 18:56
Grunaðir um fíkniefnasölu Tveir menn voru handteknir eftir að lögreglan í Kópavogi fann sextíu grömm af amfetamíni í bíl þeirra í fyrrinótt. Vegna þess hversu mikið magn mennirnir voru með leikur grunur á að þeir hafi ætlað sér að selja efnið. Innlent 13.10.2005 18:56
Bíða dóms um ógildingu útboðs Dóms er að vænta innan mánaðar um það hvort Vegagerðinni hafi verið heimilt að ógilda fyrra útboð Héðinsfjarðarganga fyrir tveimur árum og hafna öllum tilboðum. Íslenskir aðalverktakar bjóða enn fram þá sátt að grafa göngin á grundvelli lægsta boðs. Innlent 13.10.2005 18:56
Misjafnlega tekið á verkamönnum Mismunandi er á milli landshluta hvernig tekið er á málum erlendra verkamanna sem ráðnir eru með þjónustusamningi í gegnum starfsmannaleigur og hafa ekki atvinnuleyfi. Á Snæfellsnesi er vinna þeirra stöðvuð en ekki á Austurlandi. Innlent 13.10.2005 18:56
Hætta við myndatökur "Okkar mat er að betur má ef duga skal og tillögurnar eru fyrstu skref í þá átt," segir Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, en bæjarstjórnin hefur lagt línurnar með hvernig sé best að efla innbrotavarnir og öryggi íbúa bæjarfélagsins en tíðni innbrota á Nesinu hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Innlent 13.10.2005 18:56
Vörubíll valt við Blönduós Vörubíll með tengivagn á leið norður í land fór á hliðina við Sveinsstaði vestan við Blönduós í gærkvöld. Að sögn lögreglu virðist sem bóman á byggingakrana tengivagnsins hafi losnað og slegist við jörðina. Þar með dróst bíllinn á hliðina og valt síðan ásamt tengivagninum. Bílstjórinn var fluttur beinbrotinn og skorinn með sjúkrabíl til Akureyrar. Innlent 13.10.2005 18:56
Vopnið fjörugt ímyndunarafl Jóhann R. Benediktsson sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segir frammistöðu tollvarða sem handtóku 64 ára gamla konu með 800 grömm af kókaíni í hárkollu þann 12. mars vera framúrskarandi og á heimsmælikvarða. Innlent 13.10.2005 18:56
Þrjú fíkniefnamál í Keflavík Þrjú fíkniefnamál hafa komið upp í Keflavík síðastliðinn hálfan sólarhring. Laust eftir klukkan tíu í gærkvöld stöðvaði lögreglan bifreið á Njarðarbraut. Í honum fundust þrjú grömm af amfetamíni. Þrennt var í bílnum og viðurkenndu tveir að eiga efnið. Hálftíma síðar var önnur bifreið stöðvuð í bænum og þar fannst eitt gramm af amfetamíni og viðurkenndi ökumaður að eiga það. Innlent 13.10.2005 18:56
Enn við störf að Kárahnjúkum Lettarnir fjórir sem hafa starfað fyrir GT verktaka að Kárahnjúkum án atvinnu- og dvalarleyfa eru enn við störf. Meira en mánuður er liðinn frá því Vinnumálastofnun sendi kæru vegna mannanna til sýslumannsins á Seyðisfirði. Innlent 13.10.2005 18:56
Ekki borgunarmaður skaðabóta Hákon Eydal, sem í gær var dæmur fyrir morðið á Sri Rahmawati í fyrra, er ekki borgunarmaður fyrir skaðabótum til barnanna hennar og ríkissjóður ábyrgist aðeins lítinn hluta þeirra. Réttargæslumaður barna Sri telur tímabært að endurskoða lög um þetta. Innlent 13.10.2005 18:56
Ók á ljósastaur og slasaðist Fólksbíl var ekið á ljósastaur um klukkan hálfníu í morgun á hringtorgi við Mosfellsbæ. Ökumaður var einn í bílnum. Hann var ekki í bílbelti og hentist í framrúðu bílsins. Hann var fluttur á slysadeild og er þar nú í rannsókn. Innlent 13.10.2005 18:56
Margir teknir fyrir ölvunarakstur Óvenju margir ölvaðir ökumenn voru á ferðinni í gærkvöldi og í nótt. Einn var tekinn í Reykjavík, annar í Kópavogi, sá þriðji í Keflavík, þrír á Akureyri frá því síðdegis í gær og fram á nótt og einn í Hveragerði. Á Akureyri olli einn þeirra árekstri með því að virða ekki biðskyldu og aka í veg fyrir bíl á aðalbraut en engin slys hlutust af. Innlent 13.10.2005 18:55
Tvö og hálft ár fyrir ýmis brot Hæstiréttur dæmdi mann í gær í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir rán, akstur án ökuréttinda, ölvunarakstur og fíkniefnabrot og lengdi þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um hálft ár. Maðurinn framdi ránið vopnaður barefli í verslun 10-11 við Barónsstíg í byrjun febrúar í fyrra. Innlent 13.10.2005 18:56
Greiði börnum Sri 22 milljónir Hákon Eydal, banamaður Sri Rahmawati, fékk í dag sextán ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann var að auki dæmdur til að greiða þremur börnum Sri tæpar 22 milljónir króna í skaðabætur. Hákon sagði í samtali við fréttamann að hann teldi dóminn frekar þungan. Innlent 13.10.2005 18:56
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot Rúmlega fertugur maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í eins árs fangelsi fyrir kynferðisbrot og líkamsáras gegn stúlku í október í fyrra. Maðurinn er sakfelldur fyrir að hafa veist að stúlkunni og reynt að hafa við hana samfarir. Hann beraði getnaðarlim sinn og þuklaði og greip í stúlkuna þannig að hún hlaut mar á kynfærum og annar sstaðar á líkamanum. Innlent 13.10.2005 18:56
Hákon Eydal hyggst áfrýja dómi Hákon Eydal, banamaður Sri Rahmawati, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í 16 ára fangelsi. Eins var honum gert að greiða þremur börnum Sri nærri 22 milljónir króna í bætur. Hákon lýsti því yfir við dómsuppkvaðningu að hann ætlaði að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Innlent 13.10.2005 18:56