Lög og regla

Fréttamynd

Hundruð kílóa af fölsunum

Starfsmenn Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli hafa á þessu ári tekið nokkrar sendingar með nokkur hundruð kílóum af falsaðri merkjavöru, m.a. fatnaði, hljómdiskum og blekhylkjum.

Innlent
Fréttamynd

Vélsleðamenn skullu saman á stökki

Tveir menn, hvor á sínum vélsleðanum, skullu saman í stökki sem varð til þess að annar slasaðist alvarlega. Mennirnir voru að leika sér að stökkva yfir veginn yfir á Hauganes í Eyjafirði þegar sleðar þeirra skullu saman.

Innlent
Fréttamynd

Fernt á slysadeild

Fernt fór á slysasdeild eftir harðan árekstur jeppa og fólksbifreiðar laust fyrir klukkan þrjú dag. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt á Suðurlandsvegi í Svínahrauni þegar þeir rákust á.

Innlent
Fréttamynd

Maður féll sex metra

Maður hlaut höfuðáverka eftir að hann féll um sex metra í loðnubræðslunni á Eskifirði á fimmta tímanum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur þar sem gert var að meiðslum hans. Líðan hans er sögð góð eftir atvikum og maðurinn með fullri meðvitund.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta á Suðurnesjum

Bílvelta varð á Garðvegi við svokallaðan Ellustekk skömmu fyrir hádegi samkvæmt Víkurfréttum. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur en hann náðist á hlaupum við innkomuna í Garðinn. Hann var fluttur til Keflavíkur til sýnatöku og skoðunar. Bifreiðin er nokkuð skemmd.

Innlent
Fréttamynd

Erilsamt hjá lögreglunni

Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík, töluverð ölvun var í miðbænum og tuttugu útköll bárust vegna hávaða í heimahúsum. Tveir voru í geymslu hjá lögreglunni í morgun, einn vegna ölvunar og hinn vegna ölvunaraksturs. Tíu voru teknir fyrir ölvunarakstur en að öðru leyti var nóttin stóráfallalaus.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdi bíl á háskólalóðinni

Sautján ára piltur dundaði sér við það í ölæði á háskólalóðinni laust fyrir klukkan sjö í morgun að skemma bíl sem þar stóð. Öryggisvörður sá til hans þar sem hann var að brjóta bílrúðu og kallaði til lögreglu. Piltur var handtekinn og settur í fangageymslu og er þess nú beðið að hann verði skýrsluhæfur, eins og það var orðað.

Innlent
Fréttamynd

Eftirlitslaus partí alltof mörg

Fjórir unglingar voru handteknir í heimahúsi í Breiðholti aðfaranótt laugardags, en nágrannar höfðu kvartað yfir háreysti og ólátum í þeim. Í ljós kom að unglingar á grunnskólaaldri voru eftirlitslausir í húsinu og var áfengisneysla mikil.

Innlent
Fréttamynd

Óvenjumargir í varðhaldi

Nítján sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um alvarlega glæpi. Það er óvenju margt að mati lögreglu og eins eru mörg alvarleg afbrot orsök þess. Reyndar hefur árið allt verið annasamt og að meðaltali hafa tíu til fjórtán einstaklingar verið í gæsluvarðhaldi í einu.

Innlent
Fréttamynd

Fíkniefnin hafa skilað sér niður

Nígeríumaðurinn sem tekinn var á þriðjudagskvöld í Leifsstöð með ætlað kókaín í farangri og innvortis er talinn hafa verið með 300 til 450 grömm af efninu. Fíkniefnunum var pakkað í hátt í fimmtíu misstórar kúlur sem maðurinn hafði bæði gleypt og geymt í endaþarmi.

Innlent
Fréttamynd

15 mánaða dómur fyrir kókaínsmygl

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi tvo karlmenn í dag í fimmtán mánaða fangelsi hvorn fyrir kókaínsmygl og fyrir að reyna að koma sér hjá því að greiða aðflutningsgjöld af hnefaleikabúnaði.

Innlent
Fréttamynd

Báðir dæmdir í 15 mánaða fangelsi

Salvar Halldór Björnsson og Sigurjón Gunnsteinsson voru dæmdir, í Héraðsdómi Reykjaness, í fimmtán mánaða fangelsi hvor, fyrir innflutning á tæpum 325 grömmum af kókaíni. Fíkniefnin komu þeir með frá Amsterdam í Hollandi í byrjun desember fyrir ári síðan.

Innlent
Fréttamynd

Dómari kallaði dóminn fjarstæðu

Inger Jónsdóttir, sýslumaður á Eskifirði, segir að ekki hafi verið ákveðið hvort brugðist verði við þætti ákæruvaldsins í frávísun Hæstaréttar á dómi Héraðsdóms Austurlands í gær. Einn dómara við Hæstarétt kallaði dóm Héraðsdóms, sem var yfir pilti vegna líkamsárásar, fjarstæðu og sagði eðilegast að sýkna manninn.

Innlent
Fréttamynd

Valt með fullan pall af möl

Engan sakaði þegar vörubíll með fullfermi af möl valt í Garðabæ á fimmta tímanum í gær. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var bíllinn staddur í beygju þar sem hann hann reyndi að sturta hlassinu af pallinum þegar óhappið varð.

Innlent
Fréttamynd

Sveik út 650 þúsund

Kona um þrítugt fær þriggja mánaða fangelsisdóm brjóti hún lög næstu tvö árin. Konan sveik út vörur og tölvubúnað á kostnað raunvísindadeildar Háskóla Íslands fyrir tæpar 650 þúsund krónur þegar hún vann þar sem deildarstjóri.

Innlent
Fréttamynd

Sextán seldu unglingum tóbak

Sextán sölustaðir í Hafnarfirði af 27, eða 59 prósent, seldu unglingum tóbak í nýlegri könnun sem forvarnarnefnd Hafnarfjarðar gerði. Útkoman er betri nú en í vor þegar 62 prósent sölustaða seldu unglingum tóbak.

Innlent
Fréttamynd

Voru ölvaðir í bílferð

Jeppi og fólksbíll, sem komu úr gagnstæðri átt, lentu saman á Sandgerðisvegi skammt frá veginum að Rockville klukkan rúmlega fjögur í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Vonin fer minnkandi

Rannsókn á brottnámi níu ára stúlku í Kópavogi í nóvember hefur ekki borið árangur að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns í Kópavogi.

Innlent
Fréttamynd

Beiðni um rannsókn vegna mannsláts

Aðstandendur gamals manns sem lést eftir að hafa dottið á Hrafnistu í Reykjavík hafa lagt inn beiðni um rannsókn á málinu til embættis lögreglustjórans í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald framlengt

Bráðabirgðaniðurstöður krufningar hafa leitt í ljós að Ragnar Björnsson, maðurinn sem lést eftir árás í Mosfellsbæ um síðustu helgi, lést af völdum höggs á kjálka og gagnauga. Gæsluvarðhald yfir árásarmanninum hefur verið framlengt

Innlent
Fréttamynd

Varð brátt í brók

Ætlað kókaín fannst á 25 ára gömlum Nígeríumanni við tollskoðun í Leifsstöð á þriðjudagskvöld. Strax vaknaði grunur um að maðurinn væri með meira magn fíkniefna innvortis sem var sannreynt með röntgenskoðun sama kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Fékk skilorð fyrir að skalla mann

Rúmlega tvítugur maður var í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Honum var gert að greiða þeim sem hann réðst á tæplega 300 þúsund krónur í skaðabætur.

Innlent
Fréttamynd

Skeljungur hótar skaðabótakröfu

Skeljungur hefur mótmælt því að Atlantsolía fái að reisa sjálfsafgreiðslustöð á lóð Teits Jónassonar hf. við Dalsveg í Kópavogi við hliðina á bensínstöð Skeljungs. Í bréfi til skipulagsnefndar Kópavogs segir að vegna nálægðar við bensínstöð Skeljungs muni breytingin leiða til minni eldsneytissölu fyrirtækisins og verulegs fjárhagstjóns.

Innlent
Fréttamynd

Reykbúr flutt vegna dópsala

Reykaðstaða sjúklinga á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss við Hringbraut verður flutt á næstunni. Ástæðan er meðal annars sú að dópsalar hafa stundað að bjóða fíkniefni til sölu þar og fólk hefur jafnvel sofið þar. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

500 handsprengjum eytt

Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar eyddu 500 handsprengjum fyrir Varnarliðið á þriðjudag. Handsprengjurnar höfðu skemmst í geymslum Varnarliðsins og var því tekið til þess ráðs að eyða þeim með tveimur sprengingum.

Innlent
Fréttamynd

Sótti veikan sjómann

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann um borð í togarann Guðmund frá Nesi sem staddur var um eitt hundrað sjómílur norðvestur af Snæfellsnesi.

Innlent
Fréttamynd

Óvenjutíðir stórbrunar

Eftir fremur rólega tíð hjá slökkviliðum landsins fyrstu átta mánuði ársins hefur fjöldi bruna orðið í landinu síðan í september. Sumir þeirra hafa verið ansi stórir. Bruninn í Hringrás í Klettagörðum er einhver mesti bruni sem orðið hefur síðustu ár eða jafnvel áratugi.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir Magnúsi Einarssyni um tvo mánuði, til 15. febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Skilorð vegna dráttar á rannsókn

Rúmlega þrítugur maður var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn systurdóttur sinni, sem er þroskahömluð. Sjálfur er maðurinn nokkuð þroskahamlaður og í slakri félagslegri stöðu.

Innlent
Fréttamynd

Hefði getað orðið stórbruni

Minnstu mátti muna að stórbruni yrði í 150 ára gömlu húsi á horni Lækjargötu og Austurstrætis þegar eldur kviknaði þar út frá eldunartækjum í Kebab-húsinu á neðri hæðinni um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið af höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang.

Innlent