Erlent
251 252 253 254 255 256 257 258 259 … 334 ›
Hagnaður í skyndibitanum Hagnaður bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald's, sem er ein sú stærsta í heimi, nam 843,3 milljónum bandaríkjadala, eða 57,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er 17 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Helsta ástæðan fyrir aukningunni er betri sala í Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 19.10.2006 13:04
Hagnaður Nasdaq jókst um 70 prósent Hagnaður bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq jókst um tæp 70 prósent á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 30,2 milljónum bandaríkjadala, um 2 milljörðum króna, en rekstrarár markaðarins einkenndist af kaupum í öðrum mörkuðum jafnt í Bandaríkjunum sem í Bretlandi og aukinni markaðshlutdeild. Viðskipti erlent 19.10.2006 12:31
Aukinn hagnaður hjá Coca Cola Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola skilaði 1,46 milljarða dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til tæplega 100 milljarða króna hagnaðar á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 1,28 milljörðum dala eða 87,4 milljörðum íslenskra króna. Helsta ástæðan fyrir auknum hagnaði er meiri sala á nýjum mörkuðum Coca-Cola í Brasilíu og í Rússlandi. Viðskipti erlent 19.10.2006 11:09
Sony sker hagnað niður um helming Japanski raftækjaframleiðandinn Sony hefur lækkað afkomuspá sína á yfirstandandi rekstrarári um rúman helming og lagt til hliðar 51 milljarð jena, jafnvirði 29,5 milljarða íslenskra króna, vegna gríðarmikilla innikallana á rafhlöðum undir merkjum fyrirtækisins á heimsvísu. Leikjavísir 19.10.2006 09:13
Sektaður fyrir að deila tónlist Fjörutíu og fjögurra ára gamall Svíi var í gær dæmdur fyrir að hafa ólöglega deilt tónlist á netinu með öðrum og var gert að greiða tuttugu þúsund sænskar krónur í sekt, eða um 185 þúsund íslenskar krónur. Erlent 18.10.2006 21:36
Tamílatígrar sprengja herskip Fimmtán menn sem grunaðir eru um að hafa tilheyrt Tamílatígrunum dulbjuggust sem fiskimenn í gær og sprengdu sjálfa sig og tvo báta í loft upp í flotastöð Galle-borgar á Srí Lanka með þeim afleiðingum að minnst einn fórst og 26 særðust. Allir uppreisnarmennirnir fórust einnig og þrjú herskip skemmdust í árásinni. Lögregla setti útgöngubann á og öryggisgæsla var gífurleg í Galle-borg eftir árásina. Erlent 18.10.2006 21:36
Hugsanlega lík liðhlaupa Finnskir réttarmeinafræðingar hafa fundið fjöldagröf nærri bænum Lappeenranta (Villmanstrand) í Suðaustur-Finnlandi, þar sem líkamsleifar að minnsta kosti tíu manna liggja. Erlent 18.10.2006 21:36
Fjöldahandtökur í Moskvu Lögregla gerði á þriðjudag rassíu á útimarkaði í Moskvu og handtók tugi bakara, smákaupmanna og aðra sem flutt hafa frá fátækum fyrrverandi Sovétlýðveldum til rússnesku höfuðborgarinnar til að finna vinnu. Rassían er liður í herferð rússneskra yfirvalda gegn ólöglegum innflytjendum, en til hennar var efnt eftir að Rússar hófu að vísa úr landi Georgíumönnum. sem störfuðu í Rússlandi án tilskilinna pappíra og leyfa. Erlent 18.10.2006 21:36
Enga fanga frá Guantanamo Stjórnvöld í Bretlandi og Þýskalandi hafa á bak við tjöldin neitað að taka við föngum frá Guantanamo, sem bandarísk stjórnvöld hafa viljað senda aftur til síns heima, um leið og þau krefjast þess opinberlega að Bandaríkjamenn loki þessum illræmdu fangabúðum. Erlent 18.10.2006 21:36
Vill að verkin verði látin tala Fredrik Reinfeldt, nýbakaður forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að nýju ríkisstjórnina ættu menn að dæma af verkum hennar, en ekki af því að tveir ráðherrar hennar hefðu sagt af sér strax á fyrstu dögum stjórnarinnar. Erlent 18.10.2006 21:36
Forðuðust deilur í sjónvarpinu Þrír franskir sósíalistar vilja verða fyrir valinu sem forsetaframbjóðandi franska Sósíalistaflokksins á næsta ári, þau Segolene Royal, Dominique Strauss-Kahn og Laurent Fabius. Á þriðjudagskvöldið mættust þau í dálítið óvenjulegum kappræðum í sjónvarpssal þar sem þau reyndu að höfða til flokksfélaga sinna. Erlent 18.10.2006 21:36
Eltingaleikur bannaður Eftirlitslaus eltingaleikur hefur nú verið bannaður í frímínútum grunnskóla nokkurs skammt frá Boston í Bandaríkjunum. Ástæðan, að sögn skólayfirvalda, er slysahætta og að hægt verði að gera skólann ábyrgan. Erlent 18.10.2006 21:37
Mótmælt í Santiago Til átaka kom milli lögreglu í Chile og námsmanna sem voru að mótmæla breytingum á löggjöf um menntamál í höfuðborginni, Santiago, í dag. Rúmlega hundrað mótmælendur voru handteknir eftir að grjóthnullungum rigndi yfir lögreglumenn sem svöruðu með því að sprauta vatni á mótmælendur. Erlent 18.10.2006 23:54
Alvarlegar afleiðingar ef Norður-Kóreumenn selji kjarnorkuvopn George Bush, Bandaríkjaforseti, varaði Norður-Kóreumenn í dag við að þeir yrðu að taka afleiðingunum ef þeir yrðu uppvísir að því að selja Írönum eða al-Qaeda liðum kjarnorkuvopn. Bush sagði að stjórnvöld í Pyongyang yrðu þegar látin sæta ábyrgð ef það kæmi í ljós. Erlent 18.10.2006 22:51
Stone ætlar að fjalla um bin Laden Kvikmyndaleikstjórinn Oliver Stone ætlar næst að beina linsunni að stríðinu í Afganistan og leitinni að Osama bin Laden. Nýjasta mynd leikstjórans heitir World Trade Center og fjallar um hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001. Erlent 18.10.2006 22:41
Mikil mengun í Rússlandi og Sambíu Rússnesk borg þar sem efnavopn voru eitt sinn framleidd og þorp í Sambíu þar sem koparnámur er að finna eru meðal 10 menguðustu staða á jarðkringrunni, að mati bandarísku umhverfisverndarsamtakanna Blacksmith Institute. Að mati samtakanna er mengun um allan heima að valda sjúkdómum og kvillum hjá einum milljarði manna. Erlent 18.10.2006 22:23
Bifreið borgarstjóra stolið Bifreið Michaels Bloomberg, borgarstjóra í New York, var stolið í dag. Aðstoðarmaður borgarstjórans var laminn í andlitið og hann dreginn út úr bílnum sem síðan var ekið á brott. Bíllinn er Lexus, ágerð 2001. Bloomberg var sjálfur ekki í bílnum þegar honum var stolið. Aðstoðarmaður hans var þá að erinda fyrir hann í Hackensack í New Jersey. Erlent 18.10.2006 21:59
Sendiherra Íslands kallaður til fundar við sjávarútvegsráðherra Breta Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands, hefur kallað Sverri Hauk Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, á sinn fund. Þar verður honum gert að skýra forsendur þær sem liggi fyrir ákvörðun íslenskra stjórnvalda að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni á ný. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá þessu á vefsíðu sinni. Erlent 18.10.2006 21:43
4 bandarískir hermenn í Írak til viðbótar dregnir fyrir herrétt Fjórir Bandarískir hermenn í Írak verða dregnir fyrir herrétt, ákærðir fyrir morð á þremur Írökum sem grunaðir voru um að taka þátt í andspyrnu gegn fjölþjóðlegu herliði í landinu. Hermennirnir réðust á búðir andspyrnumanna nærri Thar Thar fljoti suð-vestur af borginni Tíkrit í maí á þessu ári. Þar voru mennirnir handteknir og síðan myrtir. Hermennirnir eiga ekki yfir höfði sér dauðadóm verði þeir sakfelldir. Erlent 18.10.2006 20:59
Getgátur um hver hafi verið 300 milljónasti Bandaríkjamaðurinn Fjölmiðlar frá Atlanta til San Francisco kepptust við að birta fréttir í dag þar sem greint var frá því hvar fæðingarstað 300 milljónasta Bandaríkjamannsins væri að finna. Þær fréttir stönguðust þó á. Flestir fjölmiðlar í Bandaríkjunum viðurkenna að erfitt verið að skera úr um svo óyggjandi sé hver hafi verið sá 300 milljónasti. Erlent 18.10.2006 20:50
Vill fá full laun Cecilia Stegö Chilò, fyrrverandi menningarmálaráðherra Svíþjóðar, ætlar að krefjast ráðherralauna í að minnsta kosti eitt ár, þrátt fyrir að hafa aðeins gegnt embættinu í tíu daga. Erlent 18.10.2006 19:03
Gerði gat á Picassoverkið Eitt verðmætasta málverk í heimi, Draumurinn eftir Pablo Picasso, er stórskemmt eftir að eigandi þess rak í það olnbogann af miklum krafti. Erlent 18.10.2006 19:01
Rice róar Japana Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fullvissaði Japana í dag um að þeir nytu herverndar Bandaríkjanna ef til átaka kæmi í Austur-Asíu. Vonast er til að þetta dragi úr líkum á vígbúnaðarkapphlaupi á svæðinu. Erlent 18.10.2006 18:58
Hvalveiðarnar vekja heimsathygli Helstu umhverfisverndarsamtök heims bregðast ókvæða við og fjölmiðlar í öllum heimsálfum greina frá málinu, ýmist með skömmum eða lofi. Tölvupóstur með mótmælum streymir nú til íslenskra sendiráða erlendis en um formleg mótmæli hefur ekki verið að ræða. Erlent 18.10.2006 18:53
Bandarískir hermenn ákærðir fyrir morð Fjórir bandarískir hermenn í Írak verða ákærðir fyrir morð og nauðgun og dregnir fyrir herrétt. Verjandi mannanna greindi frá þessu í dag. Tveir þeirra gætu átt yfir höfði sér dauðarefsingu. Erlent 18.10.2006 18:27
Paul McCartney sagður hafa misþyrmt eiginkonu sinni Heather Mills McCartney hefur ekki viljað tjá sig um fréttir fjölmiðla í dag þess efnis að Sir Paul McCartney hafi beitt hana ofbeldi í þau 4 ár sem þau hafa verið gift. Erlent 18.10.2006 18:12
10 hermenn féllu í Írak í gær 10 bandarískir hermenn féllu í árásum í Írak í gær. Fjórir þeirra féllu þegar vegsprengja sprakk nærri Bagdad. Þrír týndu lífi í árás í Diyala-héraði og þrír til víðbótar í öðrum árásum. Árásum á hermenn fljóðþjóðaliðsins í Írak hefur fjölgað síðustu vikur og hafa rúmlega 60 bandarískir hermenn fallið í landinu það sem af er þessum mánuði. Að meðaltali týna 3 bandarískir hermenn lífi í Írak á hverjum degi. Erlent 18.10.2006 17:28
Norðmenn senda ekki fleiri hermenn til Afganistans Norðmenn munu ekki senda sérsveitir til Afganistans eins og Atlantshafsbandalagið hafði farið fram á við þá. Þetta tilkynnti Jona Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, á blaðamannafundi í norska Stórþinginu í dag. Erlent 18.10.2006 15:40
Dow Jones í sögulegu hámarki Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones náði sögulegu hámarki þegar hún rauf 12.000 stiga múrinn á markaði í New York í Bandaríkjunum í morgun. Viðskipti erlent 18.10.2006 14:31
Frjáls félagasamtök þurfa að hætta starfsemi Tugir frjálsra félagssamtaka í Rússlandi, þar á meðal Mannréttindavaktarinnar (Human Rights Watch), þurfa að hætta starfsemi sinni þar sem þau hafa ekki skráð sig hjá stjórnvöldum samkvæmt nýjum lögum. Erlent 18.10.2006 14:00