Erlent
249 250 251 252 253 254 255 256 257 … 334 ›
Samkynhneigð dýr vinsæl Ný sýning um samkynhneigð meðal dýra, sem opnuð var í síðustu viku í Náttúruminjasafni Óslóar, hefur reynst afar vinsæl, að sögn aðstandenda sýningarinnar. Sérstaklega hefur verið mikið um að fjölskyldur komi á sýninguna, hafði breska ríkisútvarpið BBC eftir starfsfólki safnsins. Erlent 20.10.2006 21:17
Pútín grínast með nauðganir Brandari Pútíns Rússlandsforseta í lok blaðamannafundar vegna heimsóknar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, hefur valdið miklum usla víða um heim: Pútín er sagður hafa sagt, í áheyrn rússnesks blaðamanns, að Moshe Katsav forseti væri mikill maður sem hefði nauðgað tíu konum og að við öfundum hann allir. Erlent 20.10.2006 21:17
Líkamsleifar í holræsunum Líkamsleifar manna sem fórust í hryðjuverkaárásunum á Tvíburaturnana 11. september 2001 eru taldar hafa fundist í holræsum nærri staðnum þar sem World Trade Center stóð. Erlent 20.10.2006 21:17
Kallað eftir samningi um orku Leiðtogar Evrópusambandsins kölluðu eftir „nánu og bindandi“ sambandi við Rússland hvað varðar orku á leiðtogafundi sem haldinn var í Lahti í Finnlandi í gær. Eins fóru þeir fram á staðfastari skuldbindingu Rússlands við alþjóðlegt eftirlit með orkumálum. Rússlandsforseti, Vladimír Pútín, mætti á síðari helming fundarins. Erlent 20.10.2006 21:17
Ekki fleiri tilraunir í bígerð Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-il, sagði ríkisstjórn sína ekki ætla að prófa fleiri kjarnorkuvopn og sagðist harma tilraunina sem gerð var í síðustu viku, kom fram í fréttum suðurkóreskra fjölmiðla í gær. Á leiðtoginn að hafa látið þessi orð falla á fundi með afar hátt settum kínverskum embættismanni, Tang Jiaxuan, á fimmtudag. Erlent 20.10.2006 21:16
Hættir viðræðum við Farc-skæruliða Alvaro Uribe, forseti Kólumbíu, hefur hætt viðræðum um fangaskipti við Farc-skæruliða. Uribe kennir skæruliðunum um sprengjuárás í höfuðborginni, Bogota, í gær. Rúmlega 20 særðust í árásinni. Uribe segir nú ekki hægt að gera annað en að senda herinn til að bjarga gíslum úr klóm skæruliðanna. Um það bil 3.000 gíslar eru í haldi skæruliðanna, þar á meðal um það bil 60 stjórnmálamenn og útlendingar. Erlent 20.10.2006 23:50
34 ára aldursmunur Ítalska kvikmyndaleikkonan Gina Lollobrigida, sem eitt sinn var sögð fallegasta kona í heimi, ætlar að ganga að eiga mann sem er 34 árum yngri en hún. Lollobrigida, sem er 79 ára, segir í viðtali við spænska glanstímaritið Hola að hún ætli að ganga að eiga spænska kaupsýslumanninn Javier Rigau, sem er 45 ára. Hún kynntist honum í samkvæmi í Monte Carlo árið 1984 og hafa þau hittst á laun síðan þá, eða í 22 ár. Erlent 20.10.2006 23:39
Mannfallstölur fást ekki lengur frá íraska heilbrigðisráðuneytinu Íraska heilbrigðisráðuneytið mun ekki lengur veita Sameinuðu þjóðunum upplýsingar um mannfall meðal almennra borgara í Írak. Þar með fá samtökin ekki lengur mikilvægar upplýsingar sem gera þeim mögulegt að leggja mat á hversu alvarleg áhrif átök í landinu hafi á almenna borgara. Upplýsingar um mannfall munu framvegis koma frá skrifstofu forstætisráðherra Íraks og telja fulltrúar SÞ það bjóða þeirri hættu heim að upplýsingagjöf um mannfall verði of lituð af hagsmunum ráðamanna í landinu og því mjög pólitísk. Erlent 20.10.2006 21:53
NBC sýnir ekki krossfestingu Madonnu Upptaka af sviðsettri krossfesting poppsöngkonunnar Madonnu á frá nýjustu tónleikaferð hennar verður ekki meðal þess sem bandaríska sjónvarpsstöðin NBC helypir í loftið þegar hún sjónvarpar upptöku af tónleikum hennar í næsta mánuði. Athæfi söngkonunnar hefur vakið mikla reiði meðal kristinna trúarhópa í Bandaríkjunum og Evrópu. Fulltrúar þeirra hafa fordæmt Madonnu sagt hana and-kristna og fremja helgispjöll og guðlast. Því neitar söngkonan og segir þetta gert á þeim hluta tónleikanna þegar hún kalla á fjárframlög til góðagerðarsamtaka sem hjálpa alnæmissjúkum í Afríku. Erlent 20.10.2006 21:27
Jarðskjálfti skók norð vestur hluta Tyrklands Jarðskjálfti sem mældist 5,2 á Richter skók norð-vesturhluta Tyrklands í dag. Íbúar í Istanbúl fundu fyrir skjálftanum. Upptök hans voru í Balikesir-héraði sem er hinumegin við Marmarahafið frá Istanbúl. Ekki hafa borist fregnir af því að nokkur hafi týnt lífi eða hve margir hafi slast og ekki er vitað hvort miklar skemmdir hafi orðið. Erlent 20.10.2006 20:44
Orkumálum ekki blandað í deilur um stjórnmál Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, sammæltust um það í dag að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að orkuviðskipti sambandsins og Rússlands verði dregin inn í deilur þeirra á vettvangi stjórnmálanna í framtíðinni. Þetta kom fram þegar þeir ræddu við blaðamenn eftir fund sinn í Lahti í Finnlandi í dag. Leiðtogafundur Evrópusambandsríkjanna er haldinn þar. Erlent 20.10.2006 20:15
ESB fordæmir brottvísun fulltrúa frá Eþíópíu Evrópusambandið hefur fordæmt þá ákvörðun stjórnvalda í Eþíópíu að vísa tveimur sendifulltrúum sambandsins úr landi. Fulltrúar ESB segja það fullkomlega óásættanlegt. Þeir eru grunaðir um að hafa reynt að smygla tveimur flóttamönnum til Kenía. Annar þeirra er eþíópískur lögfræðingur sem vinnur fyrir Framkvæmdastjórn sambandsins. Yfirvöld í Eþíópíu segja flóttamennina hafa verið handtekna grunaða um alvarlega glæpi. Ekki er þó gefið upp hvað þeir eigi að hafa gert af sér. Erlent 20.10.2006 17:50
Heimferð flóttamanna frestað Flóttamannahjálp SÞ hefur ákveðið að fresta því að flytja fóttamenn aftur til heimahaga sinna í Suður-Súdan vegna átaka sem hafa blossað upp á svæðinu. Flytja átti fólk til Súdan frá flóttamannabúðum í Norður-Úganda en hætt var við það þar sem fréttir bárust af því að um 40 almennir borgarar hefðu fallið í átökum við óþekkta byssumenn. Erlent 20.10.2006 17:28
Samveldið samþykkir niðurstöðu kosninga í Gambíu Kosningaeftirlitsmenn breska samveldisins hafa samþykkt niðurstöður forsetakosninga í Gambíu sem fram fóru 22. september síðastliðinn. Erlent 20.10.2006 16:55
Telja sig hafa fundið líkamsleifar fórnarlamba Líkamsleifar sem taldar eru vera af fórnarlömbum hryðjuverkaárásanna á Tvíburarturnana þann 11. september 2001 hafa fundist í holræsum nærri staðnum þar sem World Trade Center stóð. Erlent 20.10.2006 16:47
Evrópusambandið að miðla málum milli Rússa og Georgíumanna Evrópusambandið (ESB) er sem stendur að reyna að koma á sáttum á milli Rússlands og Georgíu. Samskipti ríkjanna hafa versnað til muna undanfarið vegna áhuga forseta Georgíu á því að ganga í ESB. Javier Solana, utanríkisráðherra ESB, hefur verið í samningaviðræðum við forseta landanna tveggja síðustu daga en með litlum árangri. Erlent 20.10.2006 16:34
Ákærður fyrir sprengjugabb á íþróttavöllum Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákveðið að sækja tvítugan mann í Milwaukee til saka fyrir að hafa birt falsaða hótun á Netinu um að hryðjuverkamenn hygðust sprengja svokallaðar skítugar sprengjur á sjö stórum fótboltavöllum í landinu. Erlent 20.10.2006 16:01
Uppsagnir hjá EADS Stjórn EADS, móðurfélags evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, hefur ákveðið að segja upp 66 starfsmönnum hjá höfuðstöðvum EADS í Munchen í Þýskalandi og í París í Frakklandi. Sömuleiðis verða launahækkanir æðstu stjórnenda móðurfélagsins settar á salt í bili. Viðskipti erlent 20.10.2006 15:34
Ryan Air reynir að stækka við sig Fyrir tveimur vikum ákvað lággjaldaflugfélagið Ryan Air að bjóða í írska flugfélagið Aer Lingus. Á fréttamannafundi sem Ryan Air hélt í dag kom síðan fram að ef að kaupunum yrði myndi starfsmönnum hjá Aer Lingus fækkað þar sem það væri ein af leiðunum til þess að lækka rekstrarkostnað flugfélagsins. Erlent 20.10.2006 15:11
BBC flytur verkþætti til Indlands Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur ákveðið að útvista hluta af starfsemi sinni á Indlandi. Með aðgerðinni er horft til þess að spara um 20 milljónir punda, tæplega 2,6 milljarða krónur, á næstu tíu árum. Viðskipti erlent 20.10.2006 15:04
Vígamenn sækja í sig veðrið í Írak Alls hafa um 15 manns látist og 91 slasast í bardögum á milli öryggissveita og vígamannanna í Írak í dag. Vígamenn sjía, sem eru hliðhollir Muqtada al-Sadr, gerðu áhlaup á bæinn Amara í Suður-Írak. Erlent 20.10.2006 14:23
Pútín í vandræðum eftir misheppnaðan brandara Valdímír Pútín, forseti Rússlands, virðist í slæmum málum í heimalandinu eftir heldur misheppnaðan brandara sem fréttamenn áttu ekki að heyra. Pútín var á blaðamannafundi með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, á dögunum og í lok hans mátti heyra Pútín biðja Olmert fyrir kveðju til forseta Ísraels, Moshe Katsav. Erlent 20.10.2006 14:20
Spáir 6,8 prósenta hagvexti í Rússlandi Alexei Ulyukayev, bankastjóri rússneska seðlabankans, sagði á ráðstefnu um rússnesk efnahagsmál í dag að hagvöxtur í Rússlandi verði um 6,8 prósent á þessu ári. Helsti vöxturinn er í fjárfestingarstefsemi í landinu. Viðskipti erlent 20.10.2006 13:32
ESB fordæmir atvinnuveiðar Íslendinga Evrópusambandið fordæmir nýhafnar hvalveiðar Íslendinga í atvinnuskyni og hvetur stjórnvöld til að endurskoða ákvörðunina. Í tilkynningu frá framkvæmdastjórn sambandsins, sem greint er frá á vef Reuters-fréttastofunnar, segir að hvalir séu viðkvæmur hlekkur lífkeðju hafsins sem þegar sé í hættu vegna veiða og mengunar af mannvöldum. Innlent 20.10.2006 13:17
OPEC dregur úr olíuframleiðslu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, ákvað á fundi sínum í arabaríkinu Katar í dag að minnka olíuframleiðslu um 1,2 milljónir tunna á dag strax í næsta mánuði til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. Þetta er 200.000 tunnum meira en búist var við. Viðskipti erlent 20.10.2006 12:18
Þúsundir fjölmenntu á götu Tehran Þúsundir Írana fjölmenntu á götum úti í Tehran í morgun til að sýna stuðning sinn við Palestínu. Mótmælendur vildu með aðgerðum sínum ítreka andstöðu sína við Ísraelsríki. Erlent 20.10.2006 11:22
Lánshæfi ítalska ríkisins lækkar Alþjóðlegu matsfyrirtækin Standard & Poor´s og Fitch Ratings lækkuðu í gær lánshæfismat Ítalska ríkisins. Ástæður lækkunarinnar eru há skuldastaða hins opinbera og mikill viðskiptahalli á Ítalíu. Viðskipti erlent 20.10.2006 10:50
Stærsta útboð sögunnar Fjárfestar skráðu sig fyrir bréfum í kínverska iðnaðar- og viðskiptabankanum, sem er einn sá stærsti í Kína og í eigu ríkisins, fyrir jafnvirði 19 milljarða bandaríkjadala, eða 1.297 milljarða íslenskra króna, að markaðsvirði í almennu hlutafjárútboði í dag. Þetta er stærsta útboð sögunnar. Bankinn verður skráður á markað í Hong Kong og Kína í lok mánaðarins. Viðskipti erlent 20.10.2006 10:00
Vopnahléð lítils virði í Balad í Írak Nýumsamið vopnahlé í Balad, um 130 km norður af Bagdad, sem héraðshöfðingjar samþykktu á miðvikudaginn virðist ekki hafa mikil áhrif. Í gær létust níu manns þegar 15 sprengjum var varpað í árás á þorp súnnímúslima í nágrenni Balad-borgar. Borgin Balad er nokkurs konar eyja sjíamúslima á svæði sem er að mestu byggt súnnímúslimum. Erlent 20.10.2006 10:14
Aftöku seinkað um 60 daga Breskur ríkisborgari, sem taka átti af lífi í Pakistan meðan á opinberri heimsókn Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles eiginkonu hans stæði, verður ekki líflátinn fyrr en í lok ársins. Erlent 19.10.2006 21:02