Viðskipti
170 171 172 173 174 175 176 177 178 … 223 ›
Betri útkoma hjá ríkissjóði en áætlað var Breyting á handbæru fé frá rekstri ríkissjóðs fyrstu níu mánuði ársins er jákvæð um 14,6 milljarða króna á tímabilinu. Innlent 3.11.2005 18:06
Tveggja milljarða hagnaður Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) skilaði 2.247 milljóna króna hagnaði á fyrstu þremur ársfjórðungunum sem er metafkoma. Hagnaðurinn á tímabilinu jókst um fimm prósent ef miðað er við sama tímabil í fyrra. Innlent 2.11.2005 22:34
VÍS kaupir breskt tryggingafyrirtæki Vátryggingafélag Íslands hf., VÍS, keypti í dag 54% hlutafjár í breska tryggingafélaginu IGI Group Ltd., og er þar með fyrst íslenskra tryggingafélaga til að eignast meirihluta í erlendu tryggingafélagi. Innlent 2.11.2005 23:07
Gefa ekki rétta mynd af hagnaðinum Kaupréttarsamningarnir geta orðið til þess að hagnaðartölur gefi ekki rétta mynd af afkomu fyrirtækja þar sem þeir koma ekki fram í bókhaldi. Þarna getur munað tugum prósenta. Innlent 2.11.2005 17:05
Of fjarskipti tryggja sér Kall Og fjarskipti hafa tryggt sér allt hlutafé í færeyska fjarskiptafyrirtækinu Kalli p/f og ræður því yfir öllum hlutum í félaginu. Innlent 2.11.2005 17:16
Hlutafjáraukning hjá FL Group Hlutafé í FL Group verður aukið um fjörutíu og fjóra milljarða króna að markaðsvirði. Þar með er talið hlutafé sem afhent verður sem hluti kaupverðs í skiptum fyrir hluti í Sterling flugfélaginu. Viðskiptavakt verður bæði í Landsbankanum og Kaupþingi banka. Innlent 2.11.2005 17:01
Aðeins þriðjungur félaga tekur þátt Kauphöll Íslands heldur kynningardag fyrir markaðsaðila í London í næstu viku. Aðeins þriðjungur félaga í kauphöllinni tekur þátt í kynningunni. Innlent 2.11.2005 15:28
Krónan hækkaði um 1,18% Krónan hækkaði um 1,18 prósent í miklum viðskiptum í gær og hefur þannig unnið upp lækkunina sem varð í síðustu viku. Vísitala krónunnar er nú 101,2 og hefur krónan aðeins einu sinni áður mælst sterkari. Viðskipti innlent 2.11.2005 07:54
Lítil svör um kaupin á Sterling Vilhjálmur Bjarnason, hluthafi í FL Group, fékk lítil svör við spurningum sínum um kaupin á Sterling á hluthafafundi FL Group í dag. Hann ætlar að bera spurningarnar upp aftur og aftur þar til fullnægjandi svör hafa fengist. Innlent 1.11.2005 16:50
Sljóleiki gagnvart ofurkjörum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur að kaupréttarsamningar helstu stjórnenda Kaupþings banka orki tvímælis en þeir séu ekki einangrað tilvik, svona samningar séu mun útbreiddari en áður. Innlent 1.11.2005 15:51
Actavis setur þunglyndislyf á markað Actavis hefur sett þunglyndislyfið Sertraline á markað í 14 löndum Evrópu eftir að einkaréttur á framleiðslu lyfsins rann út þar. Í tilkynningu frá Actavis kemur fram að lyfið sé framleitt í verksmiðjum hér á landi og á Möltu og sé í töflu- og hylkjaformi. Um sé að ræða mestu markaðssetningu Actavis á þessu ári. Viðskipti innlent 1.11.2005 15:48
Hagnast um 800 milljónir Sjö stjórnendur hjá KB banka hagnast um nærri því 769 milljónir króna ákveði þeir að selja hluti sem þeir fengu samkvæmt kaupréttarsamningi árið 2000. Markaðsvirði hlutanna er samkvæmt gengi KB banka í gær um 929 milljónir króna en þeir voru keyptir á genginu 102,5 en gengi bréfa í KB banka var 596 krónur á hvern hlut í gær. Viðskipti innlent 31.10.2005 22:19
Eyðsla fólks í ágúst á við jólamánuð í fyrra Íslendingar eyddu hærri upphæð í ágúst síðastliðnum en fyrir jólin í fyrra. Eyðsla fyrstu níu mánuði ársins hefur aldrei verið eins mikil og í ár. Reikna má með um fjögurra milljarða króna meiri eyðslu fyrir næstu jól en síðustu. Innlent 31.10.2005 22:19
Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs staðfestar Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á langtímaskuldbindingum í erlendri mynt AA- og AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Um leið hefur fyrirtækið staðfest lánshæfiseinkunnina A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og segir að horfur um lánshæfismat séu stöðugar. Innlent 31.10.2005 17:03
66 milljarða hagnaður Hagnaður viðskiptabankanna þriggja á fyrstu níu mánuðum ársins nam 66 milljörðum króna.Bankarnir hafa því hagnast um 240 milljónir á hverjum degi tímabilsins. KB banki og Landsbankinn birtu uppgjör sín í gær. KB banki hefur hagnast mest, um 34,5 milljarða frá áramótum til loka september, sem er aðeins meira en hagnaður allra bankanna fyrir sama tímabil í fyrra. Heildareignir bankanna eru nú 4.700 milljarðar króna, um fimmföld landsframleiðsla þjóðarinnar. Þær hafa aukist um 3.600 milljarða frá ársbyrjun. Eigið fé bankanna er tæpir 350 milljarðar króna, sem er ríflega fjárlög íslenska ríkisins. Viðskipti innlent 29.10.2005 00:37
Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:13
Eru engin takmörk? Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni. Innlent 27.10.2005 17:26
Fjármálaeftirlit Svíþjóðar varar KB banka við Kaupþing banki hefur fengið alvarlega viðvörun frá fjármálaeftirlitinu í Svíþjóð, meðal annars fyrir að hygla fyrirtæki í eigu stjórnarmanna Kaupþings, á kostnað annarra viðskiptavina. Innlent 27.10.2005 12:02
Nýtt skipurit hjá Samskipum Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Samskipum á Íslandi og hafa um leið tveir nýir framkvæmdastjórar verið ráðnir til starfa. Rekstur Samskipa byggist nú á fimm sviðum í stað þriggja áður. Viðskipti innlent 27.10.2005 08:41
Ótrúlegar skýringar segir Byko "Okkur finnst gróflega brotið á rétti okkar," segir Ingvar Sverrisson, annar framkvæmdastjóra Góðs fólks. "Með ólíkindum er að tveir risar á byggingavörumarkaði skuli koma fram með nákvæmlega sömu hugmyndina á sama tíma." Hann segir fyrirtækið hafa lagst yfir að kanna allt upplýsingaöryggi hjá sér og hefur ekki útlilokað að málið verði kært. Innlent 26.10.2005 22:24
Gæti skipt um flugvöll ytra Flugfélagið Sterling gæti innan skamms hætt að fljúga til og frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Í staðinn verði Malmö-flugvöllur notaður fyrir starfsemi flugfélagsins líkt og lággjaldaflugfélagið Ryanair gerir. Þessu lýsti Hannes Smárason, forstjóri FL Group, yfir í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld. Viðskipti innlent 26.10.2005 22:22
Fjárfestingarsjóður Kaupþings í Svíþjóð fær viðvörun Fjárfestingarsjóður Kaupþings í Svíþjóð, Kaupþing Fonder, hefur fengið viðvörun frá sænska fjármálaeftirlitinu, samkvæmt frétt í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter í dag. Sjóðurinn er sakaður um að hafa dregið taum stórs hluthafa á kostnað annarra og að hafa lagt rangt mat á hluthafaeign. Viðskipti innlent 26.10.2005 18:05
Skuldabréfa útgáfa erlendis í íslenskum krónum nálgast þolmörk Útgáfa skuldabréfa í íslenskum krónum erlendis er komin nálægt þolmörkum íslenska hagkerfisins að sögn Tryggvs Þórs Herbertsson, forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Útgáfan er nú komin í eitt hundrað milljarða króna eða sem nemur einum þriðja af fjárlögum íslenska ríkisins. Innlent 26.10.2005 17:33
Sala á framleiðslu jókst um 45% Sala á framleiðslu Össurar hf. jókst um fjörtíu og fimm prósent í Bandaríkjadölum samkvæmt uppgjöri þriðja ársfjórðungs. Innlent 26.10.2005 17:19
Eiga kost á störfum erlendis Þeim 40 starfsmönnum sem sagt hefur verið upp störfum hjá Flögu Medcare munu fá aðstoð við að leita sér að nýrri vinnu. Starfsmannastjóri fyrirtækisins útilokar ekki að sumir muni eiga þess kost að vinna hjá höfðuðstöðvum fyrirtækisins erlendis. Innlent 26.10.2005 17:18
Gengi hlutabréfa Flögu Group hf. hefur hríðfallið Gengi hlutabréfa Flögu Group hf. hafa hríðfallið, eða um nær helming á síðasta árið og náðu hlutabréfin lágmarki fyrr í mánuðinum. Afkoma fyrirtækisins hefur farið versnandi á síðustu árum og áætlanir um bætta afkomu hafa ekki gengið eftir. Innlent 26.10.2005 17:10
Öflun kaupir stærsta seljanda Apple á Norðurlöndum Öflun ehf., sem er með umboð fyrir Apple á Íslandi, hefur keypt 37,8 prósenta hlut í norska fyrirtækinu Office Line sem skráð er í kauphöllinni í Ósló. Office Line rekur sjö verslanir og þrettán söluskrifstofur í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi og er stærsti seljandi Apple-vara á Norðurlöndum, einkum til fyrirtækja og stofnana. Viðskipti innlent 26.10.2005 13:59
Starfsemi Medcare færð úr landi Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare-Flögu úr landi og styrkja starfsemi félagsins í Bandaríkjunum og á Evrópumarkaði. Hátt í 40 starfsmönnum hér á landi verður sagt upp störfum um næstu mánaðamót og hefur það verið tilkynnt á starfsmannafundum. Innlent 26.10.2005 13:15
Segist hafa fengið margar fyrirspurnir Flugfélagið Iceland Express er komið á söluskrá og hefur fyrirtækjasviði Kaupþings banka verið falið að annast söluna. Annar eigenda félagsins segist hafa fengið margar fyrirspurnir um félagið. Innlent 26.10.2005 12:08
40 starfsmönnum Medcare sagt upp Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare utan og verður hátt í 40 starfsmönnum hér á landi sagt upp. Búið er að tilkynna um yfirvofandi uppsagnir á starfsmannafundum. Innlent 26.10.2005 08:54
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent