Grænland
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 14 ›
Takmörkunum aflétt á Grænlandi Ekki hafa komið upp nein ný tilfelli kórónuveirusmita í grænlensku höfuðborginni Nuuk og hefur landsstjórnin því ákveðið að aflétta þeim takmörkunum sem komið var á fyrir helgi. Erlent 1.6.2021 07:42
Þrír greindust í Nuuk í gær Þrír greindust með kórónuveiruna í Nuuk á Grænlandi í gær eftir að þrjú smit greindust í vikunni. Óttast er að veiran hafi náð að dreifa sér víða og eru sem flestir hvattir til þess að fara í skimun. Erlent 29.5.2021 14:24
Loka á öll flug til Nuuk og veitingastöðum lokað Grænlenska stjórnin hefur ákveðið að loka á allt flug til höfuðborgarinnar Nuuk fram á mánudag. Íþróttaviðburðir verða sömuleiðis bannaðir og veitingastöðum gert að loka. Erlent 28.5.2021 14:24
Vilja ekki geyma brottvikna hælisleitendur á Grænlandi Ríkisstjórn Danmerkur hafnar tillögu Danska Þjóðarflokksins þess efnis að brottviknir hælisleitendur verði sendir í aflagða herstöð á Grænlandi. Þetta kom fram í ræðu ráðherra málefna innflytjenda, sósíaldemókratans Mattias Tesfaye, í danska þinginu. Erlent 9.5.2021 07:27
Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum. Erlent 5.5.2021 10:53
Grænlendingar afnema fjöldatakmarkanir Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á Grænlandi í gær þar sem gripið er til töluverðra afléttinga. Erlent 20.4.2021 08:01
RAX Augnablik: Fundu hágrátandi ungbarn afskiptalaust í fimbulkulda „Lífið á Grænlandi er mjög ólíkt því sem við eigum að venjast, en það er samt mjög sjarmerandi og heillandi líf þó að það sé erfitt.“ Menning 18.4.2021 07:47
Ný ríkisstjórn Grænlands með nauman meirihluta Hinn 34 ára gamli Múte B. Egede, er yngsti forsætisráðherra Grænlands. Hann leiðir nýja ríkisstjórn landsins sem opinberuð var í gær. Egede er formaður Inuit Ataqatigiit (IA) en flokkurinn vann mikinn sigur í kosningunum sem haldnar voru á Grænlandi í byrjun mánaðarins. Erlent 17.4.2021 08:52
Egede kynnir ríkisstjórn sína síðdegis Múte B. Egede, formaður Inuit Ataqatigiit (IA), mun kynna nýjan stjórnarsáttmála og ráðherra í ríkisstjórn sinni á fundi í menningarmiðstöðinni Katuaq í Nuuk síðar í dag. Erlent 16.4.2021 13:08
Katti Frederiksen hlýtur Vigdísarverðlaunin 2021 Grænlenska málvísindakonan, ljóðskáldið og baráttukonan Katti Frederiksen, núverandi mennta- og menningarmálaráðherra Grænlands, hlaut í dag alþjóðleg menningarverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Innlent 15.4.2021 23:03
Siumut gengur frá samningsborðinu Siumut, sem hefur leitt stjórnina á Grænlandi síðustu ár, er ekki lengur hluti af stjórnarmyndunarviðræðum Inuit Ataqatigiit sem vann mikinn sigur í kosningunum í landinu í síðustu viku. Erlent 13.4.2021 13:43
RAX Augnablik: „Við verðum að sækja þá strax“ „Þetta er náttúrulega ekki til eftirbreytni,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson um ljósmyndir sem hann tók af tveimur mönnum á ísjaka við Grænland. Menning 11.4.2021 07:00
Ljóst að ekkert verður úr námuvinnslunni á Suður-Grænlandi Ljóst má vera að Inuit Ataqatigiit, sem vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum í gær, mun stöðva námuvinnsluna á Suður-Grænlandi sem áætlanir voru uppi um. Þetta segir Kristjana Guðmundsdóttir Motzfeldt í samtali við Vísi. Erlent 7.4.2021 12:43
Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. Erlent 7.4.2021 07:45
Kosningar á Grænlandi: Innanflokksátök, erlendar fjárfestingar og stórveldakapphlaup Ný forysta grænlenska stjórnmálaflokksins Siumuts ákvað á síðustu stundu að skipta Kim Kielsen, fyrrverandi formanni flokksins og forsætisráðherra Grænlands, út sem fulltrúa flokksins í sjónvarpskappræðum sem fram fóru á föstudaginn dag í tengslum við þingkosningarnar sem fram fara á Grænlandi á þriðjudaginn. Erlent 5.4.2021 00:06
Þrennt drukknaði við strendur Grænlands Tveir menn og kona drukknuðu eftir sjóslys við strendur Grænlands á fimmtudaginn. Fólkið var á siglingu frá Narsaq til Qaqortoq við suðurstrendur Grænlands en skilaði sér ekki á áfangastað. Erlent 21.3.2021 08:28
RAX Augnablik: Forvitnin varð þeirra banabiti „Ég þekkti engan og var svona að kynnast mönnum og finna út hverja væri best að tala við. Ole var vinalegur og við urðum ágætis vinir. Hann var mjög góður maður,“ segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson um Ole Nyelsen. Menning 21.3.2021 07:01
Grænlenskur togari sokkinn eftir tveggja daga eldsvoða Grænlenski togarinn Polar Aassik er nú sokkinn undan ströndum Qasigiannguit á vesturströnd landsins, en eldur hafði logað í skipinu í um tvo sólarhringa. Erlent 18.3.2021 08:22
Fyrst allra Grænlendinga til að leika í Meistaradeild Evrópu Á miðvikudaginn varð Asii Kleist Berthelsen fyrst allra Grænlendinga til að leika í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þó svo að leikurinn hafi tapast þá má með sanni segja að Berthelsen hafi skráð sig á spjöld sögunnar. Fótbolti 12.3.2021 07:01
Heimsveldin og auðlindir Grænlands Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu. Erlent 4.3.2021 07:00
Ferðamenn frá smitlausu Grænlandi sleppa við PCR-próf Ferðamenn frá Grænlandi verða frá og með 24. febrúar 2021 undanþegnir kröfum um framvísun á vottorði um neikvætt PCR-próf, skimun og sóttkví vegna COVID-19 við komuna til Íslands. Þetta kemur fram á vef Landlæknis. Innlent 24.2.2021 16:55
Hirti falið að lokka fleiri ferðamenn til Grænlands Hjörtur Smárason hefur verið ráðinn sem nýr forstjóri Ferðamálaráðs Grænlands, Visit Greenland. Hann mun taka við stöðunni af Juliu Pars í byrjun apríl. Viðskipti erlent 18.2.2021 13:30
Hafa boðað til kosninga á Grænlandi Mikill meirihluti grænlenska þingsins samþykkti í gærkvöldi að boða til kosninga sem fram munu fara þann 6. apríl næstkomandi, samhliða áður boðuðum sveitarstjórnarkosningum í landinu. Framundan er því sjö vikna kosningabarátta. Erlent 17.2.2021 08:13
RAX Augnablik: Var smeykur að mynda kónginn í Thule Ragnar Axelsson heimsótti Thule, sem var nyrsta byggð í heimi, árið 1987. Þar fylgdist hann með veiðimönnum úti á ísnum við Grænland í fyrsta skipti. Menning 14.2.2021 07:02
Enn mistekst Erik Jensen að bola Kim Kielsen burt Harðvítug valdabarátta um leiðtogahlutverkið á Grænlandi tók á sig nýja mynd í dag þegar Erik Jensen, formaður Siumut-flokksins, neyddist til að lýsa því yfir að honum hefði ekki tekist að fá neinn annan flokk í lið með sér til að mynda nýja landsstjórn. Þetta þýðir að Kim Kielsen heldur áfram stöðu sinni sem forsætisráðherra Grænlands, þrátt fyrir að Erik Jensen hafi fellt hann úr formannssæti Siumut í nóvember. Erlent 9.2.2021 23:27
Allt í loft upp á Grænlandi eftir að Kielsen missti þingmeirihlutann Landsstjórn Grænlands missti í dag meirihluta sinn á grænlenska þinginu þegar einn þriggja stjórnarflokka, Demokraterne, tilkynnti óvænt að hann hefði sagt skilið við stjórnina. Formaður Demokraterne, Jens Frederik Nielsen, krafðist þess jafnframt að efnt yrði til nýrra þingkosninga. Erlent 8.2.2021 18:45
Fagnar stefnumörkun um aukið samstarf Íslands og Grænlands Utanríkisráðherra Grænlands, Steen Lynge, fagnar stefnumörkun íslenskra stjórnvalda um að stórefla samstarf Íslendinga og Grænlendinga. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ráðherrans á heimasíðu landsstjórnar Grænlands í tilefni af útgáfu yfirgripsmikillar skýrslu um verkefnið, sem þeir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Össur Skarphéðinsson, formaður Grænlandsnefndar ráðherrans, kynntu fyrir helgi. Erlent 25.1.2021 11:12
Gengur hægt að bola Kim Kielsen úr starfi Kim Kielsen heldur enn stöðu sinni sem forsætisráðherra Grænlands. Erik Jensen, sem fyrir tveimur mánuðum felldi Kielsen úr formannsstóli Siumut-flokksins, virðist hafa mistekist að sannfæra fulltrúa samstarfsflokkanna í landsstjórn Grænlands um að hann ætti jafnframt að setjast í forsæti landsstjórnarinnar. Erlent 24.1.2021 23:10
RAX Augnablik: „Þegar hann er í sínum versta ham getur hann sprengt hús í tætlur“ „Piteraq þýðir sá sem ræðst á þig og hann verður til inni á ísnum, inni á jökli og rennur niður þrjú þúsund metra inn að austurströndinni eins og ósýnilegt stórfljót,“ segir Ragnar Axelsson. Lífið 24.1.2021 07:01
Segir Grænland vera að hrökkva í gírinn sem tilvonandi sjálfstætt ríki Stefnt er að því að stórefla samstarf Íslendinga og Grænlendinga og var fyrsta skrefið kynnt í dag þegar Össur Skarphéðinsson, formaður Grænlandsnefndar utanríkisráðherra, afhenti Guðlaugi Þór Þórðarsyni yfirgripsmikla skýrslu um hvernig best væri að fara að. Innlent 21.1.2021 22:00