Fjármálafyrirtæki
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 57 ›
Spá 0,75 prósenta hækkun stýrivaxta Bæði hagfræðideild Landsbankans og Greining Íslandsbanka spá því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 0,75 prósentustig í næstu viku. Gangi spárnar eftir fara meginvextir bankans úr 3,75 í 4,5 prósent. Viðskipti innlent 16.6.2022 09:22
Hækka spá sína og gera ráð fyrir 8,7 prósent verðbólgu í júní Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að ársverðbólga mælist 8,7% í júní en hún var 7,6% í maí. Um er að ræða talsvert meiri hækkun en bankinn hafði áður spáð og skýrist það fyrst og fremst af því að verð á eldsneyti hefur hækkað mun meira en hagfræðideildin átti von á. Viðskipti innlent 15.6.2022 10:13
Lækka hámarkshlutfall fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur Gæta þarf þess að vaxandi efnahagsumsvifum fylgi ekki yfirdrifin áhættusækni og óhóflegur vöxtur útlána sem gæti veikt viðnámsþrótt fjármálakerfisins. Verði bakslag í alþjóðlegum efnahagsbata gæti það haft áhrif á fjármálastöðugleika hér á landi. Bankinn hefur ákveðið að lækka hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána fyrir fyrstu kaupendur úr 90 prósent í 85 prósent. Viðskipti innlent 15.6.2022 08:37
Stokkað upp í markaðsviðskiptum hjá Kviku Tilkynnt var um talsverðar mannabreytingar innan Kviku í dag en á meðal þeirra sem hefur ákveðið að láta af störfum er Stefán Eiríks Stefánsson sem hefur verið forstöðumaður gjaldeyrismiðlunar bankans frá árinu 2015. Klinkið 13.6.2022 20:25
Spá því að verðbólga fari úr 7,6 í 8,4 prósent Greining Íslandsbanka spáir 8,4% verðbólgu í júnímánuði en tólf mánaða verðbólga mældist 7,6% í maí og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars 2010. Gangi spá bankans eftir væri um að ræða 1,0% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrri mánuði. Viðskipti innlent 13.6.2022 14:35
Kviku heimilað að kaupa færsluhirðingarsamninga frá Rapyd og Valitor Samkeppniseftirlitið hefur lokið rannsókn sinni á kaupum Kviku banka á færsluhirðingarsamningum úr fórum sameinaðs félags Rapyd og Valitors. Bankanum er nú formlega heimilað að kaupa samningana en kaupin eru þó háð því að Seðlabankinn heimili Rapyd að kaupa Valitor. Viðskipti innlent 10.6.2022 15:17
Viðskiptavinir Íslandsbanka njóta hækkunar ekki fyrr en á næsta ári Íslandsbanki mun ekki líta til hækkunar fasteignamats fyrr en nýtt mat tekur opinberlega gildi um áramótin. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa þegar byrjað að taka mið af nýju og hækkuðu fasteignamati. Innlent 3.6.2022 15:15
Hækka íbúðalánavexti í annað sinn á tveimur vikum Landsbankinn hækkaði á miðvikudag vexti óverðtryggðra íbúðalána í annað sinn á um tveimur vikum. Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum lánum til þriggja ára hækkuðu um 0,35 prósentustig og 0,30 prósentustig í tilfelli nýrra lána með föstum vöxtum til fimm ára. Neytendur 3.6.2022 08:00
Landsbankinn lokar afgreiðslunni á Borgarfirði eystri Landsbankinn hefur lokað afgreiðslu bankans á Borgarfirði eystri og hefur hún færst til útibúsins á Egilsstöðum. Viðskipti innlent 2.6.2022 10:08
Arion appið liggur niðri Arion appið liggur nú niðri og er sem stendur ekki aðgengilegt. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:43
Fossar nýr fjárfestingarbanki Fossar markaðir hafa fengið starfsleyfi sem fjárfestingabanki hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands og fengið nafnið Fossar fjárfestingarbanki hf. Fossar voru stofnaðir árið 2015 og þjónusta innlenda og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Viðskipti innlent 1.6.2022 11:09
Hærri vextir og meiri áhættufælni lækkar verðmat á Íslandsbanka Gerbreytt vaxtaumhverfi ásamt aukinni áhættufælni fjárfesta þýðir að ávöxtunarkrafa á eigið fé Íslandsbanka hækkar talsvert, eða úr 11,3 prósentum í 12,3 prósent, og við það lækkar nokkuð verðmatsgengi bankans, að mati Jakobsson Capital. Innherji 31.5.2022 12:07
Fjármálastjóri Kviku kaupir í bankanum fyrir um 10 milljónir Ragnar Páll Dyer, fjármálastjóri Kviku, keypti í morgun hlutabréf í bankanum fyrir tæplega 10 milljónir króna. Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar keypti hann samtals 500 þúsund hluti á genginu 19,7 krónur á hlut. Innherji 30.5.2022 10:41
Forstjóri Kviku selur bréf í bankanum fyrir nærri 70 milljónir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku banka, seldi hlutabréf í Kviku í dag fyrir nærri 70 milljónir samkvæmt tilkynningu sem var send til Kauphallarinnar. Seldi hann 3,3 milljónir hluta á genginu 20,4. Innherji 27.5.2022 15:18
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Rapyd á Valitor Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna ísraelska fjártæknifyrirtækisins Rapyd og íslenska greiðslumiðlunarfyrirtækisins Valitor. Tilkynnt var í byrjun júlí 2021 að Rapyd vildi kaupa allt hlutafé í félaginu af Arion banka fyrir 100 milljónir bandaríkjadala eða um 12,3 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 23.5.2022 09:21
Hersir hverfur frá úttekt á útboði ÍSB eftir ábendingu um „læk“ Hersis Sigurgeirsson, dósent í fjármálum við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og ráðgjafi fyrir Seðlabanka Íslands, hefur látið af störfum sem ráðgjafi við úttekt Ríkisendurskoðunar á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka eftir að Bankasýslan gerði athugasemd við að hann hefði „lækað“ við færslu á Facebook sem varðaði útboðið. Innherji 20.5.2022 11:32
Loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands Arion banki hefur ákveðið að loka fyrir allar símgreiðslur til Rússlands, óháð því hvort að móttakandi sé á lista yfir þvingunaraðgerðir eða ekki. Viðskipti innlent 20.5.2022 10:07
Verðbólga átta prósent á þessu ári og sex prósent stýrivextir Verðbólga mun ná hámarki í haust þegar hún verður rúmlega 8% en lækka síðan aftur, ef marka má nýja hagspá Hagfræðideildar Landsbankans. Þá muni stýrivextir halda áfram að hækka og ná 6% í lok þessa árs. Gert er ráð fyrir því að hagvöxtur verði töluverður og atvinnuleysi haldi áfram að minnka samhliða því. Viðskipti innlent 19.5.2022 10:01
Hvað þýðir þetta fyrir heimilin í landinu? Í gær birtum við í Greiningu Íslandsbanka nýja og ferska þjóðhagsspá. Þar er spáð fyrir um þróun efnahagsmála hér á landi árin 2022-2024. Í slíkum spám er yfirleitt litið á stóru tölurnar en eðlilegt er að við spyrjum okkur hvaða áhrif þróun þeirra hefur á fjárhag hvers og eins okkar. Eins og spurt er í útvarpinu „hvaða þýðir þetta fyrir heimilin í landinu?“. Reynum að svara því helsta. Skoðun 19.5.2022 08:00
Íslandsbanki hækkar vexti óverðtryggðra húsnæðislána síðastur bankanna Íslandsbanki hyggst hækka vexti óverðtryggðra húsnæðislána um 0,70 til 1 prósentustig, en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum í dag. Viðskipti innlent 18.5.2022 16:53
Spá öflugum hagvexti og allt að sex prósent stýrivöxtum í lok árs Greining Íslandsbanka spáir 5,0% hagvexti á þessu ári sem yrði hraðasti vöxtur frá árinu 2016. Gert er ráð fyrir 2,7% vexti á næsta ári og 2,6% árið 2024. Viðskipti innlent 18.5.2022 06:00
Óbeinn hlutur Landsbankans í Marel lækkað í virði um sex milljarða á árinu Mikið verðfall á gengi hlutabréfa Marels, sem hefur lækkað um 26 prósent frá áramótum, þýðir að óbeinn eignarhlutur Landsbankans í félaginu hefur fallið í virði úr 23,5 milljörðum króna í 17,3 milljarða á fjórum og hálfum mánuði, eða um liðlega 6,2 milljarða. Meira en 250 milljarðar hafa samtals þurrkast út af markaðsvirði Marels frá því í lok ágúst í fyrra þegar hlutabréfaverð félagsins var hvað hæst. Innherji 17.5.2022 07:00
Landsbankinn hækkar vexti á óverðtryggðum lánum Vextir óverðtryggðra lána og sparireikninga hjá Landsbankanum hækka um 0,7 til eitt prósentustig á morgun. Bankinn vísar til þess að Seðlabankinn hafi hækkað vexti um eitt prósentustig fyrr í þessum mánuði. Viðskipti innlent 16.5.2022 17:36
Yfirmaður hjá Arion handtekinn á árshátíð Háttsettur yfirmaður í Arion banka mun hafa verið handtekinn vegna meintrar líkamsárásar á öryggisvörð á árshátíð fyrirtækisins. Þetta var um síðustu helgi og er öryggisvörðurinn sagður ætla að leggja fram kæru. Innlent 14.5.2022 12:41
Arion banki ríður á vaðið og hækkar vextina Arion banki hefur hækkað inn- og útlánavexti sína í framhaldi af eins prósents stýrivaxtahækkun Seðlabankans í síðustu viku. Breytingin tekur gildi í dag. Viðskipti innlent 13.5.2022 15:13
Seinna útboð ÍSB heppnaðist betur en hið fyrra, segir bankasýslustjóri Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, telur að sala ríkissjóðs á 22,5 prósenta hlut í Íslandsbanka í mars, hafi heppnast betur en frumútboð bankans í fyrra. Innherji 13.5.2022 13:49
Spá því að verðbólgan nái toppi í lok sumars Bæði Íslandsbanki og Landsbankinn spá því að verðbólga muni aukast á næstu mánuðum. Íslandsbanki spáir 7,5 prósent verðbólgu í maí, Landsbankinn 7,6 prósent. Báðir bankar spá því að verðbólgan nái toppi í sumar, en fari svo hægt hjaðnandi Viðskipti innlent 13.5.2022 11:03
Kvika skilar 16 prósenta arðsemi og hækkar afkomuspá bankans Hagnaður Kviku banka á fyrstu þremur mánuðum ársins nam 1.740 milljónum króna, sem var í samræmi við áætlanir á fjórðungnum, og arðsemi af efnislegu eigin fé félagsins fyrir skatta var 16,1 prósent. Innherji 12.5.2022 16:58
Kvika fær sömu einkunn og stóru bankarnir í fyrsta lánshæfismatinu Forstjóri Kviku segir að ný lánshæfiseinkunn sem bankinn hefur fengið frá Moody´s muni gegna stóru hlutverki í að lækka fjármagnskostnað félagsins. Innherji 12.5.2022 09:01
Íslandsbanki hafi ekki hækkað vexti eins hratt og Seðlabankinn Bankastjóri Íslandsbanka segir að bankinn hafi ekki hækkað vexti í takt við stýrivaxtahækkanir Seðlabankans síðustu misseri. Hún er bjartsýn á að viðskiptavinir bankans ráði við hækkanir á afborgunum húsnæðislána en um sextíu prósent þeirra eru á föstum vöxtum til nokkurra ára. Viðskipti innlent 9.5.2022 17:00