NBA

NBA

Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.

Fréttamynd

Diaw líklegur framfarakóngur

Hinn fjölhæfi franski leikmaður Boris Diaw hjá Phoenix Suns þykir líklegastur til að verða kjörinn framfarakóngur NBA deildarinnar í ár, en á hverju ári er einn leikmaður verðlaunaður sérstaklega fyrir að hafa náð mestum framförum frá árinu áður.

Sport
Fréttamynd

Kenyon Martin í bann

Framherjinn Kenyon Martin hefur verið settur í bann af liði sínu Denver Nuggets í óákveðinn tíma fyrir hegðun sem þótti hafa slæm áhrif á andann í liðinu. Martin hefur átt við hnémeiðsli að stríða í allan vetur og hefur ekki geta beitt sér að fullu í úrslitakeppninni, en hann á að hafa látið þjálfara sinn George Karl heyra það í hálfleik í tapinu gegn LA Clippers í fyrrakvöld.

Sport
Fréttamynd

Verður Nash valinn aftur?

Nokkur dagblöð í Bandaríkjunum greina frá því í dag að kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns verði kjörinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar annað árið í röð á næstu vikum. Nash lék betur í vetur en í fyrra og fór fyrir liði Phoenix sem náði mjög góðum árangri þrátt fyrir að vera án Amare Stoudemire.

Sport
Fréttamynd

LeBron James kippt niður á jörðina

LeBron James sýndi að hann á nokkuð eftir ólært í gær þegar lið hans Cleveland tapaði öðrum leiknum við Washington á heimavelli sínum 89-84. James skoraði 26 stig fyrir Cleveland, en tapaði 10 boltum og gerði mjög dýr klaufamistök á lokasprettinum sem kostuðu lið hans sigurinn. Lið Washington lék mikið betur en í fyrsta leiknum með Gilbert Arenas sem sinn besta mann, en hann skoraði 30 stig.

Sport
Fréttamynd

Sýningin heldur áfram í kvöld

Úrslitakeppni NBA heldur áfram á fullu í kvöld og alls eru þrír leikir á dagskránni. Sjónvarpsleikurinn á NBA TV er annar leikur Cleveland Cavaliers og Washington Wizards og er hann á besta tíma klukkan 23:00. LeBron James var maður fyrsta leiksins og náði þrefaldri tvennu í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni á ferlinum.

Sport
Fréttamynd

Johnson þjálfari ársins

Nú hefur verið staðfest að Avery Johnson hjá Dallas Mavericks hafi verið kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni. Johnson hafði nokkra yfirburði í valinu og hlaut 419 atkvæði, þar af 63 í fyrsta sæti. Mike D´Antoni hjá Phoenix varð annar í valinu með 247 atkvæði (27 í fyrsta sæti) og Flip Saunders hjá Detroit Pistons varð þriðji með 233 (18 í fyrsta sæti) stig.

Sport
Fréttamynd

Verður Johnson þjálfari ársins?

Nokkur dagblöð í Dallas og nágrenni segjast í dag hafa heimildir fyrir því að Avery Johnson, þjálfari Dallas Mavericks, verði í kvöld útnefndur þjálfari ársins í NBA deildinni. Johnson stýrði Dallas til 60 sigra í deildarkeppninni í vetur og hefur enginn þjálfari í sögu deildarinnar átt betri byrjun. Johnson tók við liðinu af Don Nelson í fyrra og stýrði liði Vesturdeildarinnar í Stjörnuleiknum í febrúar.

Sport
Fréttamynd

Miami og Clippers í góðri stöðu

Miami Heat og LA Clippers eru komin í góða stöðu í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA eftir sigra í gær. Miami Heat lagði Chicago 115-108 og náði 2-0 forystu í einvíginu eins og LA Clippers gegn Denver eftir 98-87 sigur á heimavelli í gær.

Sport
Fréttamynd

Artest og Haslem í bann

Ron Artest hjá Sacramento Kings og Udonis Haslem hjá Miami Heat voru í dag dæmdir í eins leiks bann af aganefnd NBA deildarinnar eftir að hafa látið skapið hlaupa með sig í gönur í fyrstu leikjum liða sinna í úrslitakeppninni. Annar leikur Miami Heat og Chicago Bulls verður sýndur beint á NBA TV á miðnætti í nótt.

Sport
Fréttamynd

New Jersey tapaði fyrsta leiknum

New Jersey Nets varð í gærkvöld fyrsta liðið í úrslitakeppni NBA til að tapa leik á heimavelli þegar liðið tapaði naumlega fyrir Indiana Pacers 90-88. Vince Carter var stigahæstur í liði heimamanna með 31 stig og 13 fráköst, en hitti mjög illa í leiknum eins og aðrir lykilmenn liðsins. Stephen Jackson skoraði 18 stig fyrir Indiana.

Sport
Fréttamynd

Engin óvænt úrslit

Úrslittakeppnin fór vel af stað í gærkvöldi með fjórum leikjum sem allir unnust á heimavelli. Lebron James átti stórleik í fyrsta leik sínum í úrslitakeppni og var með þrefalda tvennu og leiddi Cleveland örugglega til sigurs. San Antonio hófu titilvörnina með sannfærandi 34 stiga sigri á Sacramento.

Sport
Fréttamynd

Veislan hefst í kvöld

Úrslitakeppni NBA-deilarinnar hefst í kvöld með fjórum leikjum í sextán liða úrslitum. Menn spá mikið í hvaða lið komist alla leið og hvaða lið eigi eftir að koma á óvart og eru margir á því að Detroit og San Antonio muni leika til úrslita líkt og í fyrra. Leikur Wizards og Cavaliers er í beinni á Sýn í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Sloan verður áfram með Utah Jazz

Hinn gamalreyndi þjálfari Utah Jazz, harðjaxlinn Jerry Sloan, tilkynnti í dag að hann ætlaði að halda áfram að þjálfa liðið á næsta tímabili. Það verður þá 19. árið sem hann þjálfar liðið og hefur enginn þjálfari í neinni af stóru atvinnuíþróttunum í Bandaríkjunum verið nálægt því eins lengi við stjórnvölinn hjá sama liði og Sloan. Utah komst ekki í úrslitakeppnina í ár en endaði með 50% vinningshlutfall.

Sport
Fréttamynd

Við erum sigurstranglegri

Villingurinn Ron Artest hélt því blákalt fram á dögunum að hann væri að eigin mati besti leikmaður í NBA deildinni, en jafnan er stutt í stórar yfirlýsingar hjá kappanum. Nú hefur hann tjáð sig um einvígi Sacramento gegn meisturum San Antonio Spurs í fyrstu umferð úrslitakeppninnar sem hefst um helgina og segir Artest sína menn vera í alla staði sigurstranglegri.

Sport
Fréttamynd

Bryant stigakóngur

Nú þegar deildarkeppninni í NBA-körfuboltanum er lokið, er ekki úr vegi að skoða hvaða leikmenn urðu hlutskarpastir í einstaka tölfræðiþáttum í vetur. Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers hirti stigakóngstitilinn með miklum yfirburðum og var með hæsta meðalskor leikmanns í deildinni í heil 20 ár. Bryant skoraði 35,4 stig að meðaltali í leik, það mesta síðan Michael Jordan skoraði 37 stig að meðaltali fyrir tveimur áratugum.

Sport
Fréttamynd

Úrslitakeppnin hefst á laugardagskvöld

Úrslitakeppnin í NBA deildinni í körfubolta hefst á laugardagskvöldið og hægt verður að fylgjast náið með gangi mála í beinum útsendingum á Sýn og NBA TV á Digital Ísland. Þegar hefur verið staðfest að fyrsti leikur Phoenix Suns og Los Angeles Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn á sunnudagskvöldið um klukkan tíu. Hér fyrir neðan gefur að líta yfirlit yfir hvaða lið mætast í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Sport
Fréttamynd

Deildarkeppninni lokið

Síðustu leikirnir í deildarkeppni NBA voru spilaðir í nótt, en á laugardag hefst úrslitakeppnin þar sem 16 sterkustu liðin leiða saman hesta sína. Það kom ekki í ljós fyrr en í gærkvöld hver endanleg uppröðun liðanna yrði í Austur- og Vesturdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Minnesota tekur á móti Memphis

Í nótt fer fram síðasta umferðin í deildarkeppninni í NBA deildinni. Leikur Minnesota Timberwolves og Memphis Grizzlies verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland og hefst klukkan 12 á miðnætti. Í kvöld ræðst svo endanlega hver uppröðun liða verður í úrslitakeppninni, þar sem Memphis verður í eldlínunni en leikmenn Minnesota fara í sumarfrí eftir leik kvöldsins.

Sport
Fréttamynd

Montgomery þjálfar Warriors áfram

Chris Mullin, stjórnarformaður Golden State Warriors, hefur tilkynnt að þjálfari liðsins Mike Montgomery muni stýra liðinu áfram á næsta tímabili þrátt fyrir lélegt gengi þess enn eitt árið í vetur. Golden State hefur ekki komist í úrslitakeppnina í 12 ár í röð og olli gríðarlegum vonbrigðum í ár. Montgomery kom inn í NBA deildina fyrir tveimur árum eftir árangursríkan feril í háskólaboltanum, en hefur gengið erfiðlega að aðlagast atvinnumennskunni.

Sport
Fréttamynd

Skammarleg framkoma Webber og Iverson

Chris Webber og Allen Iverson eru ekki vinsælustu mennirnir í Philadelphia í dag eftir að þeir mættu of seint í síðasta heimaleik liðs síns í gærkvöldi og gerðu eiganda, þjálfara og stuðningsmenn Philadelphia 76ers að fíflum. Þeir félagar áttu reyndar báðir við smávægileg meiðsli að stríða og því stóð ekki til að láta þá spila, en þeir eiga báðir eftir að svara fyrir framkomu sína með sektum eða jafnvel leikbönnum.

Sport
Fréttamynd

Arenas og Redd skoruðu báðir 43 stig

Sjónvarpsleikurinn á NBA TV í gærkvöldi var hin besta skemmtun en þar bar Washingto sigurorð af Milwaukee á heimavelli sínum 116-103, þar sem Gilbert Arenas hjá Washington og Michael Redd skoruðu 43 stig hvor. Það voru þó heimamenn sem höfðu sigur og eru í góðri stöðu með að ná fimmta sætinu í úrslitakeppninni í Austurdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Allt undir hjá Washington og Milwaukee

Það verður allt í járnum í kvöld þegar Washington Wizards og Milwaukee Bucks mætast í NBA deildinni, en leikurinn verður í beinni útsendingu á NBA TV á Digital Ísland. Fjögur lið eru enn að kljást um uppröðun í síðustu fjögur sætin inn í úrslitakeppnina í Austurdeildinni og eru nánast jöfn í einum hnapp, en auk þessara liða eru Indiana og Chicago með nánast sömu stöðu og vilja t.d. öll forðast það í lengstu lög að mæta Detroit Pistons í fyrstu umferðinni.

Sport
Fréttamynd

San Antonio tók efsta sætið í Vesturdeildinni

Meistarar San Antonio tryggðu sér í nótt efsta sætið í Vesturdeildinni þegar liðið burstaði Utah Jazz á heimavelli sínum 115-82 og verður liðið því með heimavallarréttinn alla leið í úrslitin. Manu Ginobili skoraði 18 stig fyrir San Antonio og nýliðinn Deron Williams skoraði sömuleiðis 18 fyrir Utah.

Sport
Fréttamynd

Ljóst hvaða lið ná í úrslitakeppnina

Los Angeles Lakers, Sacramento Kings og Chicago Bulls tryggðu sér í nótt sæti í úrslitakeppninni í NBA þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Þá vann Detroit 64. leik sinn í vetur sem er félagsmet og ljóst að liðið verður með heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina.

Sport
Fréttamynd

Ben Gordon skaut Washington í kaf

Chicago Bulls heldur dauðahaldi í áttunda sætið í Austurdeildinni í NBA eftir nauman en gríðarlega mikilvægan sigur á Washington Wizards í nótt 103-101. Ben Gordon var maðurinn á bak við sigur Chicago, en hann skoraði 32 stig í leiknum og hitti úr öllum níu þriggja stiga skotum sínum sem er jöfnun á NBA meti Latrell Sprewell frá árinu 2003.

Sport
Fréttamynd

Yao Ming gæti misst úr hálft ár

Carroll Dawson, framkvæmdastjóri Houston Rockets, segir að kínverski miðherjinn Yao Ming þurfi að gangast undir uppskurð eftir að hann fótbrotnaði í leik gegn Utah Jazz í fyrrinótt og verði væntanlega frá keppni í fjóra til sex mánuði í kjölfarið. Þetta þýðir að Ming verður varla kominn almennilega í gang með liði Houston á ný fyrr en halla tekur í næstu jól.

Sport
Fréttamynd

Andre Miller rausnarlegur við háskólann sinn

Bakvörðurinn Andre Miller hjá Denver Nuggets er ekki búinn að gleyma því hvað háskólaganga hans í Utah reyndist honum vel á sínum tíma og í gær gaf Miller hvorki meira né minna en 500.000 dollara eða 38 milljónir króna til gamla skólans síns. Peningana á meðal annars að nota til að byggja upp íþróttaaðstöðuna við skólann.

Sport
Fréttamynd

Stórleikur Detroit og Cleveland í beinni

Það verður sannkallaður stórleikur í beinni útsendingu úr NBA körfuboltanum á Sýn í kvöld þar sem efsta lið deildarinnar Detroit Pistons tekur á móti LeBron James og félögum í Cleveland Cavaliers. Leikurinn er merkilegur fyrir þær sakir að sigur í kvöld þýðir að Detroit setur félagsmet yfir flesta sigra á einu tímabili, en sigur fer líka mjög langt með að tryggja liðinu heimavallarréttin alla leið í úrslitakeppninni sem hefst fljótlega.

Sport
Fréttamynd

Meistararnir halda sínu striki

San Antonio Spurs lagði Seattle Supersonics 104-95 á heimavelli sínum í nótt og er í lykilstöðu með að ná efsta sætinu í Vesturdeildinni fyrir úrslitakeppnina. Á meðan Tim Duncan er enn að ná sér eftir flensu, var Tony Parker besti maður Spurs í nótt og skoraði 27 stig og átti 9 stoðsendingar þó hann segðist sjálfur vera búinn að smitast af þessari sömu flensu.

Sport
Fréttamynd

Yao Ming fótbrotinn

Óheppni NBA-liðs Houston Rockets hefur ekki riðið við einteyming í vetur og í nótt fótbrotnaði kínverski risinn Yao Ming í leik gegn Utah Jazz. Framherjinn Andrei Kirilenko steig ofan á fótinn á Ming með þeim afleiðingum að bein brákaðist í vinstri fæti hans og er hann því úr leik það sem eftir lifir tímabils. Þetta kórónar mikið meiðslatímabil hjá liðinu, því burðarásar liðsins Ming og Tracy McGrady hafa verið meiddir meira og minna í allan vetur og liðið fjarri því að komast í úrslitakeppnina.

Sport