Körfubolti

Duncan afgreiddi Sacramento

Tim Duncan var frábær fyrir San Antonio í nótt.
Tim Duncan var frábær fyrir San Antonio í nótt. MYND/Getty Images

Tim Duncan lék sinn besta leik á tímabilinu þegar San Antonio vann þægilegan sigur á Sacramento í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Duncan skoraði 35 stig og hirti 14 fráköst í 108-99 sigri San Antonio.

Duncan hefur legið undir nokkurri gagnrýni það sem af er leiktíð fyrir að láta fara hægt um sig en í nótt sýndi hann og sannaði hversu mikill yfirburðamaður hann er undir körfunni þegar hann tekur sig til.

San Antonio hefur nú unnið átta leiki en tapað tveimur það sem af er leiktíð og er það aðeins lið Utah sem getur státað sig af betra vinningshlutfalli.

Einn annar leikur var á dagskrá næturinnar; LA Lakers lagði Chicago af velli, 82-72, þar sem Kobe Bryant skoraði "ekki nema" 18 stig. Lamar Odom var maðurinn á bakvið sigur Lakers, með 23 stig og 10 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×