Körfubolti

Fær rúman milljarð

Larry Brown á fyrir salti í grautinn eftir  viðskilnaðinn við New York
Larry Brown á fyrir salti í grautinn eftir viðskilnaðinn við New York NordicPhotos/GettyImages

New York Knicks hefur samþykkt að greiða Larry Brown 1258 milljónir þar sem félagið rak hann þegar Brown áttui fjögur ár eftir af samningi sínum við félagið.

Knicks ætlaði sér stóra hluti er það réð Brown til starfa en þessi merki þjálfari stóð engan veginn undir væntingum á sínu fyrsta tímabili með liðið og var í kjölfarið rekinn. Undir hans stjórn vann Knicks 23 leiki en tapaði 59. Á þessu eina tímabili prófaði Brown 42 mismunandi byrjunarlið en árangur liðsins undir hans stjórn var sá slakasti síðan 1986.- hbg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×