Markasúpa í Meistaradeildinni Það var mikið fjör í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu og menn voru sannarlega á skotskónum á flestum vígstöðvum. Alls voru skoruð 25 mörk í leikjunum 8 í kvöld og það voru leikmenn Porto og Real Madrid sem voru iðnastir við kolann. Fótbolti 17. október 2006 20:36
United yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Leikur Manchester United og FC Köbenhavn er sýndur beint á Sýn og þar hafa heimamenn í Manchester 1-0 forystu með marki frá Paul Scholes. Heimamenn hafa verið miklu betri í hálfleiknum en markvörður danska liðsins hefur farið mikinn. Fótbolti 17. október 2006 19:41
Henry skoraði löglegt mark Brasilíumaðurinn Gilberto var afar óhress með tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld og sagði dómarann hafa dæmt fullkomlega löglegt mark af félaga sínum Thierry Henry. Fótbolti 17. október 2006 19:10
Arsenal tapaði í Moskvu Arsenal varð að sætta sig við 1-0 tap gegn CSKA Moskva í G-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag. Mark CSKA skoraði Daniel Carvalho í fyrri hálfleik, en leikurinn var mjög fjörugur. Arsenal sótti grimmt að marki CSKA eftir þetta, en bæði lið fengu reyndar dæmd af sér mörk vegna rangstöðu. Fótbolti 17. október 2006 18:25
Arsenal undir í hálfleik Arsenal er undir 1-0 gegn CSKA Moskvu í fyrsta leik dagsins í Meistardeild Evrópu. Heimamenn hafa verið mjög sprækir með Brasilíumennina Vagner Love og Daniel Carvalho fremsta í flokki, en það var einmitt sá síðarnefndi sem skoraði mark Moskvu með þrumuskoti úr óbeinni aukaspyrnu. Fótbolti 17. október 2006 17:37
Fjórir leikir í beinni á Sýn í dag Rétt er að minna enn og aftur á knattspyrnuveisluna sem verður á sjónvarpsstöðvum Sýnar í dag og í kvöld, en boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar frá Meistaradeild Evrópu. Fjörið hefst með leik CSKA Moskva og Arsenal á Sýn klukkan 16:15. Fótbolti 17. október 2006 14:36
Gerrard verður ekki með gegn Bordeaux Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, getur ekki leikið með liðinu gegn Bordeaux í Meistaradeildinni annað kvöld vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í leiknum gegn Blackburn um helgina. Gerrard fór því ekki með félögum sínum til Frakklands, en vonir standa til um að hann verði búinn að ná sér fyrir leikinn gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Fótbolti 17. október 2006 14:18
Hilario er vandanum vaxinn Miðjumaðurinn Joe Cole hjá Chelsea segir að liðið sé ekki á flæðiskeri statt þó þeir Petr Cech og Carlo Cudicini séu meiddir, því þriðji markvörðurinn sé vandanum vaxinn. Hilario heitir sá kappi og gekk í raðir Chelsea í sumar, en hann hefur áður spilað gegn Barcelona í Meistaradeildinni. Enski boltinn 16. október 2006 22:15
Liðið er búið að missa sinn besta leikmann Eiður Smári Guðjohnsen segir að hans menn í Barcelona verði að skora fyrsta markið í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni á miðvikudaginn, því það sé mjög erfitt að lenda undir gegn jafn vel skipulögðu liði og gömlu félögum hans í Chelsea. Hann segist líka vita af hverju Chelsea hefur ekki byrjað mjög vel í ensku úrvalsdeildinni í haust. Fótbolti 16. október 2006 20:45
Denilson í hópnum hjá Arsenal Brasilíski táningurinn Denilson verður í 18 manna leikmannahópi Arsene Wenger fyrir leikinn gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni á morgun, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 16:15. Denilson er aðeins 18 ára gamall og gekk í raðir enska liðsins frá Sao Paulo í Brasilíu í sumar. Fótbolti 16. október 2006 19:39
Fjórir leikir í beinni á Sýn á morgun Það verður óvenju mikið um dýrðir á sjónvarpsstöðvum Sýnar í vikunni þegar leikjunum í Meistaradeild Evrópu verða gerð góð skil að venju, en boðið verður upp á fjórar beinar útsendingar á morgun. Þetta er vegna þess að leikur CSKA og Arsenal fer fram nokkru fyrr en aðrir leikir og hefst klukkan 16:15 á morgun. Fótbolti 16. október 2006 18:30
Eiður hugsar ekki um að skora á Stamford Bridge Eiður Smári Guðjohnsen er nú að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir viðureign Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge á miðvikudagskvöldið. Hann segist væntanlega muni fagna hóflega ef hann nær að skora gegn sínum gömlu félögum, en hefur meiri áhyggjur af vini sínum Petr Cech. Fótbolti 16. október 2006 16:55
Neville og Ronaldo klárir Gary Neville og Cristiano Ronaldo mættu báðir á æfingu hjá Manchester United í morgun og verða því væntanlega klárir í slaginn gegn FC Kaupmannahöfn annað kvöld, en United hefur unnið báða leiki sína í riðlinum til þessa. Gabriel Heinze er þó enn tæpur vegna meiðsla á læri. Fótbolti 16. október 2006 16:41
Hoeness og Mihajlovic í bann Uli Hoeness stjórnarformaður Bayern Munchen og Sinisa Mihajlovic aðstoðarþjálfari Inter Milan voru í dag dæmdir í tveggja leikja bann fyrir að ausa blótsyrðum hvor á annan á leik Inter og Bayern í Meistaradeildinni á dögunum. Fótbolti 6. október 2006 20:15
Úrslitaleikirnir spilaðir í Moskvu og Róm Knattspyrnusamband Evrópu hefur tilkynnt að úrslitaleikirnir í Meistaradeild Evrópu verði háðir í Moskvu árið 2008 og Róm árið eftir. Þá fer úrslitaleikurinn í Evrópukeppni félagsliða árið 2008 fram í Manchester á Englandi og í Istanbul í árið eftir. Fótbolti 4. október 2006 16:55
Inter, eruð þið geðveikir? Ítölsku blöðin vönduðu stjörnum prýddu liði Inter Milan ekki kveðjurnar á síðum sínum í dag eftir að liðið tapaði 2-0 fyrir Bayern Munchen á heimavelli í Meistaradeildinni. Þeim Zlatan Ibrahimovic og Fabio Grosso var báðum vikið af leikvelli í gærkvöldi og það nýtti þýska liðið sér vel, en Inter hefur ekki fengið eitt einasta stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum í B-riðli. Fótbolti 28. september 2006 18:57
Eto´o verður frá í allt að þrjá mánuði Illur grunur lækna Evrópumeistara Barcelona frá í gærkvöldi hefur nú verið staðfestur eftir að framherjinn Samuel Eto´o fór í myndatöku í dag og í ljós kom að hann verður frá í allt að þrjá mánuði vegna hnémeiðsla. Eto´o meiddist í leik Werder Bremen og Barcelona í gær, en meiðsli hans gætu þó þýtt að tækifærum Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Katalóníuliðinu ætti eftir að fjölga til muna. Fótbolti 28. september 2006 14:01
Eto´o verður frá í 2-3 mánuði Evrópumeistarar Barcelona hafa orðið fyrir miklu áfalli en skæðasti framherji liðsins, Kamerúninn Samuel Eto´o, meiddist á hné í leiknum gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í kvöld og segist læknir liðsins halda að hann verði frá keppni í tvo til þrjá mánuði fyrir vikið. Fótbolti 27. september 2006 22:05
Mark Crouch var stórkostlegt Rafa Benitez var ánægður með leik sinna manna í Liverpool í 3-2 sigrinum á Galatasaray í kvöld, þrátt fyrir að gestirnir frá Tyrklandi hafi gert sig líklega til að jafna leikinn eftir að hafa lent undir 3-0. Benitez sá ástæðu til að hrósa hinum leggjalanga Peter Crouch fyrir tilburði sína á vellinum, enda skoraði sá eftirminnilegt mark með hjólhestaspyrnu fyrir framan Kop stúkuna frægu. Fótbolti 27. september 2006 21:41
Drogba er funheitur Jose Mourinho var skiljanlega í skýjunum yfir framherja sínum Didier Drogba eftir leikinn við Levski Sofia í Meistaradeildinni í kvöld, en Fílstrendingurinn sterki skoraði þrennu í 3-1 sigri Chelsea í Búlgaríu. Fótbolti 27. september 2006 21:21
Liverpool slapp með skrekkinn Liverpool vann í kvöld nauman 3-2 sigur á tyrkneska liðinu Galatasaray í Meistaradeild Evrópu í leik sem sýndur var beint á Sýn. Peter Crouch skoraði tvö mörk og Luis Garcia eitt og komu enska liðinu í 3-0, en Tyrkirnir höfðu alls ekki sagt sitt síðasta og skoruðu tvö mörk á sex mínútum um miðjan síðari hálfleikinn. Lengra komust þeir þó ekki og enska liðið slapp með skrekkinn. Fótbolti 27. september 2006 20:38
Eiður kemur inn fyrir meiddan Eto´o Það blæs ekki byrlega fyrir Evrópumeistara Barcelona það sem af er kvöldi, því liðið er ekki aðeins 1-0 undir gegn Werder Bremen á útivelli í Meistaradeildinni, heldur var framherjinn skæði Samuel Eto´o borinn meiddur af leikvelli strax í upphafi síðari hálfleiks. Hann virðist vera nokkuð alvarlega meiddur á hné, en eins dauði er annars brauð og Eiður Smári Guðjohnsen er því kominn inn í lið Barcelona í stað Eto´o á 55 mínútu. Fótbolti 27. september 2006 20:06
Liverpool í góðum málum Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Peter Crouch (9.) og Luis Garcia (14.) skoruðu mörk Liverpool sem hefur 2-0 yfir gegn Galatasaray á heimavelli sínum í sjónvarpsleiknum á Sýn. Heimamenn hafa ráðið ferðinni lengst af og útlit fyrir að eftirleikurinn verði þeim auðveldur. Fótbolti 27. september 2006 19:38
Eiður Smári á varamannabekk Barcelona Nú er búið að tilkynna byrjunarlið Barcelona sem sækir þýska liðið Werder Bremen heim í Meistaradeildinni en leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra nú klukkan 18:45. Eiður Smári er á varamannabekk Barcelona í kvöld sem áður. Fótbolti 27. september 2006 18:26
Leikir kvöldsins á rásum Sýnar Sjónvarpsstöðin Sýn verður að venju með þrjá leiki í boði í beinni útsendingu úr Meistaradeild Evrópu á rásum sínum. Aðalleikur kvöldsins verður viðureign Liverpool og Galatasaray á Sýn, en þar kemur ekkert annað en sigur til greina hjá fyrrum Evrópumeisturunum eftir að gengi liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska í Evrópukeppninni undanfarið. Fótbolti 27. september 2006 17:44
Schaaf ætlar að koma Barcelona á óvart Lið Werder Bremen hefur ekki unnið sigur í fimm síðustu leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu en Thomas Schaaf þjálfari ætlar sér að koma Evrópumeisturum Barcelona á óvart í kvöld þegar liðin mætast í A-riðli á Westerstadion í Bremen. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Extra og hefst útsending klukkan 18:30. Fótbolti 27. september 2006 17:35
Sögulegur leikur í Moskvu í kvöld Leikur Spartak Moskvu og Sporting Lissabon á Luzhniki Stadium verður kannski ekki stærsti leikurinn sem verður á dagskrá í Meistaradeild Evrópu í kvöld, en hann verður þó merkilegur fyrir þær sakir að þetta verður í fyrsta sinn sem leikur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar verður háður á gervigrasvelli. Fótbolti 27. september 2006 17:25
Vekur reiði samkynhneigðra Fyrrum landsliðsmaðurinn Paul Scholes hjá Manchester United hefur vakið upp nokkra gremju meðal baráttumanna fyrir jafnrétti samkynhneigðra eftir að hann var sakaður um að hafa látið niðrandi orð um samkynhneigða falla í kjölfar þess að hann var spjaldaður í leiknum gegn Benfica í meistaradeildinni í gær. Fótbolti 27. september 2006 16:34
Ætlar að skála í kvöld Ítalski landsliðsmaðurinn Francesco Totti hjá Roma vill ólmur næla í þrjú stig með liði sínu þegar það sækir Valencia heim í D-riðli meistaradeildarinnar í kvöld, því hann segist vilja skála við félaga sína í fluginu heim til Ítalíu og halda þannig upp á þrítugsafmæli sitt sem er í dag. Fótbolti 27. september 2006 16:28
Lætur ummæli þjálfara Levski Sofia ekki á sig fá Stanimir Stoilov, knattspyrnustjóri Levski Sofia, lét hafa eftir sér að Chelsea spilaði ekki nálægt því eins fallega knattspyrnu og Evrópumeistarara Barcelona, en Jose Mourinho segist ekki taka þetta nærri sér. Fótbolti 27. september 2006 14:30