Framtakssjóður Stefnis kaupir meirihluta hlutafjár í Internet á Íslandi Framtakssjóðurinn SÍV IV í rekstri Stefnis hefur náð samkomulagi við hluthafa Internets á Íslandi (ISNIC), sem sér um rekstur .is lénakerfisins, um kaup á meirihluta hlutafjár í félaginu. Stærsti einstaki hluthafinn fór með þrjátíu prósenta eignarhlut fyrir viðskiptin en félagið skilaði yfir tvö hundruð milljóna rekstrarhagnaði á árinu 2023. Innherji 8. janúar 2025 18:10
Biðstaða á gjaldeyrismarkaði eftir um 100 milljarða greiðslu til hluthafa Marel Engin merki eru enn um að þeir miklu fjármunir sem voru greiddir út í erlendum gjaldeyri til íslenskra fjárfesta í byrjun ársins við yfirtöku JBT á Marel séu að leita inn á millibankamarkaðinn, að sögn gjaldeyrismiðlara, en gengi krónunnar hefur lækkað lítillega eftir snarpa styrkingu fyrr í haust, meðal annars vegna umfangsmikilla kaupa erlendra vogunarsjóða í Marel. Ætla má að lífeyrissjóðir hafi fengið í sinn hlut samanlagt jafnvirði nærri 50 milljarða í reiðufé við söluna en ósennilegt er að sjóðirnir muni selja þann gjaldeyri fyrir krónur. Innherji 8. janúar 2025 15:34
JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni JBT Marel Corporation , nýlega sameinað fyrirtæki JBT Corporation og Marel hf., var í formlega tekið til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Íslands þann 3. janúar síðastliðinn. Viðskipti innlent 7. janúar 2025 18:33
Gengi Oculis í hæstu hæðum en erlendir greinendur telja það eiga mikið inni Fjárfestar og greinendur hafa brugðist afar vel við jákvæðum niðurstöðum rannsóknar á mögulega byltingarkenndu lyfi Oculis við sjóntaugabólgu og hlutabréfaverð líftæknifyrirtækisins er núna í hæstu hæðum, meðal annars eftir hækkun á verðmatsgengi hjá sumum fjármálafyrirtækjum. Mikil velta var í dag með bréf Oculis í Kauphöllinni, sem er orðið verðmætara að markaðsvirði en Hagar, og er gengi bréfa félagsins upp um meira en fimmtíu prósent á örfáum mánuðum. Innherji 7. janúar 2025 17:22
Áformar að auka vægi innlendra hlutabréfa ólíkt öðrum stærri lífeyrisjóðum Ólíkt öðrum stærri lífeyrissjóðum landsins áformar Birta að auka nokkuð vægi sitt í innlendum hlutabréfaeignum á árinu 2025 frá því sem nú er á meðan sjóðurinn ætlar á sama tíma að halda hlutfalli erlendra fjárfestinga nánast óbreyttu. Lífeyrissjóður verslunarmanna hyggst hins vegar stækka enn frekar hlutdeild erlendra hlutabréfa í eignasafninu samhliða því að minni áhersla verður sett á íslensk hlutabréf. Innherji 7. janúar 2025 11:07
Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Icelandair sló farþegamet árið 2024 en flogið var með tæplega fimm milljónir farþega. Metsætanýting var í desember en átján prósenta munur var á milli ára. Viðskipti innlent 6. janúar 2025 19:11
Styttist í lokun flugvallar sem tengist flugsögu Íslendinga Flugvöllurinn í Narsarsuaq, sem lengi þjónaði sem helsta tenging milli Grænlands og Íslands, heyrir brátt sögunni til. Íslendingur sem starfar við flugvöllinn býst við að þorpið við völlinn muni að mestu leggjast í eyði. Innlent 4. janúar 2025 22:11
Brunnur skilar sex milljörðum til hluthafa með afhendingu á bréfum í Oculis Brunnur vaxtarsjóður, fyrsti kjölfestufjárfestirinn í Oculis, hefur skilað rúmlega sex milljörðum króna til hluthafa sinna með afhendingu á allri hlutafjáreign sjóðsins í augnlyfjaþróunarfyrirtækinu. Oculis var skráð á Aðalmarkað í Kauphöllinni í fyrra og annar stofnenda Brunns, sem sat í stjórn félagsins um árabil, segir það alltaf hafa verið álit sitt að Oculis verði að lokum yfirtekið af einum af stóru alþjóðlegu lyfjarisunum þegar það fær markaðsleyfi fyrir sitt fyrsta lyf, líklega snemma árs 2026. Innherji 4. janúar 2025 07:59
Íslandsbanki umbreytir láni til Havila í hlutafé og verði einn stærsti hluthafinn Íslandsbanki hefur umbreytt lánum sem voru veitt til Havila Shipping í hlutafé og verður bankinn í kjölfarið einn stærsti hluthafi norska fyrirtækisins með um sjö prósenta eignarhlut. Hlutabréfaverð skipafélagsins féll um liðlega sjötíu prósent í fyrra samhliða versnandi afkomu en íslenskir bankar – Íslandsbanki og Arion – töpuðu milljörðum króna á lánveitingum sínum til Havila fyrir um einum áratug. Innherji 3. janúar 2025 14:36
Vigdís frá Play til Nettó Vigdís Guðjohnsen hefur tekið við stöðu markaðsstjóra Nettó. Vigdís hefur samkvæmt tilkynningu sérhæft sig í markaðssetningu samfélagsábyrgðar. Viðskipti innlent 3. janúar 2025 08:37
Útgáfuáætlun ríkisbréfa upp á um 180 milljarða í hærri kantinum Áætlað er að heildarútgáfa ríkisbréfa á árinu 2025 verði um 180 milljarðar króna, nokkuð meira en í fyrra, en til að mæta lánsfjárþörf ríkissjóðs kemur jafnframt til greina að ganga á innstæður í erlendum gjaldeyri hjá Seðlabankanum. Umfang nýbirtrar útgáfuáætlunar Lánamála er heldur í hærri kantinum miðað við væntingar fjárfesta og markaðsaðila og hefur ávöxtunarkrafa lengri ríkisbréfa hækkað á markaði í dag. Innherji 2. janúar 2025 15:06
Þrír menn leiddir frá borði Play-flugvélar Nokkur rekistefna varð í flugvél Play sem var á leið til Tenerife í dag en vísa varð þremur ungum mönnum frá borði. Flugstjóri mat ástand mannanna þannig að þeir væru ógn við öryggi vélarinnar. Innlent 2. janúar 2025 15:02
Væntingar fjárfesta um mikinn framtíðarvöxt? Á árinu 2024 lækkaði raunhagnaður félaga í Úrvalsvísitölunni stöðugt fram á haust og náði lágmarki í september en sótti svo á fram til loka árs. Á sama tíma lækkaði Seðlabanki Íslands meginvexti sína um 75 punkta samhliða hjöðnun verðbólga í 4,8%. Umræðan 2. janúar 2025 09:06
Forstjóri Kauphallarinnar sér fram á mögulega fimm nýskráningar á næsta ári Útlit er fyrir að á næstunni verði framhald á þeirri skráningarbylgju sem hófst árið 2021, meðal annars vegna væntinga um lækkandi vaxtastig sem ætti að skila sér í bættum markaðsaðstæðum, og forstjóri Kauphallarinnar segist því gera ráð fyrir að þrjú til fimm félög muni ráðast í nýskráningar á nýju ári. Hann brýnir stjórnvöld til þess að skoða hvata til fjárfestinga við það sem best gerist í okkar nágrannaríkjum eigi að takast að tryggja áframhaldandi uppbyggingu hlutabréfamarkaðarins. Innherji 29. desember 2024 13:43
Hlutabréfamarkaður í sókn Það eru horfur á áframhaldandi vexti íslenska hlutabréfamarkaðarins á næsta ári og raunar á næstu árum, sé vel haldið á spilunum. Þetta er mikilvægt, ekki vegna þess að vöxtur hlutabréfamarkaðar sé markmið í sjálfu sér, heldur vegna þeirrar þýðingar sem öflugur innlendur hlutabréfamarkaður hefur fyrir fjármögnun í atvinnulífinu langt út fyrir hin skráðu félög og þar með möguleika íslensks atvinnulífs til nýsköpunar og vaxtar. Umræðan 29. desember 2024 12:48
„Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ „Við erum að missa það frá okkur að leyfa krökkum að vinna. Mér finnst það miður,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted forstjóri Festi. Atvinnulíf 29. desember 2024 08:00
Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Ráðamenn Icelandair hyggjast á næstu misserum taka ákvörðun um það hvort stefnt verði á að hafa eingöngu Airbus-þotur í flugflotanum og eins hvort breiðþotur verði hluti af framtíðarflota félagsins. Innlent 26. desember 2024 21:00
„Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Sala hjá Ölgerðinni hefur aldrei verið meiri fyrir jól en í ár. Nýliðin vika var sú stærsta í sögu fyrirtækisins. Viðskipti innlent 23. desember 2024 21:59
Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Icelandair sá ekki annað í stöðunni en að aflýsa flugferðum innanlands í dag vegna vindagangs og ókyrrðar í lofti. Eina flugferð dagsins er frá Egilsstöðum klukkan fjögur. Innlent 23. desember 2024 15:09
Verulega dregur úr stöðutöku fjárfesta með krónunni eftir mikla gengisstyrkingu Framvirk staða fjárfesta og fyrirtækja með krónunni hefur ekki verið minni frá því undir lok faraldursins eftir að hafa dregist verulega saman á allra síðustu mánuðum samhliða skarpri gengisstyrkingu, meðal annars vegna kaupa erlendra sjóða á íslenskum verðbréfum. Lífeyrissjóðirnir fóru á sama tíma að auka á ný við fjárfestingar sínar erlendis en útlit er fyrir að hrein gjaldeyriskaup sjóðanna á yfirstandandi ári verði sambærileg að umfangi og í fyrra. Innherji 23. desember 2024 11:37
Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Nýr flugvöllur sem verið er að gera við Qaqortoq, stærsta bæ Suður-Grænlands, mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulíf og samgöngur í landshlutanum. Hann mun einnig gagnast Íslendingum sem eru með starfsemi á svæðinu. Innlent 22. desember 2024 22:21
Einar baðst fyrirgefningar Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, bað Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, fyrirgefningar vegna orða sem hann lét falla í hlaðvarpsþættinum Chess after Dark fyrr á þessu ári. Innlent 20. desember 2024 18:43
Hluthafarnir samþykkja samruna Marels við JBT Forstjóri Marels fagnar því að yfirgnæfandi meirihluti hluthafa Marels hafi samþykkt yfirtökutilboð John Bean Technologies Corporation (JBT) í Marel. JBT Marel muni búa yfir miklum sóknarfærum. Viðskipti innlent 20. desember 2024 14:23
Samkaup ætlar að auka hlutafé sitt um einn milljarð eftir mikið tap á árinu Hluthafar Samkaupa, sem hefur núna boðað sameiningu við Heimkaup, hafa samþykkt að ráðast í hlutafjáraukningu upp á samtals liðlega einn milljarð króna eftir erfitt rekstrarár en útlit er fyrir að heildartap matvörukeðjunnar muni nema mörg hundruð milljónum. Þá hefur fjárfestingafélagið SKEL fengið Guðjón Kjartansson, sem starfaði um árabil meðal annars í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, sem fulltrúa sinn í stjórn Samkaupa. Innherji 20. desember 2024 12:51
Fimm mætt í Kauphöllina Nasdaq á Íslandi, Kauphöllin og Nasdaq verðbréfamiðstöð, hefur gengið frá ráðningu á fimm nýjum starfsmönnum. Greint er frá vistaskiptunum í tilkynningu frá Nasdaq. Viðskipti innlent 19. desember 2024 11:10
Framtíð menntunar er í einkarekstri Á undanförnum árum hefur þátttaka einkaaðila í rekstri leikskóla í Reykjavík aukist þó nokkuð. Samkvæmt nýlegum tölum fjölgaði börnum á sjálfstætt starfandi leikskólum um 13% á sama tíma og börnum fækkaði um 9% á leikskólum undir stjórn Reykjavíkurborgar (2014–2022). Skoðun 19. desember 2024 10:32
Heimkaup undir hatt Samkaupa Samkaup og Heimkaup hafa komist að samkomulagi um helstu forsendur sameiningar félaganna. Viðskipti innlent 18. desember 2024 19:13
Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar Ríkið hafði betur gegn sex lykilstjórnendum Kviku banka fyrir héraðsdómi í dag, í deilu sem snerist um skattlagningu hagnaðar af áskriftarréttindum sem nam á bilinu 30 til 95 milljónum króna. Viðskipti innlent 18. desember 2024 17:44
Innlit í nýju Airbus vélina sem er nýlent á landinu Icelandair tók á dögunum í notkun sína fyrstu Aribus vél en vélar fyrirtækisins hafa verið á flugi síðustu áttatíu árin og er þekkt fyrir að hafa að mestu unnið með Boeing vélar. Lífið 18. desember 2024 11:33
Bogi í Icelandair kaupir einbýlishús af Pétri í Eykt Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair hefur keypt sér 269,3 fm einbýlishús en svo heppilega vill til að fyrrverandi eigandi hússins er sá sem stýrir byggingu nýrrar skrifstofubyggingar fyrir Icelandair. Viðskipti innlent 18. desember 2024 10:07