Innlent

Um­sagnir í­búa fjar­lægðar úr skipulagsgátt Skipulagsstofnunar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, sagði í janúar að von væri á tillögum að breytingum á húsinu. Ekkert hefur heyrst af þeim síðan.
Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóri, sagði í janúar að von væri á tillögum að breytingum á húsinu. Ekkert hefur heyrst af þeim síðan. Vísir/Vilhelm

Skipulagsstofnun hefur fjarlægt umsagnir íbúa um fyrirhugaða kjötvinnslu Haga í vöruskemmunni við Álfabakka 2a, sem borist höfðu í skipulagsgátt stofnunarinnar.

Um var að ræða að minnsta kosti sex umsagnir.

Fréttastofa leitaði svara hjá Skipulagsstofnun og var tjáð að umsagnirnar hefðu verið fjarlægðar þar sem viðkomandi hefðu skilað þeim inn í nafni Reykjavíkurborgar.

Fyrir Skipulagsstofnun liggur að taka ákvörðun um það hvort kjötvinnslan þarf að fara í gegnum mat á umhverfisáhrifum en þar sem lög kveða ekki á um að leitað skuli umsagna íbúa var umsagna aðeins óskað frá þremur aðilum; Reykjavíkurborg, heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar og Matvælastofnun.

Viðkomandi þurfa hins vegar að skila umsögnum í gegnum skipulagsgáttina, þar sem allir geta skráð sig inn með rafrænum skilríkjum. Þannig virðast íbúar hafa farið inn og valið Reykjavíkurborg í fellilista til að geta skilað inn umsögn.

Spurður að því hvers vegna umsögnunum var ekki leyft að standa sagði Egill Þórarinsson, sviðsstjóri umhverfismatssviðs hjá Skipulagsstofnun, að það mætti rekja til kerfisins. Ef umsögn hefði verið skilað inn undir nafni Reykjavíkurborgar, myndi borgin ekki fá sjálfvirka áminningu úr kerfinu um skilafrestinn.

Umsagnafresturinn rennur út 15. apríl næstkomandi.

Íbúar munu aðeins fá að tjá sig formlega um málið ef Skipulagsstofnun kemst að þeirri niðurstöðu að kjötvinnslan eigi að fara í umhverfismat. Þá munu hagsmunaaðilar fá að koma sinni afstöðu á framfæri.

Verkís hefur skilað inn skýrslu um kjötvinnsluna sem unnin var fyrir Álfabakka 2 ehf. en skýrslan var rýnd af Ara Péturssyni fyrir hönd Álfabakka 2 og Sveinbirni Sveinbirnssyni fyrir hönd Haga hf. 

Álfabakki 2 er eigandi hússins en Hagar hyggjast taka það á leigu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×