HK stefnir upp í Bestu á meðan Haukar og Fjölnir eru í vondum málum Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. HK vann 4-1 sigur á Haukum og Grindavík vann 2-0 sigur á Fjölni. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 22:21
Bestu mörkin um Stjörnuna: „Það eru rosaleg þroskamerki á þessu liði“ „Stjarnan átti sigur skilið og mér fannst þær sterkari allan leikinn,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi Bestu markanna, er farið var yfir 2-2 jafntefli Stjörnunnar og Breiðabliks í síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 22:00
Umfjöllun og viðtöl: Kórdrengir - FH 2-4 | Lennon með þrennu í hálfleik og FH fer í undanúrslit Kórdrengir geta gengið stoltir frá borði þrátt fyrir að hafa tapað fyrir FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld. Leikar enduðu 2-4 fyrir FH en Kórdrengir sýndu stórveldinu enga virðingu og komust tvisvar yfir í fyrri hálfleik. Gæði Steven Lennon og örlítil heppni gerðu það að verkum að FH-ingar komust þó yfir og sigldu svo leiknum heim. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 21:15
Eiður Smári: „Verðum að hætta að bjóða sjálfum okkur upp á að gera okkur lífið svona erfitt“ Þjálfara FH, Eið Smára Guðjohnsen, var skiljanlega létt eftir að hans menn náðu að klára verkefnið í kvöld þegar liðið lagði Kórdrengi 2-4 í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Hann var ánægður með ýmislegt í kvöld en biðlaði til sinna manna hætta að koma sér í klandur. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 21:00
Ísak Snær ekki með í Tyrklandi Ísak Snær Þorvaldsson er ekki með Breiðablik er liðið mætir İstanbul Başakşehir F.K. í síðari leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Hann er að glíma við meiðsli. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 17:15
„Ótrúlega mikilvægt að vera með akkúrat þessa týpu í liðinu sínu“ „Við sjáum hvað hún er mikilvæg fyrir þetta lið,“ segir Margrét Lára Viðarsdóttir um Ásgerði Stefaníu Baldursdóttur, miðjumann Vals, eftir 5-0 sigur liðsins á Keflavík. Rætt var um þátt hennar í velgengni Valsliðsins í Bestu mörkunum. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 13:30
Búinn að skora meira en fimm sinnum fleiri mörk í ár en í fyrra KA-maðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson var enn á ný á skotskónum í gærkvöldi þegar KA-liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 12:01
Farið yfir sumarið á Selfossi: „Lið búin að lesa það og loka á þá tvennu“ „Undirbúningurinn var ekki góður, þær voru ekki komnar með mannskapinn sinn og það gekk ekki vel. Náðu ekki að vera komnar í stand þegar mótið byrjar,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir um stöðu mála á Selfossi en liðið er sem stendur í 6. sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta með aðeins 15 stig þegar 12 umferðum er lokið. Íslenski boltinn 11. ágúst 2022 10:01
Bestu mörkin: Allt í lagi að setja kröfu á dómarana Mikill umræða skapaðist um dómgæslu, eða öllu heldur skort á dómgæslu, eftir 3-0 sigur Þróttar á Selfossi í Bestu-deild kvenna í gær. Fótbolti 10. ágúst 2022 23:30
Umfjöllun: KA-Ægir 3-0 | Bikarævintýri Ægis lauk á Akureyri KA er komið í undanúrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu eftir 3-0 sigur á 2.deildar liði Ægis frá Þorlákshöfn á Akureyri í kvöld. Sigurinn var torsóttur og öll mörk KA komu á síðasta stundarfjórðungi leiksins. Íslenski boltinn 10. ágúst 2022 20:08
Yngstu leikmenn í sögu ÍA og KR koma úr gríðarlegum fótboltafjölskyldum Fornu fjendurnir KR og ÍA hafa bæði valdið vonbrigðum það sem af er sumri í Bestu deild karla í fótbolta. KR-ingar eru þó að því virðist að vakna af værum blundi á meðan ÍA er fast við botninn. Bæði lið hafa þó gefið mjög svo ungum leikmönnum nokkrar mínútur í sumar, mínútur sem skiluðu drengjunum í sögubækurnar. Íslenski boltinn 10. ágúst 2022 16:01
Sjáðu öll mörkin úr 12. umferðinni | Dramatískt jöfnunarmark í Garðabæ, mikilvægur botnsigur og fimm mörk Valsara Tólfta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í gærkvöld. Þar urðu óvænt úrslit sem voru mikilvæg bæði á toppi og botni. Íslenski boltinn 10. ágúst 2022 14:01
„KA mun áfrýja þessu máli og það mun bara fara í sinn farveg“ KA mun áfrýja fimm leikja banninu sem aganefnd KSÍ dæmdi Arnar Grétarsson, þjálfara liðsins, í. Þetta staðfesti Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, í viðtali við Fótbolti.net. Íslenski boltinn 10. ágúst 2022 13:30
Sveinn dómari neitar að tjá sig um hvað gerðist og Arnar svarar ekki Arnar Grétarsson, þjálfari KA í Bestu deild karla í fótbolta, var í gær dæmdur í fimm leikja bann af aganefnd KSÍ. Bannið fékk hann eftir að hafa fengið sitt annað rauða spjald í sumar, orð sem hann lét falla eftir að spjaldið fór á loft og atvik sem átti sér stað degi síðar. Íslenski boltinn 10. ágúst 2022 11:05
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - Selfoss 3-0 | Markaþurrð Selfyssinga heldur áfram Þróttur vann 3-0 sigur á Selfossi í skrítnum leik á Avis vellinum í Laugardal. Strax á 4.mínútu leiksins skoraði Danielle Julia Marcano og bætti við öðru á 38.mínútu. Það var svo Álfhildur Rósa Kjartansdóttir sem rak smiðshöggið á 80.mínútu fyrir Þróttara og þar við sat. Íslenski boltinn 10. ágúst 2022 00:21
Ef þetta væri karlaleikur þá hefði spjald komið upp snemma í fyrri hálfleik Sif Atladóttir var að vonum svekkt eftir 3-0 tap á móti Þrótti. Hún telur að í fyrstu tveimur mörkum leiksins hafi gripið um sig einbeitingaleysi. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 23:21
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 0-5 | Einstefna í Keflavík Valur vann 0-5 stórsigur á Keflavík í vægast sagt krefjandi aðstæðum suður með sjó. Leikurinn var einstefna að marki Keflavíkur frá upphafi til enda. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 23:15
Markasyrpan: Sextánda umferð bauð upp á 26 mörk Hvorki meira né minna en 26 mörk voru skoruð í sextándu umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu sem var leikin seinustu tvo daga. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 23:01
Elín Metta: Vorkenni Pétri að þurfa að velja liðið Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen minnti heldur betur á sig þegar hún skoraði þriðja mark Vals í 0-5 sigri í Keflavík. Markið skoraði Elin eftir að hafa verið inn á leikvellinum í rétt rúma mínútu. Fótbolti 9. ágúst 2022 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Afturelding 0-1 | Afturelding lyfti sér upp úr botnsætinu Afturelding vann gríðarlega mikilvægan 0-1 útisigur er liðið heimsótti Þór/KA í fallbaráttuslag í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Ísafold Þórhallsdóttir skoraði eina mark leiksins strax á fyrstu mínútu. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 20:39
Arnar úrskurðaður í fimm leikja bann og KA fær sekt Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var í dag úrskurðaður í fimm leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir framkomu sína í garð dómara í leik liðsins gegn KR fyrir rúmri viku síðan. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 20:01
Umfjöllun: ÍBV - KR 3-1 | Eyjakonur snéru taflinu við á seinasta korterinu ÍBV sigraði KR í kvöld 3-1, í frábærum endurkomuleik þar sem að þær fyrrnefndu skoruðu 3 mörk á 15 mínútum. Varamenn ÍBV reyndust afar mikilvægar en þær Þórhildur Ólafsdóttir og Hanna Kallmaier sem að komu báðar inn á í seinni hálfleik gerðu sitt hvort markið. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 19:42
Stóru málin: Er Fram öruggt? Er KA í titilbaráttu? Má tala um að markametið falli í lengri deild? Eins og svo oft áður voru „Stóru málin“ tekin fyrir í Stúkunni: Er Fram búið að bjarga sér, er KA í titilbaráttu og hver er uppáhaldsleikmaður sérfræðinganna í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta og meira til var til umræðu í Stúkunni eftir síðustu umferð Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 16:01
Vont verður verra fyrir FH: Tímabilinu lokið hjá Loga Logi Hrafn Róbertsson, einn besti leikmaður FH, hefur leikið sinn síðasta leik á þessu tímabili. Hann gekkst undir aðgerð í gær vegna ristarbrots. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 11:15
Sjáðu vítaklúðrið, Skagamanninn klára Skagamenn og gjöf Leiknis í lokin Sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum og bættust þar sex mörk fyrir þau tuttugu sem voru skoruð í gær. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 09:00
Arnór Smárason: Þetta var í fyrsta skipti sem ég spila á þessum velli í meistaraflokki Skagamaðurinn Arnór Smárason skoraði sigurmark Vals á Akranesi í kvöld í sínum fyrsta leik á ferlinum á Akranesvelli. Hann var ánægður með leikinn. Sport 8. ágúst 2022 23:11
Umfjöllun og viðtöl: ÍA-Valur 1-2 | Valsmenn taplausir undir stjórn Óla Jó Valur fer vel af stað undir stjórn Ólafs Davíðs Jóhannessonar en liðið bar sigurorð af Skagamönnum, 2-1, á Norðurálsvellinum á Akranesi í kvöld. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 22:54
Fylkir nældi í stig gegn toppliðinu Fylkir og FH skildu jöfn, 1-1, þegar liðin áttust við í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í fótbolta á Würth-vellinum í Árbænum í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:43
„Við erum öflugir í lok leikja“ „Mér líður rosa vel. Þetta eru bestu sigrarnir, að vinna með einu marki í restina. Ég held að þetta sé níunda markið sem við skorum í sumar á síðasta korterinu þannig við erum öflugir í lok leikja,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflvíkinga, sáttur eftir 2-1 sigur á Leikni í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:06
Ólafur Jóhannesson: Þá líður mönnum betur og þá brosa allir eins og ég geri núna Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var glaður í bragði eftir 2-1 sigur sinna manna á Akranesi í kvöld. Annar sigurleikur Vals sem unnu FH í síðustu umferð. Sport 8. ágúst 2022 22:02