Heilsa

Heilsa

Allt um heilsu, hreyfingu og hollan mat

Fréttamynd

Golffíkill í fitubollubolta

"Ég er mikið í golfi og stunda fótbolta einu sinni í viku. Ég fer alltof lítið í ræktina finnst mér en það er vegna þess að það er mikið að gera hjá mér. Ég er með lítinn grísling heima sem var að verða eins árs þannig að ég er heima hálfan daginn og hálfan daginn í vinnunni," segir Jón Gunnar.

Menning
Fréttamynd

Engin leyfi til vítamínbætingar

Nýr vítamínbættur gosdrykkur, Kristall Plús frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar, hefur verið settur á markað. Ekki hefur verið sótt um leyfi til vítamínbætingar drykkjarins til Umhverfisstofu. Almennt gildir þó sú regla að ekki eigi að vítamínbæta matvæli án leyfis að sögn Elínar Guðmundsdóttur, forstöðumanns matvælasviðs Umhverfisstofu.

Menning
Fréttamynd

Húsdýr í sprengjuregni

Dýr bera lítið skynbragð á það hvort hvellir, sprengingar og eldglæringar eru eldgos, stríðsátök eða gamlárskvöld. Gælu- og húsdýraeigendur verða því að sinna dýrunum sínum sérstaklega vel þegar áramótasprengingarnar ganga í garð. Sif Traustadóttir hjá Dýralæknastofu Dagfinns gefur góð ráð varðandi dýrin okkar yfir áramótin: 

Menning
Fréttamynd

Hressir hjólamenn

"Við erum nokkrir galvaskir hjólreiðakappar sem keppum innanlands og erum að reyna að koma okkur allhressilega á kortið. Við erum með bikarmeistara í hjólreiðum síðasta árs í okkar röðum og þessi klúbbur er fullur af ungum og efnilegum hjólreiðamönnum," segir Guðni Dagur Kristjánsson, stjórnarformaður félagsins.

Menning
Fréttamynd

Styrkir ónæmiskerfið

Sólhattur er ein þeirra jurta sem menn hafa gripið til í þeim tilgangi að styrkja ónæmiskerfið og þá sérstaklega á veturna þegar kvef og flensa er algengt vandamál. Indíánar Norður-Ameríku þekktu Echinacea eða sólhatt vel og notuðu hann til að lækna sár, skordýrabit og sjúkdóma. 

Menning
Fréttamynd

Nýtt lyf við sykursýki 1

Nýtt lyf sem gæti læknað sykursýki 1 verður prófað á sjúklingum innan tíðar. Vísindamenn við Kings College í Lundúnum og Bristol-háskóla hafa valið 72 sjúklinga sem munu reyna lyfið í vor. Vonir standa til að lyfið stöðvi eyðileggingu á frumunum sem framleiða insúlín, en insúlín er manninum nauðsynlegt til að brjóta niður sykur. 

Menning
Fréttamynd

Djúpsteikt Mars vinsælt

Greint er frá rannsókn á matarvenjum Skota á heilsuvef Yahoo. Fylgst var með þrjú hundruð skoskum verslunum sem selja fisk og franskar en djúpsteikt Mars-súkkulaði er mjög vinsælt á þessum slóðum.

Menning
Fréttamynd

Nýr vaxtarstuðull ungbarna

Allir sem þekkja til ungbarnaeftirlits hér á landi kannast við vaxtarkúrfuna sem notuð er til að mæla hæð og þyngd barna. Vaxtarstuðullinn kemur frá Svíþjóð og þótt hann eigi ágætlega við íslensk börn er ekki sömu sögu að segja um börn af erlendum uppruna sem iðulega ná ekki upp í lægstu staðalfrávik.

Menning
Fréttamynd

Minnistöflur í daglegu amstri

"Ég er náttúrlega með stóra fjölskyldu og í fullri vinnu þannig að ég þarf á því að halda að vera hraust," segir Bryndís. "Ég fer því í leikfimi að meðaltali fjórum sinnum í viku og passa vel upp á mataræðið.  

Menning
Fréttamynd

Spor liggja í allar áttir

"Fyrir mér er þetta bara svo spennandi vinna að svo mörgu leyti. Með gerð Íslendingabókar var sett saman rannsóknartæki sem gagnast ekki aðeins við rannsóknir á meingenum, heldur reynist líka geysiöflugt tæki til að rannsaka íslenska sögu," segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

Menning
Fréttamynd

Sneiðum hjá spikinu

Offita er vaxandi vandamál á Íslandi og víst er að margir munu bæta á sig ófáum kílóum um jólin. Guðrún Þóra Hjaltadóttir hefur nokkur ráð handa landsmönnum í þessum efnum enda er henni umhugað um fræðslu um hollustu.

Menning
Fréttamynd

Díoxín skaðlegt en ekki banvænt

Díoxín komst í fréttirnar eftir að austurrískir læknar staðfestu að það hefði verið notað til að eitra fyrir úkraínska stjórnarandstöðuleiðtoganum Viktor Júsjenkó. Það olli því að andlit hans breyttist svo mjög að það varð í raun óþekkjanlegt; grátt, guggið og fullt af útbrotum.

Menning
Fréttamynd

Dagreykingamönnum fækkar mjög

Innan við fimmtungur Íslendinga á aldrinum 15-89 ára reykja daglega samkvæmt niðurstöðum þriggja kannana á tóbaksnotkun hér á landi sem lýðheilsustöð hefur látið taka saman. Til samanburðar reyktu um 30% fólks á þessum aldri daglega fyrir tólf árum síðan. Í aldurshópnum 30-40 ára reykja helmingi færri nú en árið 1992.

Menning
Fréttamynd

Ferskt og hollt fyrir barnið

Meðal þess fræðsluefnis sem foreldrum er rétt á heilsugæslustöðinni er bæklingur sem heitir Næring ungbarna og þar er farið vel og ítarlega yfir það hvað er óhætt að gefa barninu á ýmsum aldursskeiðum og hvers það þarfnast. 

Menning
Fréttamynd

Gengur og hjólar á milli staða

"Ég er svo heppin að eiga ekki bíl þannig að ég geng mjög mikið. Það er minn ferðamáti - að ganga og hjóla. Það er mjög praktísk leið til að komast á milli staða og alls ekki meðvituð hollustuhreyfing en ákaflega hressandi," segir Guðfríður Lilja og hlær dátt. 

Menning
Fréttamynd

Gerir það sem er gaman

Elva Björk Barkardóttir hefur nóg að gera í prófum um þessar mundir en reynir að halda sér í formi í leiðinni. </font /></b />

Menning
Fréttamynd

25 sinnum í viku

Elsku besta Ragga Ég held að ég sé í algjörlega kynóðu sambandi. Við kærastinn erum búin að vera saman í fjóra mánuði, og erum sjúk hvort í annað. Að meðaltali sofum við saman allt að 25 sinnum í viku. Jæts, mér finnst svakalegt að skrifa töluna. Samt líður mér vel og ég er bara nokkuð ánægð með allt þetta sex!

Menning
Fréttamynd

Breytti um lífsstíl

Það er aldeilis ekki komið að tómum kofunum hjá útvarpskonunni Siggu Lund á Létt 96,7 þegar hún er spurð hvernig hún haldi sér í formi.

Menning
Fréttamynd

Veira veldur frunsum

Frunsur, sem einnig kallast áblástur, eru vágestur sem margir fá á varir og veldur talsverðum óþægindum. </font /></b />

Menning
Fréttamynd

Láta taka af sér bæði brjóstin

Árlega láta þrjátíu til fjörutíu danskar konur fjarlægja af sér bæði brjóstin með skurðaðgerð til að fyrirbyggja að þær fái brjóstakrabbamein, samkvæmt grein í danska blaðinu Politiken. Þetta er gert eingöngu í þeim tilfellum þar sem erfðir auka líkurnar á krabbameini. Flestar konurnar velja að láta græða á sig gervibrjóst í staðinn.

Menning
Fréttamynd

Hvíldu þig, hvíld er góð

Of lítill svefn eykur líkur á offitu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Kolumbía háskólanum í Bandaríkjunum. Skoðuð voru tengsl holdarfars og svefnvenja hjá 18 þúsund einstaklingum og í ljós kom að þeir sem sváfu 4 tíma eða minna að meðaltali voru meira en 70% líklegri til að þjást af offitu en þeir sem meira sváfu.

Menning
Fréttamynd

Fjögur þúsund augu sjá betur

Á augnlæknastöðinni Lasersjón eru gerðar 16-20 laseraðgerðir á viku en stofan hóf starfsemi sína árið 2000. Eiríkur Þorgeirsson, sérfræðingur í augnlækningum, gerir laseraðgerðir á augum í hverri viku

Menning
Fréttamynd

Lyftingar, fótbolti og dans

Af nógu er að taka hjá Kristjáni Franklín Magnús leikara þegar hann er spurður um hvernig hann heldur sér í formi sökum mikillar fjölbreytni í hreyfingum hans.

Menning
Fréttamynd

Fyllsta öryggis er gætt

Jóhannes Kári Kristinsson, augnskurðlæknir á augnlæknastofunni Sjónlag, hefur verið að gera sjónlagsaðgerðir á augum síðan hann var í námi í Bandaríkjunum. Hann hefur skorið rúmlega þúsund augu síðan hann kom heim árið 2000.

Menning