Verslunarstjóri dæmdur fyrir fjárdrátt Fyrrverandi verslunarstjóri verslunar Krónunnar í Nóatúni hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa dregið sér samtal tæpa milljón króna frá versluninni. Innlent 3. nóvember 2023 13:56
Bændahjón óttaslegin vegna erja: „Hann á eftir að drepa okkur“ Bændahjón úr Kjós segjast hafa óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar vegna nágranna sem er ákærður fyrir að aka bíl á ógnandi hátt að þeim, elt þau um tíu kílómetra vegarkafla í Hvalfirði og reynt að þvinga þau af veginum. Atburðirnir sem málið varðar áttu sér stað á júníkvöldi árið 2021. Innlent 3. nóvember 2023 07:01
Umtalsverðar líkur á áframhaldandi lífshættulegu ofbeldi Maður sem er grunaður um tilraun til að verða fyrrverandi kærustu sinni að bana hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til mánudagsins 27. nóvember. Hann þykir mjög líklegur til að beita konuna frekara ofbeldi fengi hann að ganga laus. Innlent 2. nóvember 2023 17:19
Með tvo lítra af amfetamínbasa í farangrinum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa flutt tvö kíló af amfetamínbasa til landsins með flugi. Innlent 2. nóvember 2023 15:04
Þórdís Kolbrún þarf að útskýra laun 200 forstöðumanna ríkisins Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, vann mál gegn ríkinu; Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð fjármála- og efnahagsráðherra þarf að útskýra skriflega hvernig launakjör Elfu Ýrar og annarra forstöðumanna eru ákvörðuð. Innlent 2. nóvember 2023 12:03
Kúvending í dómsal: „Þetta hefur verið algjör sirkus“ Karlmaður sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps breytti afstöðu sinni til sakarefna málsins í þann mund sem aðalmeðferð málsins hófst í gærmorgun. Manninum er gefið að sök að stinga annan mann tvisvar sinnum með hníf á bílastæði í Breiðholti að kvöldi til í mars árið 2021. Innlent 2. nóvember 2023 08:00
Burðardýr dæmt fyrir kókaíninnflutning Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt erlenda konu í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa flutt um 900 grömm af kókaíni til landsins með flugi. Konan var ekki eigandi efnanna og hafði samþykkt að flytja þau til landsins gegn greiðslu. Innlent 2. nóvember 2023 07:42
„Þarna sátum við Pétur eins og útspýtt hundskinn að reyna að verja okkur“ Það er eins og spennusaga að heyra um baráttu Nox Medical við það að verja einkaleyfið sitt. Þar sem stóri aðilinn ætlaði sér einfaldlega að drepa þann litla. Atvinnulíf 2. nóvember 2023 07:00
Ákvörðun Samgöngustofu um Amelíu Rose stendur Ákvörðun Samgöngustofu um að skemmtiskipið Amelía Rose teljist nýtt skip, sem gerir það að verkum að það má bera færri farþega en ef það teldist gamalt, var endanlega staðfest með dómi Hæstaréttar í dag. Innlent 1. nóvember 2023 18:50
Borgin hætti við að láta reyna á blöðruboltamál fyrir Hæstarétti Borgarlögmaður féll frá áfrýjun í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara, sem slasaðist í hópefli starfsmanna, daginn áður en málflutningur átti að vera fyrir Hæstarétti. Lögmaður kennarans segir ákvörðun borgarlögmanns hafa komið sér mjög á óvart. Innlent 1. nóvember 2023 16:58
Fasteignasali vildi fleiri milljónir en fékk 315 þúsund krónur Sveitarfélagið Dalabyggð hefur verið sýknað að mestu leyti af kröfum fasteignasala vegna vinnu við sölu á Laugum í Sælingsdal, sem byggðarráð þess hætti við árið 2017. Fasteignasalinn krafðist sjö milljóna króna en honum voru dæmdar 315 þúsund krónur. Viðskipti innlent 31. október 2023 19:48
Kona dæmd til að selja íbúðina vegna umgangs úr undirheimum Héraðsdómur Reykjaness hefur gert konu að flytja af heimili sínu og taka með sér allt sem henni tilheyrir og selja eignarhluti sína í umræddu húsi. Innlent 31. október 2023 17:06
Fór ránshendi um íþróttahús og flúði á stolnum bíl Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir þjófnaðar- og umferðarlagabrot framin sama daginn í október í fyrra. Innlent 30. október 2023 14:40
Lyklamaðurinn á Akureyri dæmdur fyrir rúðubrot á Kaffi Lyst Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa annars vegar rispað bíl og hins vegar brotið tvær rúður á veitingahúsinu Kaffi Lyst Akureyri í byrjun sumars. Um er að ræða hegningarauka, en maðurinn hlaut 45 daga dóm í sumar fyrir að vinna skemmdarverk á bílum i júlí síðastliðnum. Innlent 30. október 2023 14:21
Telja að dómarinn sé vanhæfur Sækjandi í hryðjuverkamálinu svokallaða fór fram á það á föstudag að Daði Kristjánsson, dómari í málinu, viki sæti í því. Verjandi annars sakborninga segir kröfuna fráleita. Innlent 30. október 2023 11:06
Vildu LSD, keyptu MDMA en enduðu í járnum Karl og kona hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot fyrir að flytja hingað til lands fíkniefni sem keypt voru með rafmyntinni Bitcoin. Innlent 29. október 2023 07:00
Ákærður fyrir að stinga mann tvisvar í brjósthol á bílastæði í Breiðholti Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að stinga annan mann tvisvar sinnum með hníf í brjóstholið og veitt honum slæma áverka fyrir vikið. Aðalmeðferð málsins fer fram í næstu viku. Innlent 28. október 2023 07:01
Tuttugu milljónir í bætur eftir uppsögn í skugga eineltismáls Konu, sem var um skamman tíma starfsmannastjóri Kópavogsbæjar, voru dæmdar tuttugu milljónir króna í skaða- og miskabætur í Landsrétti í dag. Henni var sagt upp störfum þegar staða hennar var lögð niður vegna skipulagsbreytinga árið 2020 en hafði sama ár verið sökuð um einelti í garð undirmanns. Innlent 27. október 2023 16:43
Zuism-bróðir dæmdur í þriggja ára fangelsi Einar Ágústsson, annar tveggja bræðra sem eru kenndir við trúfélagið Zuism, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik með því að hafa tugi milljóna króna af fólki með blekkingum á árunum 2010 og 2012. Hann hefur þegar greitt fórnarlömbum sínum stóran hlut fjárhæðarinnar sem hann sveik af fólkinu. Innlent 27. október 2023 15:45
Hafna alfarið mismunun á grundvelli húðlitar eða kynþáttar „Ég get ekki tjáð mig um einstaka mál en ég hafna því algjörlega að starfsfólk sveitarfélagsins sé að mismuna fólki eins og þarna er haldið fram,“ segir Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja í samtali við Vísi. Hún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Innlent 27. október 2023 10:00
Talinn hafa elt fólk á tíu kílómetra leið og reynt að þvinga það af veginum Aðalmeðferð í máli manns sem er ákærður fyrir að hafa veitt fólki eftirför og reynt að þvinga bíl þess af vegi, fer fram í næstu viku. Innlent 27. október 2023 08:01
Tungumálavandi skútumálsins Snemma síðastliðinn þriðjudagsmorgun í Héraðsdómi Reykjaness, skömmu áður en þinghald í skútumálinu svokallaða hófst, höfðu lögmenn og verjendur orð á því að búast mætti við því að skýrslutökurnar myndu taka sinn tíma. Ástæðan má finna í tungumálaörðugleikum sem hafa einkennt málið. Innlent 27. október 2023 07:02
Leita réttar síns vegna aðfarar sýslumanns í gær Edda Björk Arnardóttir og sambýlismaður hennar ætla að leita réttar síns vegna aðgerða sýslumanns og lögreglu við heimili þeirra í gær. Þar fór fram aðfaraaðgerð á vegum sýslumanns en flytja átti þrjá drengi hennar í forsjá föður þeirra í Noregi. Aðgerðinni var frestað eftir um þrjár klukkustundir. Innlent 26. október 2023 19:09
Teygði sig eftir símanum og fær skertar bætur Vátryggingafélag Íslands hefur verið sýknað af kröfu manns sem höfðaði mál til heimtu fullra bóta eftir að hafa slasast í bílslysi. Maðurinn hafði teygt sig á eftir farsíma, misst stjórn á bílnum og hafnað á ljósastaur utan vegar. Innlent 26. október 2023 16:56
Ekki dómstóla að skera úr um krónu á móti krónu skerðingu Hæstiréttur vísaði í gær frá aðalkröfum öryrkja og Öryrkjabandalags Íslands um greiðslu vangreiddra bóta og viðurkenningu á greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins vegna meintrar mismununar gagnvart örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum. Innlent 26. október 2023 13:47
Ekkert bendi til þess að bandaríski auðkýfingurinn sé ökuníðingur Ekkert bendir til þess að sjötugur bandarískur karlmaður, sem olli alvarlegu bílslysi í Ölfusi sumarið 2021, hafi keyrt of hratt eða óvarlega. Vitni að slysinu segir slysið hafa verið byggt á misskilningi á umferðarreglum. Sá bandaríski hafi ekki verið á hraðferð eins og fullyrt er í skaðabótakröfu. Innlent 26. október 2023 13:44
Skútumálið: Gat ekki sagt hvað væri á óljósri mynd úr síma sínum Arnþrúður Þórarinsdóttir, héraðssaksóknari, varpaði í fyrradag mynd á skjá í Héraðsdómi Reykjavíkur. Erfitt var fyrir viðstadda að átta sig á því hvað væri á myndinni þar sem hún var mjög óskýr. Innlent 26. október 2023 13:32
Boðar aðgerðir í baráttu við mansal Ísland stendur sig illa í baráttunni gegn vinnumansali samkvæmt eftirlitsnefnd Evrópuráðsins sem hefur áhyggjur af takmörkuðum árangri í málaflokknum. Þá er bent á ýmsa vankanta í baráttunni gegn mansali barna. Dómsmálaráðherra boðar nýja aðgerðaráætlun í málaflokknum. Innlent 26. október 2023 13:01
Aðgerðir í Foldahverfi virðist ekki í samræmi við lög Lögregluaðgerðirnar í Foldahverfi í gær, þar sem flytja átti þrjá drengi úr umsjá móður þeirra, verða skoðaðar segir dómsmálaráðherra. Hún segir alvarlegt að einkennisklæddir lögreglumenn hafi verið á staðnum og að viðbúnaðurinn virðist hafa gengið gegn ákvæðum barnalaga. Innlent 26. október 2023 12:09
Dró sér tæpa milljón árið 2018 og fær ekki refsingu Kona var sakfelld fyrir fjárdrátt í gær vegna millifærslna af reikningi félags, sem hún framkvæmdi árið 2018. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ekki unnt að kenna konunni um drátt málsins. Innlent 26. október 2023 11:29