Innlent

Maðurinn í Bátavogi lést vegna köfnunar

Jón Þór Stefánsson skrifar
Maðurinn lést á heimili í Bátavogi í september í fyrra. Dánarorsök hans liggur nú fyrir.
Maðurinn lést á heimili í Bátavogi í september í fyrra. Dánarorsök hans liggur nú fyrir. Vísir/Vilhelm

Dánarorsök mannsins sem lést í Bátavogi í september í fyrra liggur nú fyrir. Samkvæmt endanlegri niðurstöðu úr réttarkrufningu lést maðurinn af völdum köfnunar, og þá hafði innvortisblæðing spillandi áhrif á súrefnisnæringu til heilans sem var til þess fallið að stuðla enn frekar að köfnuninni.

Þetta kemur fram í framhaldsákæru á hendur Dagbjörtu Guðrúnu Rúnarsdóttur sem fréttastofa hefur undir höndum. Hún er er grunuð um að bana tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi.

Í upprunalegri ákæru málsins er margvíslegum áverkum um líkama mannsins lýst, en þar segir að „samþættar afleiðingar áverkanna voru þær að [maðurinn] lést“.

Í framhaldsákærunni segir hins vegar að maðurinn hafi látist af „völdum köfnunar vegna ytri kraftverkunar á hálsinn og efri öndunarveginn en blæðing innvortis og beinmergjarblóðrek vegna beináverka, átti sinn skerf í spillandi áhrifum á súrefnisnæringu til heilans og var þannig til þess fallið að stuðla enn frekar að framvindu köfnunarferlisins.“

Að öðru leyti er upprunaleg ákæra málsins sú sama. Framhaldsákæran var lögð fram við þingfestingu málsins síðastliðinn föstudag, en þar greindi Dagbjört frá afstöðu til sakarefnanna. Hún neitar sök.

Dagbjörtu, sem er á 43 aldursári, er gefið að sök að hafa orðið manninum að bana og beita hann margvíslegu ofbeldi aðdraganda andlátsins, en það á að hafa staðið yfir í tvo daga. Hún er sögð hafa sparkað í manninn, beitt þrýstingi á andlit hans, klof, bol, handleggi og fótleggi. Þá á hún að hafa tekið manninn föstu hálstaki og snúið upp á fingur hans.

Tveir aðstandendur mannsins krefja Dagbjörtu hvort sig um átta milljónir króna í miskabætur. Við þingfestingu málsins í dag hafnaði Dagbjört einnig því að hún bæri bótaskyldu.

Meðal gagna í málinu eru myndbönd og hljóðupptökur tekin á síma hins látna og Dagbjartar. Myndefnið er sagt vera um tvær og hálf klukkustund að lengd.

„Á myndböndunum má sjá og heyra kærðu valda brotaþola ítrekuðum líkamsmeiðingum,“ segir í úrskurði í málinu. Þá hefur komið fram að nágrannar Dagbjartar hafi heyrt læti og öskur úr húsinu dagana á undan.


Tengdar fréttir

Áfram í gæsluvarðhaldi: Kryfja smáhund sem fannst í frysti

Kona á fimmtugsaldri, sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík, mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember næstkomandi. Rannsókn lögreglu krefst þess að smáhundur sem fannst dauður í frysti á vettvangi verði krufinn.

Tveggja daga líkamsmeiðingar til á upptöku

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þess efnis að Dagbjörtu Rúnarsdóttur, konu á fimmtugsaldri sem ákærð hefur verið fyrir manndráp í Bátavogi, verði gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi. Gæsluvarðhald yfir henni rennur nú út þann 11. janúar á næsta ári.

Margþætt ofbeldi yfir tvo daga leiddi manninn til dauða

Dagbjört Guðrún Rúnarsdóttir er talin hafa banað tæplega sextugum karlmanni á heimili sínu í Bátavogi í Reykjavík með margþættu ofbeldi í september síðastliðnum. Ákæran hefur verið birt Dagbjörtu og fréttastofa hefur hana undir höndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×