Börnin í Breiðuvík á hvíta tjaldið „Ég reikna með því að myndin verði frumsýnd um hvítasunnuhelgina,“ segir Bergsteinn Björgúlfsson sem er að leggja lokahönd á kvikmynd um barna-og unglingaheimilið í Breiðuvík en málefni þess hafa verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu. „Hún verður ekkert í líkingu við þá umfjöllun. Þar hefur fólk verið að smjatta á þessu og fleyta rjómann ofan af málinu,“ segir leikstjórinn. Bíó og sjónvarp 7. febrúar 2007 10:15
Bridges í Iron Man Leikarinn Jeff Bridges hefur tekið að sér hlutverk í ofurhetjumyndinni Iron Man sem verður framleidd sjálfstætt af fyrirtækinu Marvel Entertainment. Robert Downey Jr. fer með aðalhlutverkið í myndinni sem fjallar um ofurhetjuna Iron Man og annað sjálf hennar, milljarðamæringinn og iðnjöfurinn Tony Stark. Bíó og sjónvarp 7. febrúar 2007 05:45
Anita í 1500 kvikmyndahús Kvikmyndin Journey 3-D sem Aníta Briem leikur í verður dreift í 1.500 kvikmyndahús í Bandaríkjunum á næsta ári. Bíó og sjónvarp 6. febrúar 2007 10:00
Nýju fötin keisarans Kvikmyndasafn Íslands sýnir mynd Roberts Altman, Prét-á-Porter kl. 20 kvöld. Myndin er paródía á tískuvikuna í París og var kvikmynduð á einni slíkri. Bíó og sjónvarp 6. febrúar 2007 08:15
Par á bar á Nasa Æfingar eru hafnar á gamanleikritinu Bar/Par eftir Jim Cartwright. Eins og nafnið á verkinu gefur til kynna gerist leikritið á bar þar sem áhorfendur fá tækifæri til að kíkja inn í líf bareigenda sem eru hjón og gesta þeirra eina kvöldstund. Bíó og sjónvarp 6. febrúar 2007 08:00
Vill ekki sjá Drottninguna Elísabet II Englandsdrottning ætlar aldrei að sjá myndina The Queen, með Helen Mirren í aðalhlutverki, því hún vill ekki sjá annan í sínu hlutverki á hvíta tjaldinu. Bíó og sjónvarp 6. febrúar 2007 06:45
Scorsese sigraði Leikstjórinn Martin Scorsese fékk Directors Guild of America-verðlaunin fyrir mynd sína The Departed. Bíó og sjónvarp 6. febrúar 2007 06:00
Hátíðir í Gautaborg, Rotterdam og Berlín Þessa dagana er mikið um dýrðir víða í Evrópu: það er tími stóru kvikmyndahátíðanna í Gautaborg, Rotterdam og framundan er Berlínarhátíðin. Bíó og sjónvarp 6. febrúar 2007 05:00
Kvikmyndaleikstjóraverðlaunin afhent Vestanhafs Kvikmyndaleikstjóraverðlanin (Director's Guild Awards) voru veitt í 59. skipti í gær en það eru samtök kvikmyndaleikstjóra í Ameríku sem veita verðlaunin. Eru þau talin benda til þess hvaða leikstjóri er líklegastur til að hreppa Óskarinn, en Óskarsverðlaunin verða veitt síðar í þessum mánuði. Aðeins sex sinnum frá árinu 1949 hefur sá leikstjóri sem hlýtur kvikmyndaleikstjóraverðlaunin ekki fengið Óskarinn fyrir bestu leikstjórn. Bíó og sjónvarp 5. febrúar 2007 18:00
Lindsey hættir við kvikmynd Leikkonan Lindsay Lohan hefur hætt við hlutverk í kvikmyndinni "A Woman Of No Importance." Ástæðan er að Linds vill ná sér betur eftir áfengismeðferð. Annette Bening leikur stórt hlutverk í myndinni, en þetta er í annað sinn sem ætlunanir um að þær stöllur leiki saman í mynd fara út um þúfur. Árið 2003 hætti Annette við myndina Freaky Friday, en þar lék Lindsay aðalhlutverkið. Bíó og sjónvarp 5. febrúar 2007 15:45
Í nýjustu mynd Allen Spænska þokkagyðjan Penelope Cruz hefur tekið að sér aðalhlutverkið í næstu mynd Woody Allen. Tökur á henni hefjast í Barcelona í sumar. Allen hefur tekið upp síðustu tvær myndir sínar, Match Point og Scoop, í London. Nýjasta mynd hans, Cassandra"s Dream, með Ewan McGregor og Colin Farrell, er væntanleg í kvikmyndahús. Penelope Cruz var nýverið tilnefnd til óskarsins fyrir hlutverk sitt í mynd Pedro Almadovar, Volver. Bíó og sjónvarp 5. febrúar 2007 08:30
Köld slóð til Gautaborgar Kvikmyndinni Kaldri slóð hefur verið boðið að taka þátt í “Nordic Film Market” sem er sölumarkaður innan Gautaborgar hátíðarinnar. Það eru einungis tuttugu myndum frá Norðurlöndunum boðin þáttaka á þessum lokaða markaði og því er þetta mikill fengur fyrir framleiðendur myndarinnar. Bíó og sjónvarp 31. janúar 2007 16:47
Little Miss Sunshine hlutskörpust Það var mikið um dýrðir í Los Angeles í gærkvöldi þegar Screen Actors Guild verðlaunin (SAG Awards) voru veitt í 13. sinn en það er bandalag leikara í Bandaríkjunum sem velur vinningshafana. Bíó og sjónvarp 30. janúar 2007 14:11
Blint auga Akademíunnar Martin Scorsese var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir The Departed á þriðjudaginn. Þetta er sjötta tilnefning Scorsese sem besti leikstjórinn en þrátt fyrir það hefur hann aldrei hampað styttunni eftirsóttu. Hann er þó síður en svo eina dæmið um brenglað gildismat Akademíunnar. Bíó og sjónvarp 25. janúar 2007 10:00
Foreldrar og börn Leikstjórinn Todd Field vakti mikla athygli með frumraun sinni In the Bedroom árið 2001. Myndin var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni þar sem gagnrýnendur tóku henni opnum örmum. Bíó og sjónvarp 25. janúar 2007 08:45
Grísinn og kóngulóin Barna- og fjölskyldummyndin Charlotte‘s Web verður frumsýnd í Sam-bíóunum annað kvöld. Myndin byggir á samnefndri og víðlesinni barnabók og fjallar um lítinn grís, Wilbur að nafni, sem ung stúlka bjargar frá slátrun og tekur að sér að býlinu sínu. Í hlöðunni kynnist Wilbur kóngulónni Charlotte sem tekur hann upp á sína arma. Bíó og sjónvarp 25. janúar 2007 08:30
Gyðingar og víkingar Fjórar ungar konur úr tveimur ólíkum löndum deildu vist í Arnhem við nám í samningu listdansa í ArtEZ-skólanum. Tvær þeirra voru íslenskar, menntaðar sem dansarar úr Listdansskóla Íslands, hinar komu frá Ísrael. Bíó og sjónvarp 25. janúar 2007 08:15
Owen leikur Marlowe Clive Owen, sem síðast lék í framtíðarmyndinni Children of Men, mun að öllum líkindum leika bandaríska rannsóknarlögreglumanninn Philip Marlowe í nýrri mynd. Bíó og sjónvarp 25. janúar 2007 06:30
Örvæntingarfull leit að blóðdemanti Það er sláttur á þeim félögum Leonardo DiCaprio og Djimon Hounsou (Gladiator, The Island, Eragon) í spennumyndinni Blood Diamond og þeir uppskáru báðir óskarsverðlaunatilnefningar fyrir hlutverk sín í myndinni. DiCaprio að sjálfsögðu fyrir bestan leik í aðalhlutverki en Hounsou fyrir aukahlutverk. Bíó og sjónvarp 25. janúar 2007 02:00
Aðskilnaður á ýmsa vegu Verkið „50 Ways to Leave Your Lover“ verður frumsýnt í Silfurtunglinu í Austurbæ á föstudagskvöld, 26. janúar. Bíó og sjónvarp 24. janúar 2007 10:00
Á tjaldið Ein vinsælasta skáldsaga á lesborðum þjóðarinnar á síðasta ári var Flugdrekahlauparinn. Nú er tökum á sögunni á vegum Dreamworks lokið og er myndin væntanleg í nóvember. Var farið til Kína og kvikmyndað í Yarbeshe. Nú reynir á vestræna áhorfendur en mest er leikið á darí. Leikararnir hafa ekki sést áður á hvíta tjaldinu. Drengirnir Kekiria Ebrahimi og Ahmad Khan Mahmiidzada frá Kabúl og voru ráðnir án þess að hafa neina reynslu. Verður líf þeirra héðan í frá gerbreytt. Bíó og sjónvarp 24. janúar 2007 09:45
Dreamgirls hlutskörpust Söngvamyndin Dreamgirls hlaut átta tilnefningar til óskarsverðlaunanna en var ekki tilnefnd sem besta myndin. Babel kom næst á eftir með sjö tilnefningar. Bíó og sjónvarp 24. janúar 2007 08:45
Hilmar með Draumalandið á svið Hilmar Jónsson hefur skrifað leikgerð upp úr Draumalandi Andra Snæs Magnasonar. Verkið verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í mars. „Slungið að sviðsetja Draumalandið? Auðvitað er það. Mjög spennandi verkefni. En í sjálfu sér, þegar þú tekur svona texta eins og hans Andra Snæs og rennir honum í gegnum manneskjur þá verður hann dramatískur,” segir Hilmar Jónsson leikstjóri. Bíó og sjónvarp 24. janúar 2007 05:00
Sannar og brenglaðar myndir af okkur Danssmiðja Íslenska dansflokksins er tilraunastöð fyrir unga danshöfunda þar sem þeim gefst tækifæri til að sýna verk í vinnslu, æfa tækni sína og þroska sköpunargáfu. Því eru sýningar danssmiðjunnar meira í ætt við gjörninga eða tilraunir, en ekki fullmótuð verk. Bíó og sjónvarp 24. janúar 2007 04:15
Basic Instinct 2 efst á blaði Kvikmyndirnar Basic Instinct 2 og Little Man hafa verið tilnefndar til sjö Razzie-verðlauna, sem verða afhent hinn 24. febrúar, degi á undan óskarsverðlaununum. Verðlaununum er ætlað að endurspegla það versta sem kvikmyndaborgin Hollywood bauð upp á á síðasta ári. Bíó og sjónvarp 23. janúar 2007 09:30
Brynhildur segir upp hjá Þjóðleikhúsinu Brynhildur Guðjónsdóttir hefur sagt upp störfum hjá Þjóðleikhúsinu eftir farsælan feril í átta ár. Þetta staðfesti hún í samtali við Fréttablaðið. „Það er einhvern veginn andstætt eðli mínu að vera ríkisstarfsmaður,“ segir Brynhildur en tekur skýrt fram að engum hurðum hafi verið skellt þegar hún afhenti Þjóðleikhússtjóra uppsögnina. Bíó og sjónvarp 23. janúar 2007 09:15
Little Miss kjörin best Kvikmyndin Little Miss Sunshine var valin besta myndina á Producers Guild of America-verðlaununum sem voru afhent um síðustu helgi. Verðlaunin þykja gefa góða vísbendingu um hvaða mynd eigi eftir að vegna vel á óskarsverðlaununum. Myndirnar sem hlutu ekki náð fyrir augum dómnefndarinnar voru Babel, The Departed, The Queen og Dreamgirls. Bíó og sjónvarp 23. janúar 2007 08:15
Pabbaleikurinn í Iðnó Bjarni Haukur er aftur kominn á fjalirnar. Alþjóð man þegar hann stóð á sviði Gamla bíós misserunum saman og flutti þar íslenska staðfærslu á amerískum einleik eða uppistandi sem kallað var Hellisbúinn. Bíó og sjónvarp 23. janúar 2007 08:00
Helen Mirren var drottning Golden Globe Babel hlaut Golden Globe verðlaunin sem besta kvikmyndin í Hollywood í gærkvöldi, en breska leikkonan Helen Mirren stal þó senunni á sextugsaldri með því að hljóta tvenn verðlaun, fyrir að leika tvær Bretlandsdrottningar. Forest Whitaker var valin besti kvikmyndaleikarinn og Martin Scorsese besti leikstjórinn. Bíó og sjónvarp 16. janúar 2007 10:14