Bíó og sjónvarp

Glíma Sæmundar og kölska

Flestir kannast við sögurnar af Sæmundi fróða og glímu hans við sjálfan fjandann. Nú lifna þjóðsögurnar við í Möguleikhúsinu sem frumsýnir nýtt leikrit um kappann í kvöld.

Sæmundur fór til náms í Svartaskóla þar sem kölski sjálfur réð ríkjum. Með klókindum tókst hinum fróða að sleppa úr klóm lærimeistarans og hrökk þá upp úr honum máltækið „þar skall hurð nærri hælum" þegar rammgerð skólahurðin skelltist á eftir honum og skrattinn varð eftir inni. Eftir þá uppákomu var Kölski sífellt á hæla Sæmundi og eru til af því ótal sögur hvernig galdramaðurinn sneri á hinn síðarnefnda enda reyndi þar mjög á klókindi og dirfsku hans.

Höfundur leikritsins er Pétur Eggerz en hann leikur einnig í sýningunni ásamt Öldu Arnardóttur og Bjarna Ingvarssyni. Pétur hefur samið fjölda leikverka fyrir Möguleikhúsið, þar á meðal jólaleikritið sívinsæla Smiður jólasveinanna og leikrit um umferðarálfinn Mókoll. Leikstjóri sýningarinnar er Þórhallur Sigurðsson, tónlist og hljóðmynd er eftir Guðna Franzson og leikmynd og búningar eru eftir Messíönu Tómasdóttur.

Sýningin er ætluð áhorfendum frá átta ára aldri, en auk þess að vera sýnd í Möguleikhúsinu er sýningin ferðasýning sem sýnd verður í skólum. Sýningin í kvöld hefst kl. 20 en sýnt er í húsnæði Möguleikhússins við Hlemm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.