Bíó og sjónvarp

Horft austur

Syndir feðranna þekktasta mynd James Dean verður sýnd í Tjarnarbíói á morgun.
Syndir feðranna þekktasta mynd James Dean verður sýnd í Tjarnarbíói á morgun.

Um tvö hundruð manns hafa þegar skráð sig í kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn sem hóf sýningar í Tjarnarbíói fyrir skömmu. Þriðju sýningarhelgina verður kastljósinu beint að Rússlandi. Á morgun verða sýndar fjórar myndir en þar á meðal er stórvirkið Trönurnar fljúga eftir Mikhail Kalatozov.

Myndin var gerð 1957 og hefur verið álitin fyrsta meistaraverk sovéskrar kvikmyndagerðar eftir dauða Stalíns. Myndinni var strax hampað sem byltingarkenndri í Sovétríkjunum, sló í gegn víðs vegar um heim og vann gullpálmann í Cannes 1958. Kvikmyndin tekur persónulegt drama fram yfir pólitískt áróðursbrask Stalín-áranna með áherslu á erfiða ástarsögu í forgrunni heimsstyrjaldarinnar. Myndin er sýnd með ensku tali.

Auk þess sýnir Fjalakötturinn nýlega rússneska mynd, Dauðinn á ferð, Rebel Without a Cause með hjartaknúsaranum James Dean frá 1955 og vísindatryllinn Solaris frá 1972.

Nánari upplýsingar um dagskrá Fjalakattarins er að finna á heimasíðunni www.filmfest.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×