Fótbolti

María hetja dagsins en mark Ingi­bjargar dugði skammt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
María Ólafsdóttir Grós skoraði mikilvægt mark i sænsku úrvalsdeildinni í dag.
María Ólafsdóttir Grós skoraði mikilvægt mark i sænsku úrvalsdeildinni í dag. @fortunavrouwen

Íslensku knattspyrnukonurnar María Ólafsdóttir Grós og Ingibjörg Sigurðardóttir voru báðar á skotskónum í leikjum liðanna sinna í dag.

María Ólafsdóttir Grós skoraði sigurmarkið þegar Linköping vann 1-0 útisigur á Alingsås. Þetta var fyrsti deildarsigur liðsins á tímabilinu og hann kom í fimmtu umferð.

María kom Linköping í 1-0 á 23. mínútu leiksins og það reyndist vera eina mark leiksins.

María hafði lagt upp mark Linköping í leiknum á undan en skoraði nú sitt fyrsta mark á tímabilinu.

Ingibjörg Sigurðardóttir kom Bröndby í 1-0 á móti AGF frá Árósum sem sat í neðsta sæti efri hlutans. AGF náði að koma til baka og tryggja sér 2-1 sigur.

Bröndby hefur þar með spilað fimm síðustu leiki sína án þess að ná að fagna sigri og hafa fyrir vikið nánast yfirgefið titilbaráttunni þar sem Fortuna Hjörring er að stinga af.

Inbjörg kom Bröndby í 1-0 strax á sextándu mínútu leiksins og þannig var staðan í hálfleik.

Allt gekk hins vegar á afturfótunum í seinni hálfleiknum. AGF náði hins vegar að jafna metin eftir aðeins þriggja mínútna leik í seinni hálfleik. Markið skoraði Laura Högh Faurskov og hún kom síðan sínu liði yfir tuttugu mínútum fyrir leikslok. Það var sigurmarkið í leiknum.

Ingibjörg og Hafrún Rakel Halldórsdóttir voru báðar í byrjunarliðinu hjá Bröndby í dag.

Bryndis Arna Níelsdóttir var í byrjunarliði Växjö og spilaði í 66 mínútur í 2-2 jafntefli á móti Vittsjö. Växjö var 2-1 yfir þegar Bryndís var tekin af velli. Maja Bodin og Sophia Redenstrand skoruðu mörk liðsins.

Landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir sat á bekknum þegar Häcken vann 4-0 útisigur á Norrköping. Monica Jusu Bah skoraði tvö mörk en þriðja markið var sjálfsmark. Paulina Nyström kom Häcken síðan fjórum mörkum yfir undir lokin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×