Lofar betra sumri en í fyrra Jón Ísak Ragnarsson skrifar 22. apríl 2025 19:30 Siggi stormur segir engar líkur á því að sumarið í ár verði jafnslæmt og í fyrra. Vísir/Vilhelm Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, sem er betur þekktur sem Siggi Stormur, segir að engar líkur séu á því að sumarið verði jafn kalt og blautt eins og í fyrra. Hann segir að ekkert í langtímaspánum gefi tilefni til að ætla að sumarið verði slæmt.
Slegið var á þráðinn til Sigga í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni, en mikil veðurblíða hefur verið á landinu undanfarna daga, bæði sólríkt og hlýtt. Siggi er sjálfur á Spáni og hefur verið þar um páskana. „Maður reynir að vera sólarmegin í lífinu og ég treysti á að það yrði sólríkt á Spáni, en ég hefði ekkert þurft að fara. Ég hefði getað sparað mér aurinn,“ sagði Siggi nokkuð léttur í bragði. Hann segir að í fyrra hafi verið eitt kaldasta sumar sem komið hefur á öldinni, og það séu afar litlar líkur á því að það komi fyrir aftur. „Sko ef við leyfum okkur aðeins að spá í matseðilinn eins og hann hefur birst okkur, og ég heyrði að þú nefndir að sumarið núna sem búið er að koma í nokkra daga sé eiginlega betra en allt sumarið í fyrra, og það er bara pínulítið sannleikskorn í þessu...“ „Til dæmis 2023 voru eftir fyrstu tuttugu daga aprílmánaðar, þá vorum við með hlýjasta aprílmánuð á öldinni.“ „Núna þessa tuttugu daga sem liðnir eru af april, þeir raða sér í fjórða sæti, þetta er fjórði hlýjasti aprílmánuður á þessari öld. En það má ekki gleyma því að þetta eru bara tuttugu dagar og það getur ýmislegt gerst í framhaldinu.“ Í fyrra hafi verið snjókoma og skafrenningur á Norðurlandi í júní, og bændur hafi verið í miklu basli. „Engar líkur eru á, ég segi bara engar líkur eru á því að þetta fari að endurtaka sig. Það eru svo litlar líkur á því að það er bara eins og að verða fyrir eldingu,“ segir Siggi. Spáði sólríku sumri sem aldrei kom Eins og fram hefur komið var sumarið í fyrra eitt kaldasta sumar aldarinnar. Hver gula viðvörunin fylgdi annarri og á Norðurlandi kyngdi niður snjó snemma í júní. Siggi stormur hafði lofað hlýju og sólríku sumri í fréttum Stöðvar 2 í apríl, en þurfti svo að biðjast afsökunar á spánni þegar kominn var júlí og enn bólaði ekkert á sólinni. „Mér er bæði ljúft og skylt að afsaka þá spá sem lá í kortunum í apríl,“ sagði hann. Útlit fyrir ágætan Sumardag fyrsta Siggi segir að veðurspá vikunnar sé prýðileg og útlit sé fyrir ágætt veður Sumardaginn fyrsta fimmtudaginn næstkomandi. „Það verður kannski ekkert rosalega sólríkt á landinu, en þó ekki lokum fyrir það skotið að það verði skýjað með köflum, og hitinn tíu, tólf, fjórtán stig, á því rólinu á suðvestanverðu næstu daga, en reyndar eru næturfrostin ekki farin úr kortunum.“ „Hitinn fer upp á daginn en næturfrostin eru ennþá og það má ekki gleyma því að ef saman frýs sumar og vetur, þá er von á góðu sumri.“ Hins vegar sé kuldakast í kortunum eftir þriðja eða fjórða maí. „Þá eru spárnar komnar með kulda og þá erum við að tala um lágan hita af deginum og frost að næturlagi jafnvel, og það mun standa yfir jafnvel í einhverja daga. Svo erum við að sigla inn í sumar sem getur ekki orðið verra en í fyrra það er ekki hægt.“ „Það er ekkert hins vegar í langtímaspánum sem gefur tilefni til að ætla að sumarið verði slæmt. Ég lofa ykkur því og ætla standa við það. Það eru engar líkur á því að þetta fari í sama far og í fyrra,“ segir Siggi.
Veður Bylgjan Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Eitt versta sumar aldarinnar Sumarið 2024 var óvenju kalt og blautt, samkvæmt gögnum Veðurstofunnar. Sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum gefur sumrinu slaka einkunn - það hafi verið með þeim verri á þessari öld. Þá fara fyrstu dagar septembermánaðar ekki heldur mjúkum höndum um íbúa víða á landinu. 4. september 2024 15:26 Mest lesið Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Innlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Innlent „Ég er mannleg“ Innlent Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Innlent Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Erlent Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira „Ég er mannleg“ Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Lofar betra sumri en í fyrra Fagnar umræðu um þátttöku Ísraels og segir útspil ráðherra gagnlegt Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Breytingar á gosvirkni, júró-þrýstingur og umdeildir málshættir Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Reiknar með að sækja útför Frans páfa Páskaeggjaframleiðandi fagnar gagnrýni á málshætti Vildi „tagga“ Frans páfa en niðurstaðan reyndist slysaleg „Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva“ Landris heldur áfram en dregið hefur úr hraðanum „Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt Ráðherra ræðir þátttöku Ísraels í Eurovision Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Stöðvaður á 116 kílómetra hraða Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Hvalreki í Njarðvík við Borgarfjörð eystri Forsætisráðherra vill sjá nýtt fangelsi á Stóra Hrauni sem fyrst „Til hamingju hálfvitar“ Svikahrappur beið eftir flugferð framkvæmdastjórans Frans páfi, forsætisráðherra um fangelsismál og villtur páfagaukur Sjá meira
Eitt versta sumar aldarinnar Sumarið 2024 var óvenju kalt og blautt, samkvæmt gögnum Veðurstofunnar. Sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum gefur sumrinu slaka einkunn - það hafi verið með þeim verri á þessari öld. Þá fara fyrstu dagar septembermánaðar ekki heldur mjúkum höndum um íbúa víða á landinu. 4. september 2024 15:26