Innlent

Krefjast gæsluvarðhalds

Lovísa Arnardóttir og Jón Þór Stefánsson skrifa
Tveir menn hafa verið leiddir fyrir dómara.
Tveir menn hafa verið leiddir fyrir dómara.

Lögreglan á Suðurlandi framkvæmir nú rannsókn á bíl sem, samkvæmt heimildum, er talinn hafa verið notaður til að ferja mann á sjötugsaldri frá Þorlákshöfn og til Reykjavíkur þar sem gengið var í skrokk á honum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er enn leitað sönnunargagna í málinu.

Maður á sjötugsaldri fannst þungt haldinn á göngustíg í Gufunesi snemma í gærmorgun og lést samkvæmt tilkynningu lögreglunnar stuttu eftir komu á spítala.

Lögregla hóf leit að manninum eftir að þeim hafði verið tilkynnt að hann hefði horfið af heimili sínu á mánudagskvöld og óttast væri um hann. Samkvæmt tilkynningu grunaði lögreglu snemma að um frelsissviptingu væri að ræða.

Sjá einnig: Maður hand­tekinn en kona flúði í máli sem tengist andlátinu

Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að alls hafi átta verið handtekin í málinu. Fimm voru handtekin um hádegisbil í gær og svo þrjú seinni partinn eða um kvöldið. Þremur var sleppt úr haldi að skýrslutöku lokinni. Fram kemur í tilkynningu lögreglunnar að rannsókn beinist að frelsissviptingu, fjárkúgun og manndrápi.

Krafist hefur verið gæsluvarðhalds á hendur einum manni sem var handtekinn. Ekki liggur fyrir hvort krafist verði að fleiri fari í varðhald. Dómari mun ákveða síðar í dag hvort fallist verði á kröfu lögreglunnar um einnar viku gæsluvarðhald á hendur manninum.

Í fréttum í gær var talað um að maðurinn hefði verið tekinn á leikvöll í Gufunesi. Það hefur þó ekki verið staðfest af lögreglu. Aðeins kemur fram í þeirra tilkynningu að maðurinn hafi fundist í Gufunesi. Vísir/Anton Brink

Margdæmdur ofbeldismaður

Lögreglustjórinn á Suðurlandi fer með rannsókn málsins en líkt og áður hefur verið greint frá hafa lögregluembættin á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Vesturlandi auk sérsveitar ríkislögreglustjóra einnig komið að henni. 

Umfangsmikil leit fór fram í gær í Kópavogi að lokinni eftirför lögreglunnar. Einn var handtekinn í kjölfar eftirfarar og svo leitaði lögregla að konu sem var handtekin um klukkan 21.

Sjá einnig: Nokkur hinna hand­teknu tengjast tál­beitu­hópum

Einn þeirra sem hefur verið handtekinn er margdæmdur ofbeldismaður. Þá hafa einhverjir í hópnum samkvæmt heimildum fréttastofu tengsl við tálbeituhópa sem hafa starfað síðustu vikur og mánuði. Málið er þó aðeins sagt tengjast fjárkúgun.

Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan.


Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.


Ef vaktin birtist ekki hér að neðan er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×