Innlent

Búið að opna Reykja­nes­braut á ný

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Nokkur bílaröð myndaðist vegna lokunarinnar. Myndin er úr safni.
Nokkur bílaröð myndaðist vegna lokunarinnar. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Reykjanesbraut hefur verið opnuð á nýjan leik. Loka þurfti brautinni í átt til Reykjavíkur vegna gámabíls sem þveraði veginn. Betra færi er á brautinni en í morgun.

Þetta segir Sigríður Inga Sigurðardóttir, á samskiptasviði Vegagerðarinnar, í samtali við fréttastofu. Reykjanesbraut hefur verið lokað við Fitjar í átt að höfuðborginni, en gámabíllinn þveraði veginn við Voga. 

„Það er búið að losa bílinn,“ segir Sigríður. Hún bendir vegfarendum á að allar nýjustu fréttir af færð verði settar inn á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is.

Bílaröð hafi myndast við lokunina, en þó ekki mjög löng.

„Við erum með hefil, hjólaskóflu og tvo mokstursbíla á svæðinu. Það er ágætis færi núna, ekki lengur þessi mikli skafrenningur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×