Innlent

Starf­semin sé ekki tryggð miðað við nú­verandi fram­lög

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Ásta Sól Kristjánsdóttir er framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar.
Ásta Sól Kristjánsdóttir er framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar. Vísir/Sigurjón

Framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar segir félaginu þröngur stakkur sniðinn fjárhagslega. Félagið hafi þurft að hækka gjöld á þjónustu sem eigi að vera gjaldfrjáls. Síðustu ár hefur félagið annast eina ættleiðingu á ári.

Boðað hefur verið til félagsfundar hjá Íslenskri ættleiðingu í kvöld, vegna þess sem framkvæmdastjórinn kallar viðkvæma stöðu. Félagið er með þjónustusamning við dómsmálaráðuneytið, og fékk 24 milljónir króna á síðasta ári.

„Við erum að fá sama framlag og áður, það þýðir niðurskurður. Við þurfum að fylgja launaþróun og alls konar vísitölubreytingum og hinu og þessu,“ segir Ásta Sól Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenskrar ættleiðingar. 

Ættleiðingum fækkað verulega

Hætta sé á því að félagið muni ekki geta sinnt sínu hlutverki. Ásta kallar eftir frekara samstarfi við stjórnvöld.

„Við þurfum aðeins að skoða þessa stöðu sem er komin upp og hvernig við viljum halda áfram.“

Nokkur fækkun hefur orðið í alþjóðlegum ættleiðingum hingað til lands á undanförnum árum. Á árunum 2007 til 2020 hafi ættleiðingarnar verið um fimm á ári.

„Undanfarin tvö ár hefur verið ein ættleiðing á ári. Það kemur ýmislegt til, Covid spilaði þar inn í. Svo var eitt land sem hætti samstarfi, ekki bara við okkur heldur við fleiri lönd.“

Fleiri en eitt hlutverk

Erfitt sé að horfa fram á niðurskurð í jafn viðkvæmum málaflokki, en félagið annast ekki aðeins ættleiðingar.

„Við erum með mjög góða fræðslu fyrir bæði félagsmenn og verðandi kjörforeldra. Við þurfum að tryggja að það haldi áfram, það er gífurlega mikilvægt.“

Félagið leiti nú styrkja, en þeir séu ekki fastir í hendi. Þjónustugjöld hafi þá verið hækkuð um fimmtán prósent.

„Við hefðum síður viljað gera það og á undanförnum árum hefur verið töluverð hækkun. Við höfum þurft að setja gjöld á þjónustu sem að við teljum að eigi að vera gjaldfrjáls.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×