Fótbolti

Leik­maður Athletic Bilbao stöðvaði vopnaði inn­brots­þjófa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alex Berenguer tókst að stöðva innbrotsþjófa í gær.
Alex Berenguer tókst að stöðva innbrotsþjófa í gær. getty/Ricardo Larreina

Alex Berenguer, leikmaður Athletic Bilbao, kom í veg fyrir að þrír grímuklæddir menn vopnaðir byssum brytust inn á heimili hans.

Í gærkvöldi reyndu mennirnir þrír að brjótast inn á heimili Berenguers og eiginkonu hans, Sofiu Jem, í þorpinu Mungia í Baskalandi.

Berenguer-hjónin voru heima en hann kom í veg fyrir að þjófarnir næðu að brjótast inn með því að loka glerhurð og þá tókst honum að gera lögreglunni viðvart.

Þjófarnir flúðu af vettvangi áður en lögregluna bar að garði. Málið er nú til rannsóknar. Berenguer-hjónin sluppu ómeidd.

Hinn 29 ára Berenguer gekk aftur í raðir Athletic Bilbao 2020. Hann gæti leikið sinn tvö hundraðasta leik fyrir félagið þegar það mætir Viktoria Plzen í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.

Athletic Bilbao gerði markalaust jafntefli við Leganés um helgina. Liðið er í 4. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×