Viðskipti innlent

Segir skipta gríðar­legu máli að fá loðnu­ver­tíð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Loðnuveiðiskipin Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson við bryggju á Hornafirði í dag. Vinnsluhús Skinneyjar Þinganess fyrir aftan.
Loðnuveiðiskipin Jóna Eðvalds og Ásgrímur Halldórsson við bryggju á Hornafirði í dag. Vinnsluhús Skinneyjar Þinganess fyrir aftan. Sigurjón Andrésson

Bæjarstjóri Hornafjarðar segir skipta gríðarlegu máli fyrir sveitarfélagið og þjóðarbúið að það verði loðnuvertíð. Skip í loðnuleit hafa síðustu daga fundið loðnu undan Húnaflóa og úti fyrir Norðausturlandi og Austfjörðum.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um vaxandi spennu sem er að færast loðnuleitina. Sjá mátti siglingaferla skipanna fjögurra sem taka þátt í loðnumælingunum.

Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Hornafjarðar.Bjarni Einarsson

Leitin byrjaði reyndar ekki vel því hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson neyddist um helgina til að liggja í vari undir Grænuhlíð í mynni Ísafjarðardjúps vegna illviðris. Heimaey VE sat sömuleiðis föst inni á Þórshöfn vegna brælu.

Siglingarferlar skipanna fjögurra sem taka þátt í loðnuleitinni, eins og þeir voru síðdegis.Sara Rut Fannarsdóttir/Hafrannsóknastofnun

Hin tvö leitarskipin tvö, Barði NK og Polar Ammasak, hafa hins vegar verið að leita undan Norðausturlandi og Austfjörðum. Það sem er sérstaklega spennandi að sjá eru þær lykkjur sem sjást koma á leitarferlana. Þeir sýna hvar skipin hafa séð loðnu og sett út flottrollið til að rannsaka loðnuna betur.

Þannig sést að Árni Friðriksson er búinn að finna loðnu norður af Húnaflóa. Einnig að Barði NK og Polar Ammasak eru búin að sjá hana á að minnsta kosti á sjö stöðum á norðaustur- og austurmiðum.

Þessar byggðir eiga mest undir loðnuveiðum og vinnsluGrafík/Sara Rut Fannarsdóttir

Sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar vara þó við því að menn geri sér of miklar vonir á þessu stigi. Leitinni sé ekki lokið og að það verði að bíða eftir niðurstöðu heildarmælingar, sem væntanlega kemur eftir helgi.

Annað kort, frá fyrirtækinu Greenfish, sýnir hvar gervigreind spáir fyrir um að loðnugöngur ættu að vera um þetta leyti. Sú mynd stemmir merkilega vel við hvar leitarskipin hafa verið að sjá loðnuna síðustu daga.

Hér ættu loðnugöngur að vera núna, samkvæmt korti sem gert er með gervigreind.Greenfish

En það er sennilega hvergi meiri spenna en í loðnubyggðunum, sem flestar eru austanlands. Vestmannaeyjar eru þó stærsta loðnuverstöðin en Norðfjörður sú næststærsta.

Í frétt Stöðvar 2 má sjá viðtal við Sigurjón Andrésson, bæjarstjóra á Hornafirði:

Fiskiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds lágu bæði við bryggju á Hornafirði í dag en þau hafa sinnt á loðnuveiðum á undanförnum árum fyrir Skinney-Þinganes, útgerðarfélag Hornfirðinga.

Um níu prósent loðnukvótans eru í höndum Hornfirðinga og er allur aflinn unninn í vinnsluhúsum á staðnum.

Horft yfir Höfn í Hornafirði í dag.Sigurjón Andrésson

Jóna Eðvalds er núna að hálfu komin í eigu Ísfélagsins og verður nýtt sem varaskip. Í staðinn landar Hákon ÞH uppsjávarafla á Hornafirði.


Tengdar fréttir

Fjögur skip hefja leit að loðnu

Fjögur skip eru núna að hefja loðnuleit í veikri von um að bjarga megi loðnuvertíð. Kristján Már Unnarsson var staddur við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann sagði loðnuvertíðina skipta miklu máli fyrir þjóðarbúið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×