Varnarmennirnir björguðu Chelsea Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. janúar 2025 19:32 Tosin Adarabioyo (nr. 4) fagnar marki sínu. EPA-EFE/ANDY RAIN Chelsea vann loks leik í ensku úrvalsdeildinni en liðið hafði farið fimm deildarleiki án sigurs þegar Úlfarnir mættu á Brúnna í kvöld. Voru það varnarmenn liðsins sem tryggðu liðinu sigur. Miðvörðurinn Tosin Adarabioyo kom Chelsea yfir um miðbik fyrri hálfleiks en Matt Doherty jafnaði metin fyrir gestina í uppbótartíma fyrri hálfleiks og allt jafnt þegar síðari hálfleikur hófst. Vinstri bakvörðurinn Marc Cucurella kom Chelsea yfir eftir fyrirgjöf Kiernan Dewsbury-Hall þegar klukkustund var liðin og vængmaðurinn Noni Madueke gerði út um leikinn fimm mínútum síðar eftir undirbúning miðvarðarins Trevoh Chalobah. Lokatölur 3-1 og Chelsea nú í 4. sæti með 40 stig, fjórum minna en Arsenal og Nottingham Forest sem eru á milli Chelsea og toppliðs Liverpool sem er með 50 stig ásamt því að eiga leik til góða. Enski boltinn Fótbolti
Umfjöllun: Slóvenía - Ísland 18-23 | Himneskur Viktor og íslensk vörn í lykilsigri á HM Handbolti
Umfjöllun: Slóvenía - Ísland 18-23 | Himneskur Viktor og íslensk vörn í lykilsigri á HM Handbolti