Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Justin Kluivert skoraði sína aðra þrennu á tímabilinu í dag.
Justin Kluivert skoraði sína aðra þrennu á tímabilinu í dag. getty/Ed Sykes

Með sigri í dag hefði Newcastle getað jafnað Nottingham Forest að stigum í 3. sæti deildarinnar. En það gekk ekki eftir og sigur Bournemouth var á endanum öruggur.

Kluivert kom Bournemouth yfir strax á 6. mínútu eftir laglega sókn gestanna. Á 25. mínútu jafnaði Bruno Guimaraes, fyrirliði Newcastle, metin.

Kluivert var ekki hættur og mínútu fyrir hálfleik skoraði hann annað mark sitt og kom Bournemouth í 1-2.

Í uppbótartíma skoraði Kluivert svo þriðja mark sitt með góðu skoti fyrir utan vítateig. Hann hefur verið drjúgur á tímabilinu, hefur skorað tvær þrennur og er kominn með tíu mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Bournemouth-menn voru ekki hættir og þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði vinstri bakvörðurinn Milos Kerkez fjórða mark liðsins með föstu skoti í fjærhornið. Lokatölur 1-4, gestunum í vil. 

Með sigrinum komst Bournemouth upp í 6. sæti deildarinnar. Liðið hefur unnið sex af síðustu tíu leikjum sínum og gert fjögur jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira