Sport

Fjögur lið að­eins einum leik frá Super Bowl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Leikstjórnandinn Josh Allen fagnar sigri Buffalo Bills í nótt en með honum tryggði liðið sér sæti í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar.
Leikstjórnandinn Josh Allen fagnar sigri Buffalo Bills í nótt en með honum tryggði liðið sér sæti í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar. Getty/Kevin Sabitus

Buffalo Bills og Philadelphia Eagles tryggðu sér sæti í úrslitaleikjum deildanna í úrslitakeppni NFL deildarinnar í nótt. Þar með er ljóst hvaða lið spila um sæti í Super Bowl um næstu helgi.

Báðir leikirnir í nótt voru æsispennandi og snjókoma setti svip á báða leiki. Philadelphia Eagles vann fyrst 28-22 sigur á Los Angeles Rams en Buffalo Bills vann svo 27-25 sigur á Baltimore Ravens í svakalegum leik.

Þetta þýðir að Kansas City Chiefs tekur á móti Buffalo Bills í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar en Philadelphia Eagles fær Washington Commanders í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar.

Leikur Buffalo Bills og Baltimore Ravens var um leið uppgjör leikstjórnendanna Josh Allen og Lamar Jackson sem þykja líklegastir til að vera kostir mikilvægustu leikmenn deildarinnar á þessari leiktíð.

Lamar Jackson og félagar í Ravens þurfa að sætta sig enn á ný að komast ekki langt í úrslitakeppninni. Hann hefur nú spilaði í sjö ár í deildinni án þess að komast í stóra leikinn.

Innherjinn Mark Andrews missti boltann rúmri mínútu fyrir leikslok þegar hann gat jafnað metin í tveggja stiga tilraun og tryggt liði sínu framlengingu.

Buffalo hafði komist í 21-10 í leiknum og nýtt sér vel þrjá tapaða bolta hjá Baltimore.  Baltimore kom til baka og það munaði engu að þeim tækist að jafna.

Þess í stað fáum við enn eina viðureignina á milli Patrick Mahomes og Josh Allen sem hefur hingað til verið mikil veisla. Þeir mætast nú í fjórða sinn á fimm árum í úrslitakeppninni og Chiefs liðið hefur unnið alla hina. Allen á enn eftir að komast í sinn fyrsta Super Bowl.

Í sigri Philadelphia Eagles var hlauparinn Saquon Barkley í miklu stuði að vanda en hann fór 205 jarda með boltann og skoraði tvö snertimörk. Eagles vörnin var líka öflug þegar Rams liðið gerði sig líklegt til að fá eitthvað út úr leiknum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×