Körfubolti

Pa­vel stakk upp á áhuga­verðum skiptum

Siggeir Ævarsson skrifar
Hvern ætli Pavel sé að tala um?
Hvern ætli Pavel sé að tala um? Vísir/Anton

Stefán Árni Pálsson bauð upp á skemmtilegan samkvæmisleik í síðasta Körfuboltakvöldi þar sem hann bauð sérfræðingum kvöldsins að búa til leikmannaskipti í Bónus-deild karla. Einu skilyrðin voru að bæði lið myndu hagnast á skiptunum.

Sérfræðingar í setti að þessu sinni voru þeir Pavel Ermolinskij og Teitur Örlygsson og Pavel byrjaði á að rifja upp að Böðvar Guðjónsson, fyrrum formaður KR, hafi margoft reynt að skipta Pavel í önnur lið.

„Böðvar Guðjónsson, gamli formaðurinn minn, reyndi margt oft að „trade-a“ mér.“ - Sagði Pavel og glotti.

„Var stanslaust að tala um hvað hann gæti fengið fyrir mig. Hann vildi fá unga leikmenn, ætlaði að „trade-a“ mér í Stjörnuna fyrir unglingalfokkinn.“ - Bætti Pavel við og hló dátt.

Kom svo í ljós að Pavel var búinn að hugsa um möguleg skipti án þess að vita af þrautinni og var með tvö í handraðanum, en þau fyrri voru skipti á þjálfarateymum.

„Þjálfarateymi Álftaness. Við ætlum að gera þetta í landsleikjahléinu. Þetta er ekki að eilífu, þetta er bara í tvær vikur meðan deildin er stopp. Þá ætla ég að senda þjálfarateymi Álftaness yfir í Keflavík og ég ætla að senda þjálfarateymið í Keflavík yfir á Álftanes. Ég held að allir hefðu gott af því.“

Leikmannaskiptin sem Pavel stakk svo upp á voru ekki síður áhugaverð. Þar lagði hann til að Valur og Grindavík myndu skipta á tveimur sterkum póstum og myndu þau skipti að hans mati fleyta þessum tveimur liðum í úrslitaeinvígið. Þetta eru þeir DeAndre Kane og Taiwo Badmus.

Hægt er að horfa á innslagið í heild sinni hér að neðan og rökstuðning Pavels fyrir því af hverju þessi skipti myndu henta báðum liðum.

Klippa: Pavel og Teitur búa til skipti í deildinni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×