Viðskipti innlent

Spá ör­lítilli fjölgun ferða­manna milli ára

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Samdráttur í ferðaþjónustu var til umfjöllunar síðasta sumar. Þrátt fyrir það fjölgaði ferðamönnum um rúm tvö prósent milli ára. 
Samdráttur í ferðaþjónustu var til umfjöllunar síðasta sumar. Þrátt fyrir það fjölgaði ferðamönnum um rúm tvö prósent milli ára.  Vísir/Vilhelm

Ferðamálastofa hefur birt spá um fjölda erlendra ferðamanna fyrir næstu fimm ár. Stofnunin spáir um það bil sama ferðamannafjölda í ár og í fyrra en allt að sjö prósent fjölgun árið 2026. 

Í frétt á vef Ferðamálastofu kemur fram að rúmlega 2,2 milljónir erlendra ferðamanna hafi komið til landsins í gegn um Keflavíkurflugvöll í fyrra, 2,2 prósent fleiri en árið áður. 

„Fyrsti ársfjórðungur var erfiður í greininni; náttúruhamfarir á Reykjanesi og neikvæð erlend fréttaumfjöllun um þær ollu miklum afbókunum og óvissu um framhaldið.“

Engu að síður hafi Ferðamálastofu talist til að erlendir ferðamenn um Keflavíkurflugvöll hefðu verið 9 prósent fleiri á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma 2023. 

Dróst saman í vor en umtalsverð fjölgun í lok árs

Niðursveiflan hafi aftur á móti komið fram á öðrum fjórðungi og allir mánuðir fjórðungsins hafi sýnt samdrátt milli ára, sem mældist 4,8 prósent fyrir fjórðunginn í heild. 

Samdráttur í ferðaþjónustu á Íslandi var iðulega til umfjöllunar síðasta sumar. Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu sagði stöðuna í ferðamennsku hér á landigrafalvarlega og Lilja Alfreðsdóttir þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra boðaði hundrað milljón króna markaðsherferð á Íslandi sem ferðamannastað. Á sama tíma 

Áramótaspá Ferðamálastofu í þúsundum ferðamanna, ásamt síðustu spá til samanburðar fyrir árin 2024-2026.Ferðamálastofa

Fram kemur í frétt Ferðamálastofu að á þriðja ársfjórðungi hafi komið á ákveðið jafnvægi aftur. „Töldust ferðamenn tæplega einu prósenti fleiri en á sama tíma 2023 en fjórðungurinn inniheldur stærstu ferðamánuði ársins, júlí og ágúst.“

Allan lokafjórðung 2024 hafi hins vegar aftur orðið umtalsverð fjölgun á milli ára, ríflega 6 prósent, sem hafi skilað fjölgun erlendra ferðamanna 2024 miðað við fyrra ár.

Spá sjö prósenta fjölgun á næsta ári 

Þá segir að ákveðin teikn eru á lofti um að nokkuð muni draga úr fjölda flugferða til og frá landinu á þessu ári, miðað við í fyrra. Sum erlend flugfélög hafi til að mynda breytt fyrri áætlunum um flug til landsins auk þess sem flugfélagið Play hafi tilkynnt um verulega breytingu á viðskiptalíkani félagsins, sem meðal annars felur í sér samdrátt á flugi til og frá Íslandi. 

Á móti gæti nýtingarhlutfall sæta í ferðum hugsanlega hækkað. „Intellecon, sem er spágerðaraðili fyrir hönd Ferðamálastofu, hefur í þessari nýju spá ekki gengið svo langt að spá samdrætti í ár, heldur spáir um það bil sama fjölda og í fyrra.“

Á næsta ári og árin á eftir geri spáaðili aftur á móti ráð fyrir því að jafnvægi hafi komist á í flugi til og frá landinu, í samræmi við eftirspurn. Og að fjöldi erlendra ferðamanna til landsins stýrist fyrst og fremst af áætluðum hagvexti í OECD löndunum, sem innihalda mikilvægustu upprunamarkaði íslenskrar ferðaþjónustu. 

Það skýri nokkuð mikinn áætlaðan vöxt á árinu 2026, eða um sjö prósent. Árin þar á eftir sé spáð mun hóflegri fjölgun erlendra ferðamanna, um það bil 3-4 prósent hvert ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×