Zlatan biðst afsökunar eftir brottrekstur Fonseca Smári Jökull Jónsson skrifar 1. janúar 2025 10:58 Zlatan Ibrahimovic er einn af hæstráðendum hjá AC Milan. Vísir/Getty Paulo Fonseca var rekinn sem knattspyrnustjóri AC Milan á sunnudagskvöldið eftir dapurt gengi á tímabilinu. Félagið hefur nú beðist afsökunar á hvernig brottreksturinn var framkvæmdur.
AC Milan hefur ekki gengið vel á tímabilinu til þessa og situr í áttunda sæti Serie A eftir 1-1 jafntefli gegn Roma á sunnudag. Knattspyrnustjóranum Paolo Fonseca var sagt upp eftir leikinn en ítalskir fjölimiðlar voru búnir að tilkynna um eftirmann Fonseca áður en Milan hafði formlega tilkynnt um brottrekstur hans. Það virðist vera ýmislegt sem forráðamenn Milan gátu gert betur í samskiptum við Fonseca. Zlatan Ibrahimovic, sem starfar sem sérstakur ráðgjafi í knattspyrnumálum Milan, hefur nú beðist afsökunar á því hvernig félagið kom fram eftir leikinn gegn Roma en Fonseca hefur greint frá því að hann hafi verið rekinn um leið og leikurinn var flautaður af á sunnudag. Þrátt fyrir það var Fonseca skikkaður á blaðamannfundinn eftir leik þar sem hann þurfti að svara spurningum blaðamanna án þess að greina frá brottrekstrinum, ákvörðun sem Milan hefur fengið mikla gagnrýni fyrir. „Ákvörðunin um að reka hann var tekinn eftir leik. Það voru mistök hjá okkur að láta hann tala og við biðjumst afsökunar á því,“ sagði Ibrahimovic á blaðamannafundi í gær.
Ítalski boltinn Mest lesið Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sport Nauðgunardómurinn ógildur og Dani Alves er frjáls ferða sinna Sport Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í mjög ljótri stöðu“ Íslenski boltinn Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Fótbolti Verstappen óánægður með Red Bull fyrir að reka liðsfélagann Formúla 1 Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Fótbolti Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og margt fleira Sport Sjáðu fimm bestu tilþrifin og kjóstu Körfubolti Sabonis ekki með Litháen á EM Körfubolti Fleiri fréttir Skelfileg meiðsli Stefáns Árna: „Fóturinn var í fokking ljótri stöðu“ Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Markasúpa í Mjólkurbikarnum Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Breiðablik Lengjubikarmeistari eftir öruggan sigur á Þór/KA Segja Barcelona hafa svindlað og kærðu Arnór fyrsta nafn á eftirsóknarverðum lista Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Spyrja sig hvort Freyr geti heillað eins og Slot í Liverpool „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Harry Redknapp kallaði Tuchel þýskan njósnara Slegin út með tíu mörkum í tveimur leikjum Fögnuðu grimmt og gætu fengið bann Helgi Kolviðs aftur í þjálfun Sænska stórveldið keypti Ísabellu Söru Grindvíkingar sækja um í hamfarasjóð UEFA Heimi finnst aldursumræðan algjörlega galin Brassar vilja fá Ancelotti til bjargar Eiginkonan varð að færa Marquinhos miklar sorgarfréttir Ný treyja KR kynnt með pompi og prakt Gömul ummæli Bartons dregin fram: „Menn sem berja konur eru skíthælar“ „Þetta er veikara lið“ Besta-spáin 2025: Leiðin orðin grýttari Til skoðunar að tilkynna málið til lögreglu Chelsea og Man City gætu þénað sextán milljarða á HM félagsliða Glæsimark Russo fullkomnaði endurkomu Arsenal Lyon örugglega áfram á kostnað Bayern Glódís Perla aftur á bekknum Umboðsmaður Davies gagnrýnir landsliðsþjálfarann Sjá meira