Erlent

Rann­saka flug­flotann í kjöl­far slyssins

Lovísa Arnardóttir skrifar
Vélinni var nauðlent og eftir það klessti hún svo á vegg við enda flugvallarins.
Vélinni var nauðlent og eftir það klessti hún svo á vegg við enda flugvallarins. Vísir/EPA

Starfandi forseti Suður-Kóreu, Choi Sang-mok, hefur fyrirskipað að allur flugfloti landsins verði skoðaður með tilliti til öryggis. 179 létust í flugslysi í Suður-Kóreu í gær þegar lendingarbúnaður vélarinnar bilaði. Alls voru 181 um borð í vélinni. Tveimur flugþjónum var bjargað úr brakinu en þau fundust nærri stéli vélarinnar. Flugslysið er mannskæðasta innanlandsflugslys í sögu landsins.

Í frétt Guardian segir að stjórnvöld hafi einnig ákveðið að allar Boeing 737-800s vélar landsins yrðu skoðaðar. Alls eru samkvæmt frétt Guardian 101 slík vél í notkun í landinu í innanlandsflugi. Fram kemur í fréttinni að til greina komi að bandarískir rannsakendur komi að rannsókninni, sem og fulltrúar frá Boeing.

Tveir flugþjónar lifðu slysið af.Vísir/EPA

Sjö daga þjóðarsorg er í Suður-Kóreu vegna slyssins. Áætlað er að Choi fljúgi til Muan, þar sem vélin fórst, í dag til að vera viðstaddur minningarstund. Búið er að bera kennsla á 141 af þeim 179 sem létust í slysinu með erfðaefni eða fingraförum. Fjölskyldur fórnarlamba hafa komið sér fyrir á flugvellinum.

Svartir kassar fundnir

Rannsakendur frá bæði Suður-Kóreu og Bandaríkjunum reyna nú að komast að því hvað varð til þess að vélin fórst. Í fyrst var talið að hún hefði flogið inn í stóran fuglahóp en enn er mörgum spurningum ósvarað. Báðir svartir kassar vélarinnar hafa fundist og eru hluti af rannsókninni.

Önnur vél flugfélagsins, Jeju Airlines, lenti í vanda með lendingarbúnað og þurfti að snúa aftur til Seúl stuttu eftir flugtak. Talsmaður flugfélagsins sagði þau meðvituð um atvikið og að það væri í skoðun.

Í frétt Guardian segir að sérfræðingar sem hafi skoðað myndbönd slysinu, þar sem má sjá vélin nauðlenda, og lenda svo á vegg, hafa einnig spurt um hönnun flugvallarins og gagnrýnt að veggur hafi verið byggður við enda vallarins. Myndbandið má sjá hér. 

Fjöldi minnist þeirra 179 sem létust í slysinu.Vísir/EPA

Votta samúð

Leiðtogar viða um heim hafa vottað samúð sína vegna slyssins. Forseti Bandaríkjanna, Joe Biden, sagði Bandaríkin veita alla þá aðstoð sem þau gætu þurft og forseti Kína, Xi Jinping, og forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, vottuðu samúð sína. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands sagði á samfélagsmiðlinum X að hugur hennar væri hjá fórnarlömbum slyssins.

„Það hrygg­ir mig að heyra af mann­skæða flug­slys­inu í Suður-Kór­eu. Hug­ur minn er hjá fórn­ar­lömb­un­um og fjöl­skyld­um þeirra,“ sagði Þorgerður Katrín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×