Innlent

Núðlusúpan reyndist 34 kíló af marijúana

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þessi efni reyndu erlend hjóna að flytja til landsins.
Þessi efni reyndu erlend hjóna að flytja til landsins. lögreglan

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum er greint frá magni þeirra fíkniefna sem embættið hefur haldlagt á Keflavíkurflugvelli. Burðardýr beita öllum brögðum virðist vera, til að koma efnunum á göturnar, þar á meðal með því að koma þeim fyrir í pakkningum fyrir asíska núðlusúpu. 

Frá einu slíku tilfelli greinir lögregla frá og birtir mynd til skýringar. Um var að ræða erlend hjón sem handtekin voru með 34 kg af maríjúanaefnum, falin í núðlusúpupakkningum. 

„Fíknefnin fundust við leit tollvarða í tveimur ferðatöskum er fólkið hafði meðferðis. Tilgangur ferðar virðist hafa verið sá eini að flytja fíkniefni til landsins og þiggja greiðslu fyrir.“

Í tilkynningu segir að það sem er þessu ári hafi lögreglan á Suðurnesjum haldlagt 158 kg af maríhúana, 21 kg af hassi, 35 kg af kókaíni, tæplega 19000 stk. af MDMA, um 2000 skammta af LSD og 7000 stk. af OxyContin. 

„Flest málanna eiga uppruna sinn á landamærunum að tilstuðlan árvökula tollvarða. Mikið og gott samstarf er á milli lögreglunnar á Suðurnesjum og tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Árið 2023 haldlagði lögreglan á Suðurnesjum 125 kg af maríhúana og 15.5 kg af hassi, en svipað magn af öðrum ólöglegum efnum.“

„Mismunandi aðferðum var beitt við innflutning haldlagðra fíkniefna, með það að markmiði að koma fíkniefnunum fram hjá tollvörðum og til dreifingar á götum úti. Sérstaða var með málum sem vörðuðu innflutning kókaíns en kókaínið var í flestum tilfellum flutt innvortis. Mesta magn sem einstaklingur flutti í líkama sínum á árinu 2024 voru 140 pakkningar sem reyndust innihalda 1.470 kg af kókaíni. Slík flutningsaðferð er lífshættuleg og var t.a.m. einn einstaklingur færður í bráðaaðgerð á Landspítala í Fossvogi þar sem pakkningar sem innihéldu fljótandi kókaín festust í meltingavegi viðkomandi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×